Bændablaðið - 24.11.2011, Qupperneq 4
Bændablaðið | fimmtudagur 24. nóvember 20114
Fréttir
Gengið hefur verið frá samningi
milli Ístex, LS og BÍ um ullarverð
sem gildir frá og með 1. nóvem-
ber sl. og til októberloka 2012.
Verðskráin hækkar um 5,1% frá
fyrra ári. Það er talsvert minna
en kjötverð hækkaði í nýliðinni
sláturtíð.
Ástæðan er að innlagt ullarmagn
hefur aukist verulega undanfarið.
Framleiðslan var ríflega 1.000 tonn
á síðasta ári, sé miðað við óþvegna
ull og úr henni urðu 785 tonn af
hreinni ull. Ullarframleiðslan hefur
aukist um rúm 100 tonn síðustu ár.
Þar sem greiðslur fyrir ull skv. sauð-
fjársamningi eru föst fjárhæð en ekki
framleiðslutengd þá dreifist hún nú
á fleiri kíló en áður. Ístex hefur þó
hækkað sínar greiðslur verulega á
milli ára og hlutur fyrirtækisins í
ullarverði er 40% hærri en á síðasta
ári. Verðskráin er eftirfarandi:
H1-Lamb: 740 kr/kg.- H2-Lamb:
680 kr/kg.- H1: 680 kr/kg. -H2: 590
kr/kg. M1-Svart: 590 kr/kg.- M1-
Mórautt: 590 kr/kg. - M1-Grátt: 590
kr/kg. - M2: 110 kr/kg. Úrkast: 10
kr/kg. Greitt fyrir flokkun: 25 kr/kg.
Samningurinn kveður jafnframt
á um að greiðslum verði flýtt. Fyrri
greiðsla verður nú 75% heildar-
verðmætis í stað 70%. Ull sem skráð
er í nóvember verður greidd ekki
síðar en 31. jan. 2012. Ull skráð í
desember og janúar verður greidd
ekki síðar en í febrúarlok. Eftir þann
tíma verður greitt í lok næsta mán-
aðar fyrir skráningarmánuð. Síðari
greiðsla á síðan að fara fram fyrir
1. september 2012 fyrir alla ull sem
skráð er fyrir 1. júlí 2012.
Samið um ullarverð:
Verðskrá hækkar um 5,1%
Stjórn Hestamannafélagsins Funa
mun á næstunni funda með hags-
munaaðilum og fara yfir fyrir-
liggjandi umsókn um Landsmót
hestamanna á Melgerðismelum.
Brynjar Skúlason, gjald-
keri Hestamannafélagsins Funa í
Eyjafjarðarsveit, segir að málið muni
væntanlega skýrast eftir fundinn en
stefnt er að því að hann verði í næstu
viku. Félagið hefur sótt um að halda
Landsmót á Melgerðismelum árið
2014.
Í bréfi sem félagið sendi stjórn
Landssambands hestamannafélaga
í lok janúar árið 2009 bauð það
Melgerðismela fram sem lands-
mótsstað. „Teljum við að ef gæta
eigi jafnræðis og félagslegs rétt-
lætis við val á landsmótsstað þá sé
komið að Melgerðismelum,“ segir
í bréfinu. Að mati forsvarsmanna
félagsins er það grundvallaratriði að
dreifa landsmótum um landið eftir
því sem aðstæður leyfa hverju sinni,
enda gegni þau mikilvægu hlutverki
í að kynna landið og breiða út hesta-
mennsku sem víðast. Þá er bent á að
það viðhorf sé ráðandi í nær öllum
öðrum íþróttagreinum að dreifa eigi
mótum um landið, m.a. landsmótum
ungmennafélaga. Þannig viðhaldist
samkeppni milli staða, sem stuðli
að framförum og framþróun í móta-
haldi.
