Fréttablaðið - 23.02.2012, Side 10

Fréttablaðið - 23.02.2012, Side 10
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR10 VILL VIÐURKENNINGU Nepalbúinn Chandra Bahadur Dangi, sem er 72 ára gamall og 56 sentimetra hár, býr sig undir ferðalag til höfuðborgarinnar Katmandú til að fá staðfestingu þess að hann sé minnsti maður heims. NORDICPHOTOS/AFP Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 66 11 eða hjá næsta umboðsmanni. DRÖGUM 24. FEBRÚAR Nú er vinningurinn 2O milljónir á einn miða. Í hverri Milljónaveltu drögum við að auki út 5 stakar milljónir, aðeins úr seldum miðum. MILLJÓNAVELTAN VELTUR ÁFRAM! NÚ KEYRUM VIÐ ÚT MILLJÓNIR ÍRAN Sendinefnd Alþjóðakjarn- orkustofnunarinnar segist ekki hafa haft erindi sem erfiði í tveggja daga heimsókn sinni til Írans í vikunni. Beiðni þeirra um að fá að skoða herstöðina í Parchin var hafnað af írönskum stjórnvöldum. Þá tókst ekki samkomulag um orðalag skýrslu, þar sem farið yrði yfir óleyst deilumál varðandi kjarnorkuáform Írana. „Við tókum þátt í uppbyggileg- um anda, en ekkert samkomu- lag tókst,“ segir Yukiya Amano, framkvæmdastjóri stofnunar- innar. „Það eru vonbrigði að Íranar féllust ekki á beiðni okkar um að heimsækja Parchin, hvorki á fyrri né seinni fundi okkar.“ Ali Khameini, erkiklerkur og æðsti leiðtogi Írans, ítrekaði hins vegar í gær að kjarnorkuáform landsins snerust ekki um að koma sér upp kjarnorkuvopnum, heldur væri tilgangurinn friðsamlegur. Hann sagði í sjónvarpsávarpi í gær að leiðtogar Vesturveldanna vissu fullvel „að við erum ekki á höttunum eftir kjarnorkuvopnum vegna þess að íslamska lýðveld- ið Íran lítur á það sem synd að eiga kjarnorkuvopn“. Hann sagði Írana líta svo á að það sé bæði „gagnslaust, skaðlegt og hættu- legt“ að vera með slík vopn. Á hinn bóginn sagði hann að sá árangur, sem íranska þjóðin hefði náð í kjarnorkuvinnslu, hafi fært þjóðinni bæði virðingu og stolt. Auk þess færi kjarnorkuvopn þjóðinni engin völd. Vaxandi þrýstingur hefur verið á Íran frá Vesturlöndum vegna þess að írönsk stjórnvöld hafa ekki sýnt kjarnorkustofnun Sam- einuðu þjóðanna fulla samvinnu. Jafnframt hafa orðið háværari raddir um að hugsanlega verði gerðar árásir á Íran til að stöðva kjarnorkuáform þeirra. Helst hefur þá komið til tals að Ísra- elar hugsi sér til hreyfings og séu jafnvel þegar farnir að undirbúa árásir á kjarnorkubúnað Írans. Nú síðast í gær hafa Rússar varað Ísraela við því að gera árás á Íran. „Að sjálfsögðu myndi hvers kyns hernaður gegn Íran hafa skelfilegar afleiðingar fyrir þennan heimshluta og fyrir öll alþjóðasamskipti,“ sagði Gennadí Gatilov, aðstoðarutanríkisráð- herra Rússlands, á blaðamanna- fundi í Moskvu í gær. „Ég vona að Ísraelar átti sig á öllum þessum afleiðingum,“ sagði hann enn fremur, „og þeir ættu einnig að hugleiða afleið- ingar slíkra aðgerða fyrir sig sjálfa.“ gudsteinn@frettabladid.is Tveggja daga heimsókn SÞ til Íran skilaði ekki árangri Kjarnorkueftirlit SÞ segir það vonbrigði að Íranar hafi ekki viljað leyfa skoðun herstöðvar í Parchin. Leið- togi Írans segir syndsamlegt að eiga kjarnorkuvopn. Rússar vara Ísrael við árásum á kjarnorkubúnað Írans. STOLTUR AF KJARNORKUAFREKUM Ali Khameini, erkiklerkur Írans, á fundi með írönskum kjarneðlisfræðingum þar sem hann sagði þeim að halda áfram sínu mikil- væga starfi. NORDICPHOTOS/AFP SVÍÞJÓÐ Sænskur maður, sem fannst í bíl sínum á föstudag eftir að hafa verið fastur í tvo mánuði, hafði búið í bílnum frá því um mitt síðasta ár. Þetta segja sænskir fjölmiðlar. Maðurinn heitir Peter Skyll- berg og er 44 ára gamall. Honum var bjargað úr bílnum, sem hafði snjóað inni á fáförnum vegi. Skyll- berg segist ekki hafa borðað síðan 19. desember, þegar bíllinn festist. Hann segist hafa lifað á snjó, en hann er mjög máttfarinn og hefur lítið getað tjáð sig við lögreglu. Verslunareigandi í nágrenni við staðinn þar sem maðurinn fannst hefur sagt við