Bændablaðið - 24.11.2011, Síða 33
34 Bændablaðið | fimmtudagur 24. nóvember 2011
Markaðsbásinn
Í nýrri skýrslu um hugsanleg áhrif
ESB-aðildar á íslenskan landbún-
að kemur fram að verð til bænda
myndi lækka svo nemur allt að
tugum prósenta í einstaka afurða-
tegundum, verði tollar afnumdir á
búvörum frá ESB-löndunum. Er
þetta svipuð niðurstaða og varð
í Finnlandi við aðild að ESB, þó
nokkru muni á áhrifum á einstak-
ar búgreinar. Áhrif á matvöruverð
til neytenda í Finnlandi voru 11%
verðlækkun. Hafa ber í huga að í
Finnlandi voru lagðir tollar á mun
fleiri tegundir búvara fyrir aðild að
ESB, eins og t.d. kornvörur, sykur
og grænmeti, þar sem þær voru
og eru framleiddar þar í landi.
Einnig er vikið að því í skýrslunni
að markaðsstyrkur smásölunnar
hafi aukist í Finnlandi við aðild
landsins að ESB og lægra hlutfall
af útsöluverði búvara komi nú í
hlut bænda en áður var.
15% útgjalda vegna mat- og
drykkjarvöru
Ef litið er á útgjöld heimilanna hér á
landi til matvörukaupa árið 2010 sést
að 15% þeirra eru vegna kaupa á mat-
og drykkjarvörum. Þar af eru 2,6%
til kaupa á brauði og brauðvörum,
1% vegna ávaxta og 5,1% í aðrar
mat- og drykkjarvörur (þ.m.t. sykur,
súkkulaði, gosdrykkir og ávaxtasafi)
sem ESB-aðild myndi ekki breyta
neinu um hvað tolla eða aðrar álögur
varðar. Þá standa eftir kjöt og kjöt-
vörur sem nema 2,7% af útgjöldum
heimilanna, mjólk, ostar og egg 2,4%
og grænmeti, kartöflur o.fl. 1,2%.
Síðasttaldi liðurinn er reyndar þegar
að stærstum hluta án tolla og inn-
lend framleiðsla t.d. á tómötum og
gúrkum í beinni samkeppni við inn-
fluttar vörur.
11% verðlækkun búvara þýðir
aðeins 0,5% lægri útgjöld heimila
Um það bil 5% af útgjöldum heimil-
anna fara til kaupa á búvörum sem
tollar eru lagðir á við innflutning.
Ef verðlækkun þessara vara yrði
11% við aðild að ESB myndi það
lækka útgjöld heimilanna um 0,5%.
Með 30% lækkun þessara vara,
sem verður að telja víðs fjarri því
sem raunhæft má telja, yrði lækkun
útgjalda 1,5%.
Nefna má að útgjöld vegna póst-
og símakostnaðar eru álíka mikil og
til kjöt- og grænmetiskaupa sam-
tals (3,8% á móti 3,9% árið 2010).
Útgjöld vegna ferða og flutninga
vega viðlíka þungt og matvöruliður-
inn (án drykkjarvöru) í heild sinni.
Tollalækkun hefði ekki mikil áhrif
á útgjöld íslenskra heimila
Af þessu má ráða að þótt allir tollar
á búvörur frá ESB-löndunum myndu
falla niður við aðild Íslands að sam-
bandinu er ekki hægt að búast við
miklum áhrifum á útgjöld íslenskra
heimila. Í áðurnefndri skýrslu er ein-
mitt vikið að því að brauð og brauð-
vörur séu mun ódýrari í ESB en hér
á landi og er munurinn síst minni
en á öðrum matvörum þótt ekki séu
lagðir tollar á hráefni til brauðgerðar
eða aðrar innfluttar kornvörur. Til að
ná 1,5% lækkun á útgjöldum heimil-
anna þyrfti að koma til 30% lækkun
á verði mjólkurafurða og kjötvara,
sem í allri sanngirni verður að teljast
langt fjarri lagi. Er það virkilega
þess virði að setja íslenskan land-
búnað, hundruð starfa og matvæla-
framleiðslu í landinu í uppnám fyrir
svo lágar upphæðir? Starfsemi sem
þar að auki spilar stórt hlutverk sem
aðdráttarafl landsbyggðarinnar fyrir
ferðamenn og tengist náið atvinnu-
grein sem skilar þriðjungi gjald-
eyristekna þjóðarbúsins.