Vonast eftir sátt á landsvísu
Á sameiginlegum félagsfundi hesta-
mannafélaganna Funa og Léttis á
Akureyri um framtíð landsmótshalds
í Eyjafirði var samþykkt yfirlýsing
þar sem fram kemur það álit félag-
anna að röðin sé komin að Eyjafirði
og að næsta landsmót sem haldið
verður á Norðurlandi skuli vera þar.
Flestir sem til máls tóku á fundin-
um töldu seinagang í ákvarðanatöku
um landsmótsstað, sem og óvissu um
framtíðarskipulag landsmóta, gera
félögunum erfitt fyrir. Vonuðust
menn eftir að sátt myndi nást á lands-
vísu um málið í heild og því komið
í farveg til lengri tíma. Þórgnýr
Dýrfjörð frá Akureyrarstofu hélt
stutta tölu um mikilvægi Landsmóts
hestamanna fyrir byggðarlagið og
lýsti yfir vilja til að koma að hvers-
konar viðburðum tengdum hestum
í firðinum.
Stórviðburður fyrir Eyjafjörð
„Landsmót hestamanna er stórvið-
burður fyrir Eyjafjörð ef af verður
og er ekkert einkamál hestamanna
á svæðinu. Reikna má með að yfir
10 þúsund manns muni sækja mótið
og dvelja á svæðinu allt upp í viku-
tíma meðan á því stendur Þetta er
því ekki síður hagsmunamál fyrir
ferðaþjónustuaðila svæðisins og
ýmis félagasamtök, sem hafa af
þessu beina hagsmuni. Auk þess
hafa sveitarfélögin af þessu miklar
veltutengdar tekjur,“ segir Brynjar.
Aðstaða á Melgerðismelum
er góð og þar hefur undanfarin ár
mikið verið byggt upp, en sam-
kvæmt því sem Funamenn áætla gæti
kostnaður við að undirbúa svæðið
fyrir landsmót numið um 25 millj-
ónum króna. Allar nýframkvæmdir
á svæðinu munu nýtast mótssvæðinu
á Melgerðismelum til framtíðar en
ekki einungis vegna landsmótshalds.
Fulltrúar félaganna tveggja munu
á næstu dögum fara yfir málið með
sveitarfélögum á svæðinu sem og
fulltrúum frá Landssambandi hesta-
manna, auk þess að kynna málið fyrir
stjórnum annarra hestamannafélaga í
Eyjafirði, enda um að ræða viðburð
sem er samstarfsverkefni margra.
/MÞÞ
Hestamannafélögin Funi í Eyjafjarðarsveit og Léttir á Akureyri:
Vilja Landsmót hestamanna í Eyjafjörð 2014
#
$
%
&# '
! (&
#
)*+/
5
5 &
! 5
&
Mynd / MÞÞ
Aðlfundur Garðræktarfélags Reykhverfinga:
Hveravallahjón heiðruð
fyrir áratuga starf
Á aðalfundi Garðræktarfélags
Reykhverfinga fyrir skömmu
voru hjónin á Hveravöllum, þau
Ólafur Atlason fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri félagsins og Alda
Pálsdóttir garðyrkjufræðingur
heiðruð í tilefni af sjötugsafmæli
Ólafs á árinu og í tilefni af starfs-
lokum Öldu við fyrirtækið. Þau
hafa í marga áratugi lagt gríðar-
lega vinnu við að byggja upp og
framkvæma á staðnum, sem hefur
vakið athygli, og var þeim sérstak-
lega þakkað þeirra mikla framlag.
Fjórir framkvæmdastjórar í
beinan karllegg
Garðræktarfélag Reykhverfinga
er annað elsta hlutafélag landsins,
stofnað árið 1904 og á sér sam-
fellda sögu síðan. Í upphafi stóð
félagið einkum fyrir kartöflurækt í
kringum hverina sem þar eru og þótti
Þingeyingum af því mikið hagræði
að geta keypt þessa vöru á heima-
slóðum á þeim tíma.
Framkvæmdastjórar hafa verið
fjórir á rúmum hundrað ára starfsferli
félagsins og það í beinan karllegg.
