Bændablaðið - 05.07.2005, Side 13

Bændablaðið - 05.07.2005, Side 13
Þriðjudagur 5. júlí 2005 13 Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400 jotunn.isjotunn.is Bigab - Bögballe -Claas - Duun - Engcon - Fendt - Fermec - Fisher - Kuhn - Kverneland - Lister - Massey Ferguson MF þreskivélar - NC - Niemeyer - OMC - Perkins - PZ - Pöttinger - Sampo - Scan - Schaffer - Trima Valtra Vermeer - Vicon - Og fleira Eigum og útvegum varahluti í: afsláttur á original varahlutum í Kuhn og Claas meðan birgðir endast Eigum tinda í margar gerðir heyvinnutækja. Munið, síur í Massey Ferguson á góðu verði Hráolíusíur: Vörunúmer 26566602 verð: 564 m/vsk Vörunúmer 26561117 verð: 378 m/vsk Algengar í MF 300-3000-4000 ofl. 15% 20% Smursíur: Vörunúmer 2654403 verð: 656 m/vsk Vörunúmer 2654407 verð: 748 m/Vvsk Algengustu smursíur í Perkins afsláttur á Fendt vara- hlutum meðan birgðir endast Nú geta áhugamenn um litför- ótta hestalitinn glaðst því á hér- aðssýningu á Hellu á dögunum fór litföróttur stóðhestur í 1. verðlaun. Hestur þessi heitir Gjafar frá Eyrarbakka og er ræktandi hans Guðrún Telma Þorkelsdóttir. Gjafar er rauðlitföróttur að lit, undan hinum þekkta stóðhesti Vík- ingi frá Voðmúlastöðum, sem m.a. hlaut 10,0 fyrir tölt í kynbótadómi, og hryssunni Litbrá frá Snjall- steinshöfða 1, dóttur Litfara frá Helgadal, sem var litföróttur stóð- hestur sem fluttur var úr landi á sínum tíma. Gjafar er klárhestur og hlaut hann m.a. 9,0 fyrir brokk, vilja og geðslag og fet. Hann hlaut 8,5 fyrir tölt og fegurð í reið og 8,0 fyrir stökk. Hann hlýtur jafnan sköpulagsdóm og kemur út með 8,04 fyrir sköpulag og 8,12 fyrir hæfileika sem gera 8,09 í aðalein- kunn. Stofnað hefur verið hlutafé- lag um hestinn og geta eigendur hans sem og aðrir áhugamenn um litaræktun fagnað þessum góða ár- angri. Gjafar hlýtur einnig 300.000 krónur í verðlaun frá Fagráði í hrossarækt, en Fagráð hét því að verðlauna þá þrjá litföróttu hesta sem fyrstir næðu 1. verðlaunum. Kristinn Guðnason, formaður Fagráðs og Félags hrossabænda segist fagna því að fram sé komin góður litföróttur hestur og segist vonast til að fólk muni nota hann og þar með stuðla að útbreiðslu lit- förótta litaafbrigðisins. „Þetta er það sem Fagráð hefur beðið eftir og ég er afskaplega ánægður með það að hrossaræktendur eigi nú möguleika á að nota góðan litför- óttan hest. Vonandi er hann aðeins sá fyrsti af mörgum því ekki veitir af til að bjarga þessu litaafbrigði. Við þekkjum dæmi þess að einn stóðhestur hafi bjargað lit í stofn- inum sbr. Ófeig frá Flugumýri og móálóttu og bleikálóttu litina, og vonandi getur Gjafar lagt sitt af mörkum til að viðhalda litföróttu í stofninum. Gaman væri líka ef Hólabúið tæki nú áskorun Fagráðs í hrossarækt um að halda einhverj- um af sínum góðu kynbótahryss- um undir litföróttan stóðhest, nú þegar þessi ljómandi góði hestur er komin fram. Ég óska aðstandend- um hestsins og öðrum áhuga- mönnum um hestaliti til lukku með þetta.“ /HGG Jeppadekk Vörubíladekk Triangle dekk 4 ára reynsla á Íslandi Sendum jeppadekk frítt út á land !!! ALORKA ehf. VÖNDUÐ HEILSÁRSDEKK 28” 235/75R15 kr. 8.900,- 30” 30x9.5R15 kr. 10.400,- 30” 245/75R16 kr. 10.900,- 31” 31x10.5R15 kr. 11.900,- 32” 265/75R16 kr. 12.900,- Stærðir: 315/80R22.5 385/65R22.5 295/80R22.5 12R22.5 Slitsterk og góð munstur. Henta fyrir allan akstur. Hringdu og fáðu tilboð ! NÝ OG SÓLUÐ Verð frá kr. 29.900,- m/vsk. 577 3080 Litföróttur stóðhestur í 1. verðlaun Hinn litförótti Gjafar frá Eyrarbakka hlaut 1. verðlaun í kynbótadómi á dögunum. Knapi er Daníel Jónsson. Bændablaðsmynd: HGG Búið er að selja húsnæði Ístex í Hveragerði og sagði Guðjón Kristinsson, framkvæmda- stjóri, að viðunandi verð hafi fengist fyrir eignina. Starfsemi Ístex á Blönduósi hefur gengið vel og hafa rúmlega ársbirgðir af ull verið þvegnar á átta mánuðum. Fyrstu mánuðina voru tveir starfsmenn frá Hveragerði fyrir norðan, en nú eru þeir hættir og heimamenn teknir við og hafa þeir náð góðum tökum á þvottin- um. Ráðgert er að þvo á tveimur vöktum 20 tíma í sólarhring fyrstu fjóra mánuði hvers árs til að koma haustullinni sem fyrst í gegn um þvottinn og vinna síðan á einni tíu tíma vakt á öðrum árs- tímum. Sala handprjónabands hefur aukist á milli ára en geng- isþróun gerir það að verkum að útflutningstekjur hafa dregist saman. Starfsemi Ístex á Blönduósi gengur vel

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.