Enn af vægi búvara í útgjöldum heimilanna Erna Bjarnadóttir
hagfræðingur Bændasamtaka Íslands
eb@bondi.is
Vægi búvara í útgjöldum
Framleiðsla og sala búvara í október*
okt. 2011
2011
ágúst 2011-
okt. 2011
nóv. 2010-
okt. 2011
Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
Framleiðsla október 2010 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán.
Alifuglakjöt 639.266 1.904.740 7.104.332 21,9 24,3 1,7 25,9%
Hrossakjöt 61.095 188.472 827.754 -22,3 5,9 -0,9 3,0%
Nautakjöt 351.816 1.023.906 3.813.081 10,9 5,5 -0,8 13,9%
Kindakjöt 5.138.092 9.288.050 9.591.807 5,3 4,8 5,0 35,0%
Svínakjöt 509.988 1.546.277 6.054.581 3,3 -2,5 -2,0 22,1%
Samtals kjöt 6.700.257 13.951.445 27.391.555 6,5 6,3 1,5
Innvegin mjólk 9.492.812 29.615.160 123.477.405 6,6% 5,0% -0,1%
Sala innanlands
Alifuglakjöt 579.405 1.849.337 6.980.554 7,7 5,8 -3,9 30,0%
Hrossakjöt 39.952 131.274 505.800 -22,6 19,5 -13,4 2,2%
Nautakjöt 361.284 1.025.305 3.830.778 17,2 6,6 -0,2 16,5%
Kindakjöt * * 1.085.368 2.369.656 6.025.258 3,4 -0,1 -2,5 25,9%
Svínakjöt 483.389 1.480.650 5.918.505 -5,8 -6,6 -1,9 25,4%
Samtals kjöt 2.549.398 6.856.222 23.260.895 3,6 1,2 -2,7
Sala mjólkur á
próteingrunni 8.640.994 27.173.026 110.976.491 -0,8% 0,7% 0,3%
Sala mjólkur
á fitugrunni 9.039.751 28.481.768 113.690.062 -2,9% -1,0% -0,7%
* Bráðabirgðatölur
** Sala á kindakjöti pr. mánuð er sala frá afurðastöðvum til kjötvinnsla og verslana.
Framleiðsla á kjöti í október var
6,6% meiri en í sama mánuði 2010.
Auking var í framleiðslu allra
kjöttegunda nema hrossakjöts.
Framleiðsla kjöts sl. 12 mánuði
nemur 27.392 tonnum, þar af var
framleiðsla kindakjöts 9.592 tonn
sem er 5% aukning frá næstu 12
mánuðum þar á undan.
Minni breytingar voru á fram-
leiðslu annarra kjöttegunda á tólf
mánaða tímabilinu. Sala kjöts í
október var 3,6% meiri en í fyrra
á heildina litið en samdráttur var
í sölu hrossakjöts og svínakjöts.
Síðastliðna 12 mánuði var kjötsala
23.261 tonn. Birgðir af kindakjöti
voru 11,2% meiri í lok október en á
sama tíma í fyrra.
Innvigtun mjólkur var 6,6% meiri
í október en sama mánuði í fyrra
en sl. 12 mánuði er innvigtun nær
óbreytt frá næstu 12 mánuði á undan.
Sala á próteingrunni sl. 12 mánuði
var 113,7 milljónir lítra, sem er 0,7%
samdráttur en sala á fitugrunni var
rétt tæpar 111 milljónir lítra, 0,3%
aukning. Sala drykkjarmjólkur og
sýrðra mjólkurvara dróst saman um
4,6% og á skyri um 1,8%. Hins vegar
jókst sala rjóma um 3% og á osti um
3,6% Nýlega var tekin ákvörðun um
að greiðslumark ársins 2012 skyldi
verða 114,5 milljónir lítra, en salan
nú er nokkuð undir þeim væntingum
sem þar voru gerðar.