Þeir voru Baldvin Friðlaugsson,
Atli Baldvinsson, Ólafur Atlason
og núverandi framkvæmdastjóri er
Páll Ólafsson.
Starfsemin jókst svo með árun-
um og rófnarækt bættist við, sem
og túnrækt og engjaheyskapur, en
fyrsta gróðurhúsið á staðnum var
reist árið 1933. Hófst þá tómata- og
gúrkuræktun ogsmám saman var
horfið frá heyöflun og kartöflurækt.
Framleiddu um 380 tonn af
grænmeti
Fram kom á aðalfundi félagsins að
á árinu 2010 voru framleidd um
380 tonn af grænmeti, þ.e. 238 tonn
af tómötum, rúmlega 113 tonn af
gúrkum og 17,6 tonn af papriku auk
sumarblómasölunnar.
Á Hveravöllum eru um 14 heil
störf og raflýsing gerir að verkum
að nú er framleiðsla á grænmeti allt
árið.
89
;8
'< =>
?&
'@ @
5
8
&5 D8 E@
Farðu í leitir - nýr vefur með samskrá
bókasafna í landinu
Opnaður hefur verið nýr leitar-
vefur http://leitir.is sem leitar sam-
tímis í Gegni sem er samskrá vel-
flestra bókasafna í landinu, tengdu
stafrænu íslensku efni ásamt
erlendum áskriftum að stafrænu
vísindaefni í Landsaðgangi.
Katrín Jakobsdóttir ráðherra mennta-
kynnti nafn hans á afmælisráðstefnu
Nafn vefgáttarinnar er sótt til þess
viðburðar sem á sér stað á haustin
í sveitum landsins er bændur halda
til fjalla og smala saman búpeningi
sínum. Þeir fara í leitir. Á vefnum
leitir.is fara menn einnig í leitir og
smala saman upplýsingum. Það er
margt sem þar kemur í leitirnar.
Förum öll í leitir!
Árlegir bændafundir hefjast
á þriðjudaginn í næstu viku
með fundum á Hvanneyri,
Snæfellsnesi, Vopnafirði og
Egilsstöðum.
Fulltrúar frá Bændasamtökunum fara
hringinn í kringum landið til fundar við
bændur fram til 12. desember og fundar-
planið má sjá í meðfylgjandi töflu.
Árlegir bænda-
fundir hefjast
á þriðjudaginn
Dags Staðsetning Tími
þriðjudagur 29. nóv. Lbhí Hvanneyri 13:30
þriðjudagur 29. nóv. Breiðablik Snæfellsnesi 20:30
þriðjudagur 29. nóv. Hótel Tangi Vopnafirði 13:00
þriðjudagur 29. nóv. Hótel Hérað Egilsstöðum 20:30
miðvikudagur 30. nóv. Svalbarðsskóli Þistilfirði 14:00
miðvikudagur 30. nóv. Breiðamýri S-Þing. 20:30
fimmtudagur 1. des. Hótel Ísafjörður 12:00
mánudagur 5. des. Icelandair hótel Flúðir 13:00
mánudagur 5. des. Kaffi Kjós 20:30
þriðjudagur 6. des. Heimaland undir Eyjafj. 13:00
þriðjudagur 6. des. Þingborg Árnessýslu 20:30
þriðjudagur 6. des. Sjálfstæðishúsið Blönduósi 13:00
þriðjudagur 6. des. Víðihlíð V-Hún. 20:30
miðvikudagur 7. des. Sævangur - Ströndum 13:00
miðvikudagur 7. des. Dalabúð - Búðardal 20:30
fimmtudagur 8. des. Hlíðarbær Eyjafirði 13:00
fimmtudagur 8. des. Hótel Varmahlíð 20:30
mánudagur 12. des. Smyrlabjörg - A-Skaft. 14:00
mánudagur 12. des. Geirland á Síðu V-Skaft. 20:30
mánudagur 12. des. Hótel Lundi - Vík í Mýrdal 13:00