Fréttablaðið - 29.02.2012, Side 4

Fréttablaðið - 29.02.2012, Side 4
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR4 SVEITARSTJÓRNIR Ármann Kr. Ólafs- son, bæjarstjóri í Kópavogi, segir bæinn hagnast um níu milljónir króna með starfslokasamningi við forvera sinn, Guðrúnu Pálsdóttur. Ólafur Þór Gunnarsson, fulltrúi Vinstri græns í bæjarráði, óskaði eftir greiningu á kostnaði vegna samkomulags sem nýr meirihluti í bæjarstjórn gerði við Guðrúnu um starfslok sem bæjarstjóri og til- færslu hennar í starf sviðsstjóra. Í svari Ármanns segir að sam- kvæmt ráðningarsamningi Guð- rúnar hafi hún átt rétt á tólf mán- aða biðlaunum við starfslok. Frá 1. september næsta haust muni hún hins vegar hefja störf sem sviðs- stjóri hjá bænum. Hún haldi óskertum bæjarstjóralaun- um í tólf mánuði. „Starfslokasamning- urinn leiðir því ekki til aukins kostnaðar umfram ákvæði ráðn- ingarsamnings en hins vegar kemur vinnu- framlag frá 1. sept- ember sem nemur alls 9.014.483 krónum með launatengdum gjöld- um. Það má því segja að ávinningur eða sparnaður Kópavogsbæjar nemi fyrrgreindri upphæð miðað við þann kostnað sem ráðningarsamningur hefði annars leitt af sér,“ segir í svari nýja bæjarstjórans. - gar Nýr bæjarstjóri í Kópavogi segir samkomulag við forverann ávinning fyrir bæinn: Guðrún sparar bænum níu milljónir GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR Fyrr- verandi bæjarstjóri á rétt á tólf mánaða biðlaunum en hyggst taka við starfi sviðsstjóra frá 1. september. GENGIÐ 28.02.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 228,9235 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,42 125,02 197,15 198,11 167,08 168,02 22,466 22,598 22,294 22,426 18,929 19,039 1,5463 1,5553 193,31 194,47 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is DÓMSMÁL Geir Hlöðver Ericsson, meintur höfuðpaur í umfangsmiklu smygli á sterum og fíkniefnum sem uppgötvaðist í fyrrahaust, neitaði því alfarið fyrir dómi í gær að hafa komið nálægt smyglinu. Sævar Sverrisson, sem fór til Hol- lands og lét koma efnunum fyrir í gámi, benti á móti á Geir sem skipu- leggjandann og kvaðst hafa verið blekktur; Geir hafi sagt honum að í sendingunni yrðu einungis sterar. Sendingin kom að landi í Straums- vík í október og innihélt sannar- lega um tíu þúsund steraskammta, en jafnframt rétt tæp tíu kíló af amfetamíni og 8.100 e-töflur. Geir skýrði linnulítil, nær dagleg samskipti sín um sérstakan síma við Sævar á þá leið að Sævar hefði stöð- ugt verið að rukka hann fyrir hálft kíló af amfetamíni. Það hafi Sævar komið með fyrirvaralaust á heimili Geirs í fyrrasumar og boðið honum til kaups, sem Geir hafi þegið. Hann hafi ekkert haft með smyglið til Straumsvíkur að gera. Sævar kannast ekki við þessa sögu af amfetamíninu og segir hana ósanna, þótt hann hafi vissulega oft krafið Geir um peninga sem hann hafi skuldað honum vegna annarrar sterasmyglferðar frá Hollandi. Sá sem útvegaði efnin í Hollandi og afhenti Sævari þau er Íslending- ur sem starfar fyrir limósínufyrir- tæki í Amsterdam. Hann er ekki ákærður í málinu. Sævar segist hafa verið í fjöl- skylduferð í Hollandi og nýtt hana til að taka við kassa frá Íslendingn- um ytra. Kössunum hafi síðan fjölg- að í þrjá og þá hafi hann fengið „nett sjokk“. „Ég treysti mér alls ekki til Sakborningar tala í kross um Straumsvíkursmyglið Annar tveggja manna sem sæta ákæru fyrir stórfellt smygl á sterum og dópi sakar hinn um að hafa blekkt sig. Í sendingunni hafi bara átt að vera sterar. Hinn segist koma af fjöllum. Lögregla trúir hvorugum þeirra. ÓSAMMÁLA Samræmið í framburði sakborninga var ekki alltaf eins og best verður á kosið. Hér sést Geir Hlöðver rýna í málsskjöl en Sævar Sverrisson og Kristján Kröyer hylja andlit sín. