Bændablaðið - 07.04.2011, Síða 7
7Bændablaðið | fimmtudagur 7. apríl 2011
G
leðiefni er, hve viðbrögð eru
góð við vísnagátum þeim
er hér hafa birtst undan-
gengið. Í síðasta þætti birtist
vísnagáta eftir Friðjón Ólafsson,
þar sem hann yrkir í kringum
lausnarorðið „Reið“. Fyrst til
að reyna við lausnina var Ásta
Sverrisdóttir búandi á Ytri Ásum
í Skaftártungum. Ásta er dóttir
hjónanna Helgu Bjarnadóttur
og Sverris Sigurðssonar bænda
á Ljótarstöðum í Skaftártungum.
Ásta stjáklar lipurlega kringum
lausnarorðið með hjálagðri stöku:
Ég varð hrædd og hissa um leið!
Ég hélt að orðið væri „reið“.
En síðan allt mitt sefast angur,
því sennilega er lausnin „gang-
ur“.
Önnur lausn við vísnagátunni
barst frá Þórði Jóhannessyni
búsettum í Reykjavík, en ætt-
uðum frá Súgandafirði. Þórður
rataði rétt á lausnarorðið, og
sendir það í ferskeytluformi líkt
og Ásta. Vísan ber nokkur merki
karlmennsku, og því laus við
allan tepruskap:
Rímar lausnin rétt við „seyð“,
ríkan unað veitir skeið.
Ekki fresta nema í neyð
náttúrunnar þeysi„reið“.
Senn lýkur vetri, og sjást þess
merkin víða um land. Meira segja
virðist ögn farið að svía kringum
bóndann í Bólstaðarhlíð, Einar
Kolbeinsson. Allavega barst mér
vorleg visa frá Einari í formi sím-
skeytis:
Ólundin er mér svo marg-
meinuð í hverju spori,
enda heyri ég álftagarg
með óm af hlýju vori.
Til að vinda ögn ofanaf honum,
sendi ég honum til baka:
Víðar líka í vorið sér,
með veturinn í dreggjum,
og mófuglarnir margir hér
meira að segja á eggjum.
Varla hefur Einar þó verið jafn
upphafinn í gærkvöldi, þegar
hann á stikli við fé sitt, gekk fram
á nýborna á, tvílemda. Nokkurra
drýginda gætti þó er hann sendi
mér tíðindin:
Úti á túni undur sé,
opnast töfraheimur,
því nú hefur fjölgað fé
um 4 / 2.
Við þessi hin miklu tíðindi
hringdi ég óðar í Einar bónda, til
frekari tíðindaleitar. Sæll fannst
mér hann með burðinn, en vissi
þó engar skýringar á þessu bráð-
læti blessaðarar ærinnar. Þar sem
ég hef sjálfur haft nokkuð með
búskap að gera í Bólstaðarhlíð,
bæði um sauðburð og göngur,
fannst mér ég í fullum rétti með
að finna að þessu búskaparlagi,
enda vanur því að koma hrútum í
hald í tíma. Fannst mér Einar taka
tiltali um stund, en skömmu síðar
kom þó skýring hans í vísuformi:
Allir hrútar áttu að nást,
allt svo gengi í haginn,
en Árni Jónsson einmitt brást
eins og fyrri daginn.
Umsjón: Árni Jónsson
kotabyggd1@simnet.is
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Sýnir nýtt leikverk byggt á sögu Gauks Trandilssonar
Leikdeild ungmennafélags Gnúpverja:
Leikdeild ungmennafélags
Gnúpverja frumsýndi nýlega
í Árnesi Gaukssögu, nýtt leik-
verk sem byggt er á sögu Gauks
Trandilssonar, sem bjó á Stöng í
Þjórsárdal. Leikstjóri er Vilborg
Halldórsdóttir. Gaukur er talinn
hafa búið á Stöng á 10. öld, sagður
hafa verið hinn mesti kappi og
mikill kvennaljómi. Ástkona hans
er sögð hafa verið húsfreyjan á
Steinastöðum, sem var næsti bær.
