Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 28

Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 28
28 Þriðjudagur 24. maí 2005 Erfðabreytt matvæli til umfjöllunar í Noregi Norsku bændasamtökin, Norges Bondelag, fjölluðu nýlega um framleiðslu erfðabreyttra mat- væla á stjórnarfundi sínum og samþykktu þar eftirfarandi ályktun um málið: Ógerlegt er við núverandi aðstæður að sjá með vissu fyrir um langtímaaf- leiðingar fyrir landbúnað, um- hverfi og neytendur af notkun erfðabreyttra lífvera. Mikilvægt er að hafa varann á í því sam- bandi. Norsku bændasamtökin telja að ekki eigi að nota erfða- breytt hráefni við matvælafram- leiðslu í Noregi. Norsku bændasamtökin eiga aðild að margvíslegu samstarfi þar sem fjallað er um erfða- breyttar lífverur. Þar má nefna „Nettverk for Mat og Miljö, (NMM)“ sem eru samtök 17 stofnana. Á dagskrá þeirrar stofnunar fyrir árið 2005 er fræðsluátak fyrir almenning um erfðabreyttar lífverur (GMO). Það átak fer fram í samvinnu við Matvælaeftirlitið í Noregi. Varðandi það sem fram fer á alþjóðlegum vettvangi í þessum efnum fer þátttaka Norsku bændasamtakanna einkum fram í COPA-COGEGA, sem er sam- eiginlegur vettvangur bænda- samtaka og samvinnufélaga í landbúnaði í Evrópu. Þjónustusími fyrir danska bændur vegna styrkumsókna Í Danmörku, eins og í öðrum löndum ESB, er við lýði flókið styrkjakerfi í landbúnaði og þurfa bændur oft á aðstoð að halda við að fylla út styrkum- sóknir. Til að auðvelda þeim það verk hefur skrifstofa á vegum Dönsku bændasamtakanna, sem heldur utan um þessar umsóknir, komið á fót þjónustusíma fyrir bændur og fær hún um eitt til tvö þúsund símtöl á dag þar sem leitað er upplýsinga. Til að létta álagið hefur skrifstofan komið upp vefsíðu á Netinu með upp- lýsingum um styrkjakerfið og biður bændur að byrja á að leita sér úrlausna þar. Skrifstofan sendi út 75 þús- und eyðublöð til bænda í ár en nefna má að á sl. ári bárust henni um 47.500 umsóknir um styrki út á ræktunarland, svo- kallaða hektarastyrki. Minni fita í þeytirjóma í Danmörku Samtök mjólkuriðnaðarins í Danmörku hafa fengið leyfi til að lækka fituhlutfall í þeyti- rjóma úr 38% í 34%. Danska Matvælastofnunin hefur sam- þykkt þessa breytingu enda er fita í fæði Dana talin of mikil. Hin nýja afurð hefur ekki áhrif á notkunarmöguleika þeyti- rjómans en hér er verið að feta í fótspor margra annarra landa í ESB um að draga úr hlut fitu í mataræði fólks. Áfram verður frjálst að framleiða eldri gerð rjómans en fituhlutfallið skal koma fram á umbúðum. 50 milljón svínum hefur verið slátrað í Horsens í Danmörku Danska sláturfélagið Danish Crown hefur látið loka slátur- húsi sínu í Horsens. Síðustu svínunum var slátrað þar 7. apríl sl. Frá upphafi hefur þar verið slátrað 50 milljón svínum. Við lokun hússins störfuðu þar 250 manns. Þeir fá nú starf í nýju sláturhúsi fyrirtækisins í Esbjerg. Þar með munu starfa þar alls 1.360 manns. Með fjölg- un starfsmanna þar verða afköst á kvöldvakt aukin. Nú þegar eru í gangi tvær slátrunarlínur og stefnt er að því að fjölga þeim í þrjár, eins og á dagvaktinni. Reiknað er með að á næsta ári verði náð fullum afköstum við slátrun í húsinu eða 75 þús- und svínum á viku. Vonir um meiri stuðning fyrir sauðfjár- og geitabúskap Í Landsbyggdens folk, fréttablaði sænskumælandi bænda í Finnlandi greinir nýverið frá því að, að óbreyttu hefði endurskoðun landbúnaðarstefnu ESB (MTR) leitt til mikils tekjutaps fyrir sauðfjár- og geitabúskap í Suður-Finnlandi. Þessi breyting hefði leitt til tekjutaps upp á fleiri þúsund evrur á einstökum búum (1000 evrur nema u.þ.b. 84.000 kr.). Heildar framlög áttu að verða 430.000 evrur 2005 og lækka í 410.000 evrur 2007. Þar sem þessi bú eru að jafnaði minni en meðalbú á þessu svæði sem og arðsemi þeirra lítil hefði þessi breyting verið alvarleg ógnun fyrir þessar búgreinar. Nú stendur til að hækka framlög til þessara búgreina í samtals 910.000 evrur. Auknir fjármunir er fengnir með því að lækka stuðning til annarra búgreina samkvæmt samningsgrein 141 sem felur í sér sérstakt samkomulag um aukastuðning umfram ESB stuðning til landbúnaðar í Suður-Finnlandi. Bú í öðrum búgreinum á þessu svæði eru að jafnaði umtalsvert stærri en önnur bú og nemur heildarstuðningur samkvæmt samningsgrein 141 um 100 milljón evrum. Áhrif á aðrar búgreinar eru því lítil. /lausl.