Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.02.2012, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 23.02.2012, Qupperneq 42
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR34 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Nú er tími tónlistarverðlaunanna. Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Hörpu í næstu viku, Brit-verðlaunahátíðin var á þriðjudags- kvöldið og Grammy-verðlaunin fyrir nokkrum dögum. Hér á Íslandi eru verðlaunaflokkarnir um tuttugu og finnst sumum nóg um. Það er þó ekk- ert miðað við Grammy-flokkana sem eru 78 talsins. Það skal samt viður- kennt að markaðurinn er aðeins stærri vestanhafs … Það eru að sjálfsögðu veitt Grammy-verð- laun fyrir bestu lög og plötur í mörgum flokkum, en líka fyrir ýmislegt annað, t.d. upptökustjórn og hljóðblöndun. Sem dæmi má nefna að plata Bookers T. Jones, The Road From Memphis, var valin besta instrúmen- tal poppplatan, Tassili með Tinariwen besta heimstónlistarplatan, samnefnd plata Bon Iver besta jaðartónlistarplatan og Paper Airplane með Alison Krauss og Union Station besta blúgrass-platan. Endurútgáfurnar voru líka verðlaunaðar: Viðhafnarútgáfan af Dark- ness on the Edge of Town með Bruce Spring- steen fékk verðlaun fyrir besta endurútgáfupakkann, Band on the Run með Wings var valin besta sögulega platan og texti Adams Machado um blús í San Francisco-flóa á sjöunda áratugnum var valinn besti plötutext- inn … Einn af sigurvegurum kvöldsins á Grammy-hátíðinni var hinn 24 ára gamli Sonny John Moore, sem kallar sig Skrillex. Hann fékk þrenn verð- laun. Besta danstónlistarlagið (Scary Monsters & Nice Sprites), besta raftónlistarplatan (S.M. & N.S.) og besta endurgerðin (remix) fyrir lagið Cinema með Benny Benassi. Skrillex byrjaði í bransanum árið 2004 sem meðlimur í hljómsveitinni From First to Last. Hann gerði fyrstu EP-plötuna sem Skrillex árið 2010 (My Name Is Skrillex) og verðlaunaplatan Scary Monsters & Nice Sprites kom út í árslok það ár. Það er líka EP-plata, en fyrsta platan hans í fullri lengd, Voltage, er væntanleg fljótlega. Tónlist Skrillex er hreinræktuð partítónlist, enda hafa vinsældir hans aukist mikið undanfarið. Á Facebook eru þegar tvær íslenskar síður með nafninu „Við viljum Skrillex til Íslands“. Tími tónlistarverðlaunanna HEITUR Skrillex fékk þrenn Grammy-verðlaun. Fyrsta sólóplata Jacks White, fyrrum forsprakka The White Stripes, nefnist Blunder bluss og kemur út 24. apríl. Fyrsta smáskífulagið, Love Interruption, er komið út en þar syngur White dúett með söng- konunni Ruby Amanfu sem fæddist í Gana en býr í Nashville. Lagið er lágstemmt og undir áhrifum sveitatónlistar. Það þykir meira í anda hliðarverkefnis White, The Raconteurs, heldur en The White Stripes. Meðal annarra laga á plötunni eru Miss- ing Pieces, Freedom at 21 og Hypocritical Kiss. White segist ekki hafa getað gefið út plötuna fyrr en núna. „Ég hef frestað því að gefa út plötur undir eigin nafni í langan tíma vegna þess að þessi lög eru þann- ig gerð að einungis ég hefði getað gefið þau út,“ sagði White. Til að kynna plötuna kemur White fram í sjónvarpsþættinum Saturday Night Live 3. mars. Blunderbluss frá White FYRSTA SÓLÓPLATAN Jack White gefur út sína fyrstu sólóplötu í apríl. Popparinn Ed Sheeran hlaut tvenn Brit-verðlaun á dög- unum. Fyrsta sólóplatan hans náði efsta sæti breska vinsældalistans. Ed Sheeran er ungur enskur tón- listarmaður sem hefur slegið í gegn í Bretlandi að undanförnu með hugljúfu poppi og hlýlegri rödd sinni. Honum hefur verið líkt við John Mayer, Damien Rice og James Morrisson og er talinn eiga framtíðina fyrir sér. Brit-tónlistarverðlaunin voru haldin í Bretlandi á þriðjudags- kvöld og þar var Sheeran tilnefnd- ur til flestra verðlauna, eða fernra. Á endanum hlaut hann tvenn verð- laun, sem besti breski nýliðinn og besti breski tónlistarmaðurinn. Aðrir tilnefndir í síðarnefnda flokknum voru engir aukvisar, eða Noel