Samkvæmt Njáls sögu sat
Ásgrímur Elliða-Grímsson, fóstur-
bróðir Gauks, fyrir honum við
Seggjasæti við Gaukshöfða og vó
hann þar, sbr. nafnið Gaukshöfði.
Að líkindum gerði hann þetta fyrir
það að Gaukur fíflaði húsfreyjuna
á Steinastöðum, sem var skyld
Ásgrími.
Næstu sýningar verða laugardag-
inn 9. apríl kl. 20:00, sunnudaginn
10. apríl kl. 15:00, föstudaginn 15.
apríl kl. 20:00, laugardaginn 16. apríl
kl. 20:00 og sunnudaginn 17. apríl
kl. 15:00. Almennt verð er 2.000 kr.
Heimasíða sýningarinnar er http://
gaukssaga.123.is/.
Hægt er að fá rammíslenska
kjötsúpu, brúntertu og kaffi fyrir
leiksýningar, pantanir hjá Gauta í
síma 863-5269.
/HMM
Þórður Freyr Gestsson, bóndi í Kálfhóli, mundar bogann í hlutverki Gauks
Trandilssonar.
Leikhópurinn í Gaukssögu, sem sýnd er í Félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Sýningin tekur rétt rúmlega klukkustund.
Það var mikið um dýrðir í
félagsheimilinu á Breiðumýri í
Þingeyjarsveit á dögunum þegar
söngleikurinn West Side Story
eða Saga úr vesturbænum, eins
og verkið heitir á íslensku, var
frumsýndur af félögum í leik-
deild ungmennafélagsins Eflingar
í Reykjadal.
Í sýningunni taka þátt 35 leikarar
og eru fjölmargir þeirra að stíga á
svið í fyrsta sinn. Þetta eru aðallega
nemendur í Framhaldsskólanum á
Laugum og nokkrir þeirra hafa þegar
töluverða reynslu þrátt fyrir ungan
aldur enda hefur fólk í Reykjadal
fegnið leiklistaruppeldi, danskennslu
og sungið í kórum allt frá því að það
var á leikskólaaldri. Allt þetta fólk fær
svo dyggilegan stuðning frá nokkrum
úr hópi eldri félaga og má nefna leik-
stjórann Arnór Benónýsson og bræð-
ur hans Hörð Þór Benónýsson og Jón
Friðrik Benónýsson, en leikstarfsemi
í sveitinni hefur mjög byggst upp í
krafti þeirra bræðra.
Tónlistarstjóri er Jaan Alavere en
hann hefur leikið með sinfóníuhljóm-
sveitum og annast tónlistarstjórn í
leikhúsum, verið við kórstjórn og
organistastörf. Honum til aðstoðar
eru þeir Pétur Ingólfsson sem leikur á
kontarabassa og Þórgnýr Valþórsson
sem leikur á trommur.
Félagsheimili breytt í
kaffileikhús
Arnór Benónýsson hefur leikstýrt
miklum fjölda verka fyrir leikdeild
Eflingar og má segja að hann hafi
séð um leiklistaruppeldi í sveitinni
síðast liðin ár. Þar er ekki einungis
um að ræða almenna leikstjórn því
honum hefur fylgt aukin þekking á
öllum störfum í leikhúsi svo sem
lýsingu, hljóðstjórn, búninga-og
leikmyndahönnun, förðun og hár-
greiðslu.
Á seinni árum hefur félags-
heimilinu á Breiðumýri verið
breytt í kaffileikhús, en Kvenfélag
Reykdæla selur veitingar fyrir sýn-
ingar og í hléi. Allur ágóði rennur
til góðgerðarmála og fólk drekkur
kaffi, fær vöfflur og spjallar saman
eins og gerist á kaffihúsum.
Margar sýningar eru framundan
og verður söngleikurinn sýndur
fram í miðjan apríl, en nánari upp-
lýsingar má finna á slóðinni www.
leikdeild.is
/MÞÞ
Leikdeild ungmennafélagsins Eflingar í Reykjadal:
Saga úr vesturbænum sýnd á Breiðumýri
Hörður Þór Benónýsson í hlutverki sínu með hákarlagenginu.