Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 34
35Bændablaðið | fimmtudagur 24. nóvermber 2011
0%&
"1$%&
"
0%&
'
2
) 0 %
3"
0"*
!"#***'%'
Þessar gerðir eigum við til á lager.
Ath. heitgalvaniseruð grind.
Draumurinn ?
HÝSI-MERKÚR ehf.
Völuteig 7, Mosfellsbæ
Sími 534 6050
hysi@hysi.is / www.hysi.is
Stærð 5m x 9m
Mænishæð 3,15
843.000 m.vsk
Stærð 5m x 6m
Færanlegt, með eða án
framgafls
649.000 / 552.000 m. vsk
Stærð 5m x 9m
Mænishæð 3,65
1.089.000 m.vsk
anlegt hagræði eða breytingar á
aðfangakostnaði sem hugsanlega
gætu fylgt aðild. Að framansögðu er
ljóst að vandasamt er að áætla hvaða
áhrif það mundi hafa á skilaverð
til bænda ef opnað yrði fyrir frjáls
viðskipti við lönd ESB með land-
búnaðarvörur.
Niðurstöður:
Að þessum forsendum gefnum,
sem nánar er lýst í skýrslunni er
metið hverjar tekjur bænda yrðu á
því afurðaverði sem talið er að verði
eftir ESB aðild og hver stuðningsþörf
einstakra búgreina yrði til að tekjur
haldist óbreyttar eftir aðild. Í töflu 5
í skýrslunni er dregin saman stuðn-
ingsþörfin fyrir þær búgreinar sem
greiningin nær til og hún umreiknuð
gróflega í upphæðir miðað við fram-
leiðsluvirði búgreinanna árið 2010.
Þar kemur greinilega fram hve
umfangsmikill stuðningurinn þyrfti
að vera til þess að afkoma héldist
nokkurnveginn óbreytt.
Þyrfti mun hærri styrki
við aðild að ESB
Eins og áður hefur verið nefnt vantar
nokkrar búgreinar inn í þennan
samanburð. Þrátt fyrir það er niður-
staðan að verja þyrfti um 14.200
milljónum ISK á ári ef afkoma
bænda ætti ekki að rýrna við inn-
göngu í Evrópusambandið. Þetta
er töluvert hærra öllum núverandi
beinum stuðningi við landbúnaðinn,
sem nam rúmlega 9.000 milljónum
ISK árið 2010. Þessi stuðningur
nægir þó ekki ef verðlækkun til
bænda á að tryggja hag úrvinnslu-
iðnaðarins. Þess ber að gæta að
núverandi stuðningur er meðtalinn
í þeim fjárhæðum sem fram koma í
töflunni. Sundurliðun þessa er sýnd
á mynd 5 í skýrslunni. Um niður-
stöðurnar segir síðan:
„Stuðningsþörf búgreinanna
samkvæmt þessum niðurstöðum er
mjög ólík. Best koma framleiðsla
nautakjöts og garðyrkjan út. Þetta
skýrist bæði af því að skilaverð þess-
ara vara er þegar svipað eða lægra
en skilaverð í evrópusambandinu
og að stuðningur við þessar greinar
er óverulegur í dag, þó svo þessar
greinar njóti nokkurs stuðnings.
Á hinn bóginn er staða annara
greina til muna lakari. Stuðningsþörf
blómaræktenda er um 30% af veltu,
og svína- og sauðfjárbænda 40% og
50%.
Fyrir kúabændur og kjúklinga-
og eggjaframleiðendur er stuðnings-
þörfin á bilinu 44% til 53%. Ljóst er
að engin þessara búgreina er líkleg til
að lifa af svo umfangsmikinn sam-
drátt í tekjum án verulegra erfiðleika
í rekstri.“
Enn meira ef tryggja á vinnsluna
Þessir útreikningar taka ekki tillit
til þess að dýrara og erfiðara er að
halda í þann hluta framleiðslunna
sem fer í unnar afurðir en þann hluta
sem seldur er ferskur. Í skýrslunni er
lagt mat á hver stuðningurinn þyrfti
að vera til að tryggja samkeppnis-
stöðu vinnslunnar. Niðurstaðan er að
hann þyrfti að verða 15,7 milljarðar
króna, sjá töflu 6. í skýrslunni.
Í niðurlagsorðum skýrslunnar
segir síðan: „Niðurstöður saman-
burðar sýna að mikill munur er á
núverandi stöðu íslenskra bænda
og evrópskra starfsbræðra þeirra
m.t.t. stuðnings og markaðsverndar.
Mestu munar um þá umfangsmiklu
tollvernd sem meirihluti íslenskra
framleiðenda býr við.
Afnám tollverndar kallar á
verulega aukinn stuðning
Niðurstöður skýrslunnar sýna að
afnám hennar mundi hafa veruleg
áhrif á verð til bænda og framleiðslu-
samsetningu úrvinnsluiðnaðarins.
Miklar verðlækkanir þyrftu að
koma til ef óbreytt markaðshlutdeild
ætti að haldast. Slíkt mundi kalla á
umfangsmikla aukningu á stuðningi
við flestar greinar landbúnaðarins.
Niðurstöður mats á áhrifum aðild-
ar að ESB á afkomu bænda benda til
þess að stuðningsþörf íslensks land-
búnaðar eftir afnám innflutnings-
verndar muni liggja á bilinu 12,1 til
15,7 milljarðar, sem er umtalsvert
umfram þann beina stuðning sem
landbúnaðurinn nýtur í dag, rúmlega
9 milljarðar króna.“
Borum eftir heitu og köldu vatni um allt land
Liprir í samningum og hagstætt verð.
Bændur - Sumarhúsaeigendur
Upplýsingar gefur Guðni í síma 864-3313
og í netfangi: bjarnastadirehf@gmail.com