Fréttablaðið - 23.02.2012, Page 50
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR42
sport@frettabladid.is
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR spilaði síðustu 30 mínúturnar er lið hennar, Turbine Potsdam, gerði
óvænt 1-1 jafntefli við Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Var þetta fyrsti leikur Margrétar Láru með liðinu en
hún fékk tvö góð færi í leiknum sem henni tókst ekki að nýta. Potsdam mætir næst Leverkusen á sunnudaginn.
Iceland Express-d. kvenna
Fjölnir - Valur 67-79
Snæfell - Haukar 77-75
Njarðvík - KR 78-71
Keflavík - Hamar 73-61
STAÐAN
Keflavík 23 19 4 1816-1588 38
Njarðvík 23 17 6 1914-1708 34
Haukar 23 12 11 1698-1653 24
Snæfell 23 12 11 1630-1698 24
KR 23 12 11 1696-1592 24
Valur 23 9 14 1675-1738 18
Hamar 23 6 17 1584-1746 12
Fjölnir 23 5 18 1618-1898 10
Meistaradeild Evrópu
FC Basel - Bayern München 1-0
Marseille - Inter 1-0
Evrópudeild UEFA
Manchester City - Porto 4-0 (6-1)
1-0 Sergio Agüero (1.), 2-0 Edin Dzeko (76.),
3-0 David Silva (84.), 4-0 David Pizarro (86.)
Þýska úrvalsdeildin
Kiel - Rhein-Neckar Löwen 33-25
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Kiel en
Róbert Gunnarsson ekkert fyrir Rhein-Neckar
Löwen. Alfreð Gíslason þjálfar Kiel en Guð-
mundur Guðmundsson stýrir liði Löwen.
Grosswallstadt - Bergischer HC 24-23
Sverre Jakobsson lék í vörn Grosswallstadt en
Rúnar Kárason skoraði eitt mark fyrir Bergische.
Wetzlar - Füchse Berlin 26-28
Kári Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Wetzlar.
Alexander Petersson lék ekki með Berlín vegna
meiðsla en Dagur Sigurðsson er þjálfari liðsins.
STAÐA EFSTU LIÐA
Kiel 21 21 0 0 +181 42
Füchse Berlin 21 17 1 3 +74 35
Hamburg 20 16 0 4 +89 32
Flensburg 20 15 0 5 +62 30
RN Löwen 21 14 1 6 +60 29
Magdeburg 20 12 0 8 +31 24
Lemgo 20 12 0 8 +4 24
Lübbecke 20 9 1 10 -5 19
Danska úrvalsdeildin
Skive - AG Kaupmannahöfn 17-28
Arnór Atlason skoraði eitt mark fyrir AG en þeir
Guðjón Valur Sigurðsson, Snorri Steinn Guðjóns-
son og Ólafur Stefánsson skoruðu ekki í leiknum.
Bjerringbro/Silkeborg - Viborg 27-29
Guðmundur Árni Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir
Bjerringbro/Silkeborg í leiknum.
STAÐA EFSTU LIÐA
AG 21 18 1 2 +113 37
Bjerr/Silkeb. 21 13 2 6 +59 28
Kolding 20 13 2 5 +21 28
Team Tvis 20 10 5 5 +58 25
Skjern 20 10 3 7 -5 23
Álaborg 20 10 2 8 +42 22
Árósir 20 8 2 10 0 18
Viborg 21 7 3 11 -40 17
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Marta frá Brasilíu, besta
knattspyrnukona heims, skrifaði
í gær undir tveggja ára samning
við sænska úrvalsdeildarfélagið
Tyresö. Hún var án félags eftir
að tímabilið í Bandaríkjunum var
blásið af fyrir tæpum mánuði.
Samkvæmt sænskum fjölmiðl-
um fær Marta eina milljón doll-
ara fyrir tímabilið eða 124 millj-
ónir króna. Eru það einstakar
tölur í heimi kvennaknattspyrn-
unnar en ljóst er að forráða-
menn Tyresö ætla sér stóra hluti
á komandi tímabili. Hefur liðið
fengið til sig marga sterka leik-
menn þar að auki.
Marta táraðist á blaðamanna-
fundi Tyresö í gær. „Ég er svo
ánægð með að vera komin aftur
til Svíþjóðar. Þegar ég fór til
Bandaríkjanna gerði ég mér
grein fyrir því að Svíþjóð væri
mitt annað heimili. Þetta er besta
deild í heimi og hér líður mér
vel,” sagði hún.