Innflutt kjöt Árið 2011 Árið 2010
Tímabil janúar - september
Alifuglakjöt 493.549 228.235
Nautakjöt 397.607 94.869
Svínakjöt 184.060 98.242
Aðrar kjötvörur
af áðurtöldu
31.652 25.998
Samtals 1.106.868 447.344
Framleiðsla kindakjöts sl. 12 mánuði
var 9.592 tonn sem er 5% aukning
frá næstu 12 mánuðum þar á undan.
Þann 14. nóvember sl. birti utan-
ríkisráðuneytið á heimasíðu
sinni, skýrslu um stöðu íslensks
landbúnaðar gagnvart aðild að
Evrópusambandinu, áhrif á tekjur
og stuðning og væntanlega stuðn-
ingsþörf. Markmið skýrslunnar
var að fjalla um stöðu íslensks
landbúnaðar gagnvart evrópu-
sambandsaðild, hvernig umgjörð
um hann myndi breytast og hag-
ræn áhrif inngöngu á rekstrarskil-
yrði ólíkra greina landbúnaðarins.
Megin viðfangsefni skýrslunnar
var því að meta líklega lækkun á
skilaverði til bænda ef tollar yrðu
afnumdir á innfluttar búvörur frá
ESB löndum.
Reynsla garðyrkjunnar
Til að meta þetta er horft til verðs
til framleiðenda í ESB löndum,
flutningskostnaðar og þess að neyt-
endur munu að einhverju marki vera
tilbúnir að greiða hærra verð fyrir
innlendar búvörur en innfluttar.
Reynsla íslenskra garðyrkju-
bænda af afnámi tolla á tómata,
gúrkur og papriku sýndi að neyt-
endur reyndust tilbúnir til að greiða
um 10% hærra verð fyrir grænmeti
sem ræktað er hér á landi. Verð til
bænda myndi ennfremur ráðast af
vinnslukostnaði hér á landi og getu
vinnslufyrirtækjanna til að draga
úr þeim kostnaði til að mæta sam-
keppni.
Ef vinnslufyrirtækin eru ekki
í stakk búin til að lækka kostnað,
t.d. vegna smæðar sinnar, þá verða
bændur fyrir þeim mun meiri verð-
lækkun.
Svigrúm smásölunar eykst á
kostnað bænda
Afnám tollverndar myndi auka
svigrúm smásölunnar til að afla sér
aðfanga annarstaðar og bæta stöðu
sína á kostnað bænda. Þetta myndi að
öllum líkindum leiða til breytinga á
verðmyndun búvara þannig að stærri
hluti álagningar falli smásölunni í
skaut.
Reynsla Finna bendir til þess að
völd smásölunnar hafi aukist við inn-
göngu Finnlands í Evrópusambandið
og að vinnslu og smásölu hafi gengið
mun betur að viðhalda eigin álagn-
ingu en bændum. Verð til bænda
hefur því tilhneigingu að lækka meira
en verð til neytenda við breytingar
á framleiðsluskilyrðum. Þá þurfti að
leggja mat á líklegt langtímagengi
krónunnar.
Miðað við mat Seðlabanka
Íslands á raungengi og gengi evru um
þessar mundir er ekki fjarri lagi að
langtíma meðaltalsraungengi verði
náð við gengi evru um 120 kr/€.
Reynt er að taka tillit til fleiri þátta
sem nánar er rakið í skýrslunni.
Ekki tekið tillit til afleiddra áhrifa
Gert er ráð fyrir að þær greinar
sem eru samkeppnisfærar við inn-
flutning í dag muni einnig verða það
eftir afnám tollverndar. Samsetning
landbúnaðarframleiðslunnar er ein-
földuð til mikilla muna og áhrifin
á ólíka vöruflokka einungis metin
gróflega.
Ekki er tekið tillit til þess að sam-
dráttur í kjötvinnslu í einni grein
getur haft áhrif á vinnslukostnað
annarra greina.
Engin tilraun er gerð til að meta
áhrif krossteygni eftirspurnar á kjöti,
á þróun innanlandsmarkaðar og þar
með áhrif breytinga í framleiðslu-
skilyrðum í einni grein á afkomu
bænda í öðrum greinum.
Ekki er heldur lagt mat á hugs-
Staða íslensks landbúnaðar
gagnvart ESB-aðild
- Áhrif á tekjur og stuðning og væntanlega stuðningsþörf