Bændablaðið - 05.07.2005, Síða 47

Bændablaðið - 05.07.2005, Síða 47
Þriðjudagur 5. júlí 2005 47 Hallormsstaður í Skógum Saga og náttúra höfuðbóls og þjóðskógar eftir Hjörleif Guttormsson, Sigurð Blöndal og fleiri Áskrifendur fá nöfn sín birt í heillaóskaskrá (tabula gratulatoria) fremst í ritinu og gefst þeim kostur á að eignast bókina á hagstæðu tilboðsverði sem er kr. 4.200. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Kristinn Richardsson hjá Eddu útgáfu í síma 522 2067 eða kristinn.richardsson@edda.is Stórglæsileg myndskreytt bók í stóru broti yfir 300 blað- síður kemur út hjá Máli og menningu haustið 2005 en þá verður öld liðin frá því landssjóður fékk jörðina Hallormsstað til umráða og ráðist var í að friða Hallorms- staðaskóg. Í bókinni verður rakin saga þessa landsþekkta höfuðbóls, menntaseturs og stærsta þjóðskógar á Íslandi og greint frá niðurstöðum nýrra rannsókna á jarðsögu, fornleifum og skógvistfræði. Einnig verður í ritinu fjöldi hagnýtra upplýsinga fyrir útivistar- og ferðafólk með uppdráttum og leiðsögn um land Hallormsstaðar og næsta nágrenni. Verkefnisstjórn um heimasölu á sveitabýlum leitar eftir sam- starfsaðilum sem hafa áhuga á að taka þátt í þróunarverkefni um heimavinnslu og sölu afurða á sveitabýlum. Fylla þarf út umsóknareyðublað sem eru að finna inni á heimasíðunum www.sveit.is og www.bondi.is, en þar þurfa að koma fram upp- lýsingar um framleiðsluvöruna, s.s. tegund vöru, innihaldslýsing og framleiðsluaðferð. Umsóknir berist á netfangið berg- lind@farmholidays.is eða bréf- leiðis í Síðumúla 13, 108 Reykja- vík merkt „Sala á sveitabýlum“. Frestur til að skila inn umsókn- um er til mánudagsins 11. júlí 2005. Leitað eftir samstarfsaðilum í verkefnið um heimasölu og vinnslu afurða á sveitabýlum Nú eru komnir á markað léttir jógúrtdrykkir frá MS sem ætlað er að koma til móts við óskir neytenda um sykurminni mjólk- urafurðir. Léttu jógúrtdrykk- irnir eru afrakstur markvissrar þróunarvinnu og nýrrar vinnslutækni sem hefur leitt til þess að notaður er umtalsvert minni sykur í drykkina en í sam- bærilegar vörur. Þessir léttu bragðbættu jógúrtdrykkir eru sýrðir með lifandi jógúrtgerlum og innihalda öll næringarefni mjólkur. Léttu jógúrtdrykkirnir inni- halda aðeins 0,8% fitu og eru með fituminnstu jógúrtvörum á mark- aði hérlendis. Hitaeiningainnihald drykkjanna er frá 37 kcal í 100 g (en þess má geta að undanrenna inniheldur 34 kcal í 100 g). Þeir fást í nýjum og spennandi bragð- tegundum, tveimur sykurskertum og einni án viðbætts sykurs. Flestir þeir sem hafa mjólkur- sykursóþol geta notið þessara nýju drykkja þar sem meira en 80% af mjólkursykrinum hafa verið klof- in. Bragðtegundirnar eru eftirfarandi: jarðarber, mangó og eplaþyrniber (sykurskertur) stjörnuávextir og ferskjur (sykurskertur) bananar og kirsuber (án viðbætts sykurs, inniheldur sætuefni) Léttir jógúrtdrykkir eru fram- leiddir hjá MS/MBF í Búðardal. Mjólkurvörur er mikilvægur hluti af fjölbreyttu mataræði vegna þess hve hollar og næringarríkar þær eru. Íslenskum neytendum stendur til boða mjög fjölbreytt úrval mjólkurvara og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, ekki síst með tilkomu þessara nýju léttu jógúrtdrykkja. Áhrifaríkur auglýsingamiðill Sími 563 0300 Netfang augl@bbl.is Sykurminni mjólkurvörur

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.