Marta er 25 ára gömul og hefur
fimm sinnum verið kosin besta
knattspyrnukona heims. Hún lék
með Umeå frá 2004 til 2008 og
skoraði þá 111 mörk í 103 deildar-
leikjum. Varð hún fjórum sinnum
sænskur meistari. - esá
Sænski kvennaboltinn:
124 milljónir
fyrir Mörtu
MARTA Táraðist á blaðamannafundi
Tyresö í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Manchester City fór létt
með andstæðing sinn í 32-liða
úrslitum Evrópudeildar UEFA en
liðið vann 6-1 samanlagðan sigur
á Porto frá Portúgal, ríkjandi
meistara í Evrópudeildinni. Liðin
mættust í Manchester í gær og
vann City þá 4-0 stórsigur.
Sergio Agüero kom City yfir
eftir nítján sekúndur en þeir
Edin Dzeko, David Silva og David
Pizarro skoruðu hin mörk liðsins á
síðasta stundarfjórðungi leiksins.
„Þetta var frábær sigur,” sagði
fyrirliðinn Vincent Kompany
eftir leikinn í gær. „Við sýndum í
dag að okkur er full alvara í þess-
ari keppni. Það er frábært að slá
ríkjandi meistara úr leik með 4-0
sigri. Það eru mjög góð úrslit. Ég
held að við höfum ekki verið upp
á okkar besta í kvöld en við gerð-
um það sem þurfti til. Frammi-
staða okkar bar merki um mikinn
þroska,” sagði Kompany.
32-liða úrslitunum lýkur með
fimmtán leikjum í kvöld en City
mætir sigurvegaranum úr leik
Legia Varsjá og Sporting Lissa-
bon í 16-liða úrslitunum. - esá
Evrópudeild UEFA:
City komst auð-
veldlega áfram
PIZARRO Skoraði fjórða og síðasta mark
City í gær. Hér fagnar hann því.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Alfreð náði yfirhöndinni í
einvíginu gegn Guðmundi
Kiel vann nokkuð þægilegan sigur á Rhein-Neckar Löwen í stórslag liðanna
í þýsku úrvalsdeildinni í gær, 33-25. Þetta var 21. sigur liðsins í jafnmörgum
leikjum í deildinni sem er vitanlega met. Yfirburðir Kiel eru með ólíkindum.
HANDBOLTI Kiel er enn með fullt
hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni
eftir átta marka sigur á Rhein-
Neckar Löwen á heimavelli í gær,
33-25. Alfreð Gíslason er þjálf-
ari Kiel og hefur náð ótrúlegum
árangri með liðið á tímabilinu en
liðið hefur unnið 21 leik á tíma-
bilinu. Ekkert lið hefur byrjað
betur í sögu deildarinnar.
Kiel vann síðustu þrjá leiki sína
á síðasta tímabili og sigrarnir eru
því orðnir 24 í röð.
Alfreð og Guðmundur Guð-
mundsson, þjálfari Löwen, voru
búnir að mætast fimm sinnum með
lið sín fyrir leikinn í gærkvöldi
og voru með jafnan árangur. Lið
Alfreðs var búið að vinna tvo leiki,
lið Guðmundar var búið að vinna
tvo leiki og einum leik hafði lyktað
með jafntefli.
Rhein-Neckar-Löwen vann báða
deildarleiki liðanna í fyrra en
Alfreð er nú kominn með undir-
tökin í einvígi þessara kappa sem
léku lengi saman í íslenska lands-
liðinu á sínum tíma.
Rhein-Neckar Löwen komst
yfir, 2-1, í gær en þá tók tékk-
neska skyttan Filip Jicha leikinn í
sínar hendur. Hann skoraði fjögur
fyrstu mörk Kiel í leiknum og kom
sínum mönnum yfir. Heimamenn
létu forystuna aldrei af hendi eftir
það og skoraði Jicha alls tíu mörk
í leiknum.
Skoruðu ekki í tíu mínútur
Miklu munaði um tíu mínútna
kafla um miðbik hálfleiksins þar
sem Löwen náði ekki að skora eitt
einasta mark. Ekkert gekk upp
í sóknarleik liðsins, sama hvað
Guðmundur reyndi. Að sama skapi
gekk allt upp hjá Kiel og skipti
engu hvaða leikmönnum Alfreð
tefldi fram hverju sinni.
Kiel brunaði fram úr og náði
átta marka forystu, 14-6. Staðan
var svo 17-9 í hálfleik en leikur-
inn var aldrei spennandi í síðari
hálfleiknum. Aron Pálmarsson
fékk sínar mínútur og skoraði eitt
mark en Róbert Gunnarsson náði
ekki að komast á blað hjá Löwen,
þó svo að hann hafi mikið spilað í
seinni hálfleik. Uwe Gensheimer
var markahæstur hjá Löwen með
átta mörk í gær.
Mánuður í næsta toppleik hjá Kiel
Það er erfitt að sjá fyrir hvort og
þá hvenær Kiel tapar leik á tíma-
bilinu. Það er rúmur mánuður í að
liðið mæti næst einu af efstu liðum
deildarinnar en þá koma Dagur
Sigurðsson og lærisveinar hans í
Füchse Berlin í heimsókn. Berlín-
arrefirnir eru nú í öðru sæti deild-
arinnar.