Gallagher, James Morrison, James Blake og Professor Green. Sheeran fæddist í Halifax á Eng- landi árið 1991. Ungur að aldri lærði hann að spila á gítar og semja lög. Fyrsta EP-platan hans, The Orange Room, kom út 2005 þegar hann var einungis fjórtán ára. Fleiri stuttskífur fylgdu í kjöl- farið og árið 2008 flutti Sheeran til London til að einbeita sér að spila- mennsku. Hann var sérlega dug- legur og spilaði nánast upp á hvern einasta dag. Þessi kraftur skilaði sér því smám saman fór hann að vekja athygli og stuttskífan Loose Change sem kom út 2009 þótti vel heppnuð. Hann hætti hjá útgáfu- fyrirtæki sínu og flaug til Los Angeles þar sem hann vakti áhuga leikarans og tónlistarmannsins Jamie Foxx þegar hann spilaði á staðnum hans The Foxxhole. Aðdá- endahópur Sheerans hélt áfram að vaxa með hjálp Youtube og árið 2010 gaf hann sjálfur út tvær stutt- skífur sem fengu góðar viðtökur og aðra til viðbótar árið eftir. Útsendarar frá útgáfunni Asyl- um/Atlantic Records gerðu við hann samning og síðasta sumar kom fyrsta smáskífulagið hans út, The A Team, sem fór beint í þriðja sæti breska vinsældalistans. Fyrsta hljóðversplatan, You Need Me, kom svo út í september og náði hún efsta sætinu í Bret- landi. Sheeran er á leiðinni í stóra tónleikaferð um Evrópu og Banda- ríkin sem hefst 3. mars í Ósló. Í Bandaríkjunum hitar hann upp fyrir bresku hljómsveitina Snow Patrol. freyr@frettabladid.is Hugljúfur og harðduglegur Á UPPLEIÐ Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran er á mikilli uppleið í tónlistarbransanum. Hann hlaut tvenn Brit-verðlaun á dögunum. NORDICPHOTOS/GETTY Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 16. febrúar- 22. febrúar 2012 LAGALISTINN Vikuna 16. febrúar - 22. febrúar 2012 Sæti Flytjandi Lag 1 Of Monsters And Men .................................Lakehouse 2 The Black Keys .............................................. Lonely Boy 3 Retro Stefson.........................................................Qween 4 Valdimar Guðm. / Helgi Júlíus ......Stöndum saman 5 Magni .................................................................... Hugarró 6 Blár ópal ..........................................................Stattu upp 7 Foster The People ................... Call It What You Want 8 Lana Del Rey ................................................Born To Die 9 Kelly Clarkson ......................................................Stronger 10 Greta Salóme / Jónsi ........................Mundu eftir mér Sæti Flytjandi Plata 1 Ýmsir ....................... Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012 2 Mugison .................................................................... Haglél 3 Of Monsters And Men ..........My Head Is An Animal 4 Adele................................................................................. 21 5 Leonard Cohen ................................................Old Ideas 6 Ýmsir ............. Einu sinni var / Út um græna grundu 7 Valgeir Guðjónsson ...................Spilaðu lag fyrir mig 8 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorl. ........ Ásamt Sinfó 9 Friðrik Karlsson & María Ellingsen ...................... Jóga 10 Paul McCartney .......................Kisses On The Bottom > PLATA VIKUNNAR Low Roar - Low Roar ★★★★ „Kaliforníumaðurinn og Reykvíkingur- inn Ryan Karazija með firnasterka frumsmíð.“ - TJ > Í SPILARANUM Bruce Springsteen - Wrecking Ball Muck - Slaves Emeli Sandé - Our Version of Events Burial - Kindred EP Opið hús í Tónlistarskóla FÍH Í tilefni Dags Tónlistarskólanna laugardaginn 25. febrúar n.k. verður opið hús í Tónlistarskóla FÍH að Rauðagerði 27 frá kl. 14:00 – 16:00. Gestum og gangandi er boðið að koma og skoða skólann, hlýða á tónlist og njóta léttra veitinga. Boðið verður upp á fjölbreytta efnisskrá samspilsbanda, söng- og einleiksatriða sem í gangi verða í tveimur sölum skólans samtímis. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.