fjölmiðla að maðurinn hafi vanið komur sínar þangað í byrjun sumars. Hann hafi sagst búa í skóginum og sofa ýmist í tjaldi eða í bílnum. Hann hafi misst vinnuna sem smiður í Örebro. Aftonbladet hefur einnig eftir ónafngreindum manni sem þekkir Skyllberg að hann hafi verið skuldum vafinn og lánar- drottnar verið á eftir honum. Hann hafi því látið sig hverfa í maí og ekki látið heyra í sér síðan. Efasemdir hafa vaknað um að maðurinn hafi í raun lifað í 60 daga án matar. Prófessor í næringar- fræði við Uppsalaháskóla segir að ólíklegt sé að fólk geti lifað svona lengi án matar, en mögulegt sé að kuldinn hafi hjálpað til. Frostið náði allt að 30 gráðum. - þeb Efasemdir um sögu Svíans sem bjó í bíl: Missti vinnuna og bjó í bílnum BÍLLINN Bíll mannsins fannst á þessum fáfarna vegi fyrir helgi, en vegurinn er aðeins ruddur nokkrum sinnum á ári. NORDICPHOTOS/AFP FRAKKLAND Yfirheyrslum yfir Dom- inique Strauss-Kahn, fyrrverandi yfirmanni Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins, var haldið áfram í gær í Frakk- landi, þar sem hann hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan á þriðjudag. Strauss-Kahn er grunaður um að hafa stundað svallveislur, bæði í París og í Washington, þar sem vændiskonur voru meðal gesta. Rannsókn lögreglunnar snýst eink- um um það hvort vændishringur hafi útvegað vændiskonur í veislur á Carlton-hótelinu í borginni Lille. Strauss-Kahn gæti átt yfir höfði sér ákærur fyrir að hafa misnotað fé, komi í ljós að borgað hafi verið fyrir svallveislurnar með fé frá fyrirtækjum. Þetta er í annað sinn sem Strauss-Kahn situr í fangelsi grun- aður um kynferðistengd brot. Mál gegn honum í New York fyrir nauðgun á hótelþernu síðastliðið vor var fellt niður. Sjálfur segist Strauss-Kahn ekkert hafa brotið af sér. Einn lögmanna hans sagði nýverið í útvarpsviðtali að Strauss- Kahn hafi ekki vitað að konurnar væru vændiskonur: „Hann hefði ekki getað áttað sig auðveldlega á því, enda er fólk ekki alltaf í fötum í svona veislum, eins og þú getur ímyndað þér, og ég skora á þig að sjá muninn á naktri vændiskonu og öðrum nöktum konum.“ - gb Situr í gæsluvarðhaldi í Frakklandi vegna gruns um tengsl við vændishring: Strauss-Kahn aftur í vanda STRAUSS-KAHN Öðru sinni settur í fangelsi vegna gruns um kynferðisbrot. NORDICPHOTOS/AFP NOREGUR Haraldur Noregskonung- ur og Sonja drottning munu prýða nýja mynt sem Seðlabanki Noregs ætlar að búa til í tilefni af 75 ára afmælum hjónanna á árinu. Myntin verður úr silfri og verða í mesta lagi slegin fjörutíu þúsund stykki af henni. Myntin verður 200 norskar krónur. Haraldur konungur verður 75 ára á mánudag, en mun ekki halda upp á afmælið. Hann hyggst vera í útlöndum á afmælisdaginn og vilji ekki halda upp á daginn. - þeb Noregskonungur 75 ára: Slá nýja mynt fyrir konung MÁLÞING Forvarnarstarf í kyn- ferðisbrotum gegn börnum er samfélaginu nauðsynlegt og sparar til lengri tíma mikið fjármagn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrir- lestri Sigríðar Björnsdóttir, verkefnastjóra Blátt áfram, á málþinginu Framtíð barna sem haldið verður í Öskju í Háskóla Íslands í dag. „Við munum á þessu ári standa fyrir fræðandi brúðu- leikhússýningum í öllum grunn- skólum landsins fyrir börn í 2. bekk og svo bjóðum við einn- ig upp á námskeiðið Verndari barna fyrir fullorðna. Okkur vantar aukið fjármagn til að geta rannsakað áhrif forvarna- starfs okkar en við teljum okkur geta sýnt fram á umtalsverðan árangur á þeim sjö árum sem við höfum starfað,“ segir Sig- ríður. Íslenskar rannsóknir hafa sýnt fram á að 27% barna hafa fyrir 18 ára aldur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Sigríður bendir á mikilvægi þess að fag- aðilar þekki þau varúðarmerki sem kunna að birtast hjá fórnar- lömbum kynferðisofbeldis. - bg Málþing um velferð barna: Forvarnir spara umtalsvert fé SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.