Löwen er nú þremur stigum
frá þriðja sæti deildarinnar sem
er það síðasta sem veitir þátt-
tökurétt í Meistaradeild Evrópu á
næstu leiktíð. Það er því hörð bar-
átta fram undan fyrir Guðmund og
félaga ef liðið ætlar sér að komast
í keppni þeirra bestu. - esá, óój
Einvígi liða Alfreðs og Guðmundar
THW Kiel gegn Rhein-Neckar Löwen:
Meistaradeildin, 21. nóvember 2010 Kiel vann 30-27
Meistaradeildin, 26. nóvember 2010 Jafntefli, 30-30
Þýska úrvalsdeildin, 1. desember 2010 Löwen vann 29-26
Þýska úrvalsdeildin, 6. apríl 2011 Löwen vann 33-31
Þýska úrvalsdeildin, 24. september 2011 Kiel vann 30-27
Þýska úrvalsdeildin, 22. febrúar 2012 Kiel vann 33-25
ÞJÁLFARAR Í FREMSTU RÖÐ Alfreð Gíslason og Guðmundur Guðmundsson stýra tveimur af stærstu handboltaliðum heims. Alfreð
hefur náð frábærum árangri með Kiel í vetur en liðið hafði betur gegn Guðmundi og lærisveinum hans í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í
knattspyrnu er komið til Japans
og æfði í Osaka í gær. Liðin
mætast í fyrramálið kl. 10.20 að
íslenskum tíma og verður leikur-
inn í beinni útsendingu á Stöð 2
Sport.
Leikurinn er sá fyrsti sem
Ísland leikur undir stjórn Lars
Lagerbäck en liðið mætir svo
Svartfjallalandi í æfingaleik á
föstudaginn. Enginn leikmanna
Íslands sem er í Japan mun spila
þann leik og fær því Lagerbäck
tækifæri til að sjá marga leik-
menn spila.
„Allir leikmennirnir í þessum
hópum eiga jafnan möguleika í
framtíðinni,“ sagði Lagerbäck í
viðtali á heimasíðu KSÍ. „Bæði
liðin sem við erum að fara að
spila við eru mjög sterk og er það
gott. Þá sér maður best úr hverju
leikmenn eru gerðir.“
Lagerbäck hefur ekki ákveð-
ið hvaða leikmaður verði fyrir-
liði Íslands í leiknum. „Fyrirliði
verður að njóta virðingar í leik-
mannahópnum og vera leiðtogi
bæði innan vallar sem utan,“
sagði hann. - esá
Landsliðið komið til Japans:
Óvíst hver verði
fyrirliði Íslands
FÓTBOLTI „Litla“ liðið frá Sviss, FC Basel, gerði sér
lítið fyrir og skellti þýsku risunum í Bayern Mün-
chen í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í gær. Valentin Stocker skoraði eina
mark leiksins um fimm mínútum fyrir lok venjulegs
leiktíma. Enn ein góðu úrslitin fyrir Basel í keppn-
inni en liðið sá til þess að Manchester United sat eftir
í riðlakeppninni.
Það var einnig dramatík í leik Marseille og Inter í
Frakklandi þar sem heimamenn tryggðu sér sigur-
inn með marki í uppbótartíma. Andre Ayew var þar
að verki með skalla af stuttu færi eftir hornspyrnu.
Marseille hefur nú leikið sextán leiki í röð án taps í
öllum keppnum.
Þetta er enn eitt áfallið fyrir Claudio Ranieri,
stjóra Inter, en liðinu hefur gengið skelfilega í deild-
inni heima fyrir að undanförnu. Jafntefli hefðu verið
fín úrslit fyrir Ranieri en hvort hann fái að stýra lið-
inu í síðari leiknum í Mílanó í næsta mánuði verður
að koma í ljós.
Þrátt fyrir afan fjörugan fyrri hálfleik í Sviss í
gær tókst hvorugu liðinu að skora þrátt fyrir nokkur
mjög fín færi. Heimamenn áttu tvívegis skot í stöng
en markverðir beggja liða sýndu einnig lagleg tilþrif.
Það voru svo tveir varamenn sem sáu um að búa
til mark Basel. Jacues Zoua fór illa með vörn Bæj-
ara með laglegri sendingu inn fyrir varnarlínuna á
Stocker sem skoraði með föstu skoti. - esá
Inter og Bayern München töpuðu bæði í Meistaradeildinni í gær:
FC Basel sá við þýsku risunum
MIKILVÆGT MARK Valentin Stocker tryggði Basel sigur í gær og
gæti markið reynst mikilvægt. NORDIC PHOTOS/GETTY