þýtt og endursagt EB Hveiti- og byggmarkaðir í jafn- vægi á yfirstandandi ári Alþjóða kornráðið, Interna- tional Grains Council, spáir því að hveitiuppskera í heiminum í ár verði 602 milljón tonn, sam- anborið við 624 milljón tonn á sl. ári. Jafnframt gerir ráðið ráð fyrir að sala hveitis dragist sam- an, m.a. af fóðurhveiti bæði í ESB og Norður-Ameríku. Bygguppskera í ár er áætluð 145 milljón tonn en hún var 152 milljón tonn á sl. ári. Þess er vænst að eftirspurn eftir fóður- byggi minnki, einkum í Sádi-Ar- abíu en eftirspurn eftir byggi til etanólframleiðslu aukist. Þess er því vænst að verð á byggi muni hækka á árinu. Þá er tekið fram að nýr sókn- armöguleiki fyrir bygg felist í vaxandi eftirspurn eftir öli í Kína. AÐ UTAN Út er kominn sumarbækling- urinn „Upp í sveit“ frá Ferða- þjónustu bænda en í honum er að finna upplýsingar um fjöl- breytta gistingu og afþreyingu um allt land. Helstu breytingar frá síðustu útgáfu er flokkun gististaða í heimagistingu, gistihús bænda og sveitahótel. Í heimagistingu er boðið upp á einfalda en þægi- lega gistingu, í gistihúsum bænda er að finna fjölbreytt úr- val af gistingu í herbergjum með og án baðs, en nýja skrautfjöðrin eru sveitahótelin þrettán þar sem meira er lagt upp úr aðbúnaði og þjónustu við gesti. Þá eru marg- ir ferðaþjónustubændur með sumarhús. Það er margt hægt að gera í sveitinni og þess virði að kynna sér hvaða afþreyingu ferðaþjón- ustubændur hafa upp á að bjóða. Sem dæmi má nefna, hestaferð- ir, veiði, gönguferðir, fuglaskoð- un, golf, fjórhjólaferðir, sigling- ar og afslöppun í heitum pottum. Nú eru um 150 ferðaþjón- ustuaðilar innan Ferðaþjónustu bænda, þar af eru yfir 30 meðlim- ir í félaga- og umhverfisvottunar- samtökunum Green Globe 21. Nánari upplýsingar um Ferðaþjónustu bænda og ein- staka bæi er að finna á heimasíð- unni www.sveit.is. Þá er sumar- bæklingnum dreift á Essó bens- ínstöðvar um allt land og á upp- lýsingamiðstöðvar. Upp í sveit - Gisting og afþreying um allt land Stay on a farm in Iceland Gisting og afþreying um allt land 2 00 5 - 2 00 6upp ísveit Kvennareiðtúr Sleipnis Fimmtíu og fjórar konur tóku þátt í árlegum kvennareiðtúr Hesta- mannafélagsins Sleipnis á laugardag fyrir hvítasunnu. Hópurinn lagði upp frá hesthúsahverfinu á Selfossi og reið að Laugabökum í Ölfusi þar sem sungið var og spjallað í góðu yfirlæti og boði hjónanna Kristins Valdimarssonar og Erlu Gerðar Matthíasdóttur. Að útreiðatúrnum loknum var borðað saman í Hliðskjálf, félags- heimili Sleipnismanna. Meðfylgjandi mynd var tekin þar sem hópur- inn áði fyrir utan heimili Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra og Margrétar Hauksdóttur, konu hans, sem kom út og spjallaði við konurnar. - fía. Embætti yfirdýralæknis Orðsending til bænda, búnaðarsambanda og dýralækna vegna flutnings á líffé milli varnarhólfa haustið 2005 (geymið þessa auglýsingu) Bændur, sem vilja kaupa líflömb vegna fjárskipta á komandi hausti þurfa að senda skriflega pöntun með milligöngu viðkomandi búnaðarsambands í síðasta lagi 31. júlí 2005. Þeir einir koma til greina, sem lokið hafa fullnaðarsótthreinsun og frágangi húsa, umhverfis og annars, sem sótthreinsa átti. Æskilegt er að taka fram í umsókninni hver vottaði sótthreinsun og hvenær. Sami frestur gildir fyrir þá sem búa á riðusvæðum og áhættusvæðum þar sem fjárverslun er bönnuð, og óska þess að fá keypt lömb til kynbóta, vegna búháttabreytinga eða vegna vandkvæða á að nota sæðingar. Þeir skulu fá umsögn héraðsdýralæknis um þær ástæður og senda pöntun sína til viðkomandi búnaðarsambands sem gefur allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar um líflambasvæði. Að gefnu tilefni er áréttað, að flutningur á sauðfé og geitum milli varnarhólfa (yfir varnar-línur) er stranglega bannaður án leyfis yfirdýralæknis. Ennfremur er með öllu óheimilt að versla með kindur (unglömb sem eldra fé) eða flytja fé til lífs á milli bæja með öðru móti innan svæða, þar sem riðuveiki hefur orðið vart s.l. 20 ár. Ætlast er til þess að menn leiti álits viðkomandi héraðsdýralæknis á hvers konar flutningi sauðfjár, geita og nautgripa milli bæja. Héraðsdýralæknar gefa nánari upplýsingar um heilbrigðisástand í umdæmum sínum. Allt fé hjá kaupanda og seljanda skal vera merkt með löggiltum merkjum og skal tekið fram í umsókninni að svo sé. Umsóknum verður svarað fyrir ágústlok. Leyfi ræðst af heilsufari fjár á sölusvæðinu, þegar kemur að flutningi hverju sinni. Embætti yfirdýralæknis Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík Sími: 545 9750, 545 9775

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.