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kristján B. Kröyer Þorsteinsson, fyrrverandi Íslandsmeistari í hreysti, sem ákærður er fyrir aðild að sterasmyglinu, lýsti því yfir við upphaf aðalmeð- ferðarinnar í gær að hann vildi breyta afstöðu sinni til ákæruefnisins. Kristján hafði áður lýst sig saklausan en sagðist nú sekur af því að hafa látið Íslend- ingnum í Hollandi sterana í té og beðið um að þeim yrði komið til Íslands. Hann tók skýrt fram að Geir Hlöðver hefði ekkert haft með málið að gera, en fram kom að Kristján er tengdasonur Geirs. Þetta er í ósamræmi við fram- burð Kristjáns hjá lögreglu, en Kristján bar fyrir dómi í gær að lögreglan hefði spurt hann leiðandi spurninga. Kristján sagði sterana sem hann lét smygla, um átta hundruð skammta, að mestu ætlaða til einkanota. „Ég nota gríðarlega mikið af þessu,“ sagði hann. Tengdasonurinn breytti framburði sínum að opna þessa kassa,“ sagði Sævar, sem fullyrðir að hann hafi talið að í þeim væru aðeins sterar. Þrátt fyrir að hvorki Geir né Sverrir vilji viðurkenna að hafa ætlað að flytja inn fíkniefni telja lögreglumenn sem komu fyrir rétt- inn að þeir hafi báðir haft vitund um innihald kassanna, þótt engin gögn staðfesti þá vitneskju Sævars. Sævar hafi að öðru leyti verið mjög samvinnuþýður við rannsóknina. Við rannsókn stóra málsins komst lögreglan á snoðir um tvö smærri fíkniefnamál sem einnig tengj- ast Geir. Þriðji maðurinn, Sævar Þór Óskarsson, er ákærður í þeim málum ásamt Geir. Sævar Þór hlaut fyrir tíu árum tveggja ára fangelsis- dóm fyrir að smygla tuttugu kílóum af hassi til landsins frá Hollandi. Geir játar sök í öðru málinu, því sem snýr að amfetamíninu sem hann segir Sævar Sverrisson hafa útvegað sér. Sævar Þór neitar þar sök en gengst við því að hafa haft í fórum sínum 250 grömm af kókaíni í öðru máli. Í þeim lið neitar Geir sök. Tvennt til viðbótar er ákært í seinna málinu en neitar sök. Málinu verður fram haldið á föstudag. stigur@frettabladid.is VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 18° 17° 13° 12° 13° 13° 10° 10° 19° 15° 17° 6° 30° 3° 15° 12° 3°Á MORGUN Sums staðar strekkingur með ströndum annars hægari. FÖSTUDAGUR Hvasst V-lands en annars heldur hægari. 56 3 3 3 01 -1 -1-1 4 2 1 1 2 2 1 3 4 1 -3 11 13 10 10 8 9 8 10 8 8 5 SKÚRIR EÐA ÉL verða um landið vestanvert í dag en nokkuð bjart aust- an til. Á morgun má búast við élja- gangi vestanlands, enda kólnar heldur í veðri, en áfram nokkuð björtu norðaustan til. Á föstudag hlýnar á ný með hvassri sunnanátt og rign- ingu síðdegis. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður e-töflur, tæp tíu kíló af amfetamíni og tíu þúsund steraskammtar voru í sendingunni sem kom að landi í Straumsvík. 8.100 MENNTAMÁL Hlutfall kennara með réttindi hefur aldrei verið hærra en nú. Síðasta haust voru 95,5 prósent með kennsluréttindi, en á árunum 1998 til 2008 var hlutfall- ið á bilinu 80 til 87 prósent. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Hæst er hlutfallið á höfuðborg- arsvæðinu utan Reykjavíkur, þar sem 97,5 prósent kennara hafa kennsluréttindi. Á Norðurlandi vestra, Austurlandi og Vestfjörð- um hafa færri en 90 prósent kenn- ara kennsluréttindi, en þeim hefur fjölgað ört á síðustu árum. - sv Réttindakennurum fjölgar: Nær allir með kennsluréttindi EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Á fundi utanríkisráðherra Evrópu- sambandsríkjanna var í gær samþykkt að Serbía fái stöðu umsóknarríkis. Leiðtogaráð ESB á þó eftir að staðfesta þessa niðurstöðu, en gerir það væntanlega á fundi sínum nú í vikunni. Í desember síðastliðnum komu Þjóðverjar í veg fyrir að Serbía fengi stöðu umsóknarríkis vegna óleysts ágreinings um Kosovo, sem Serbar viðurkenna ekki sem sjálfstætt ríki. Í síðustu viku tókust samningar um eftirlit Serbíu og Kosovo með sameiginlegum landamærum og að Kosovo fái eigin fulltrúa á alþjóðaráðstefnum. - gb Samþykkt á ráðherrafundi: Serbía verður umsóknarríki SÝRLAND, AP Fulltrúar Sýrlands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna gengu út í fússi í gær, eftir að hafa sakað ráðið um stuðn- ing við hryðju- verk. „Allir sem heyrðu í full- trúa Sýrlands ættu að sjá að ummæli hans jaðra við að vera ekki í tengslum við raunveruleik- ann,“ sagði Eileen Chamberlain Donahue, fulltrúi Bandaríkjanna í ráðinu. Fram kom á fundinum að aðgerðir stjórnvalda gegn mót- mælendum í Sýrlandi hafi kostað meira en 7.500 manns lífið undan- farið ár. Talið er að meira en hundrað almennir borgarar séu drepnir á degi hverjum. - gb Sýrlendingar gengu á dyr: Yfir hundrað drepnir daglega EILEEN CHAMBER- LAIN DONAHUE

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.