Fréttablaðið - 29.02.2012, Page 21

Fréttablaðið - 29.02.2012, Page 21
PLASTIÐNAÐUR MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012 Kynningarblað Pokar, gæðavottun, endurvinnsla, iðnaður, útflutningur. Plastprent hóf starfsemi í bílskúr á Flóka-götu árið 1957. Nú 55 árum síðar starfa hér 75 manns í rúmgóðu húsnæði að Fosshálsi 17 til 25 auk þess sem við rekum söluskrifstofu á Akureyri,“ segir Guðbrand- ur Sigurðsson, forstjóri Plastprents. Fyrirtæk- ið er sérhæft umbúðafyrirtæki á sviði mjúkra plastumbúða. Umfangsmikil verksmiðja Í verksmiðju Plastprents að Fosshálsi fer fram mikið starf. „Við erum að blása plastfilmur, það er að búa til plastfilmur úr plasthráefni. Þá erum við með klisjugerð sem er myndmótagerð fyrir þau prentmót sem við notum í flexóprent- uninni hjá okkur. Svo erum við með sérhæfð- ar prentvélar til að prenta á plast,“ telur Guð- brandur upp. Hann nefnir einnig laminering- arvél sem límir saman tvær mismunandi gerðir af plasti til að ná fram ákveðnum pökkunareig- inleikum. „Þá erum við með pokagerð þar sem við búum til poka af öllum mögulegum stærð- um og gerðum, allt frá burðarpokum og brauð- pokum upp í heilfrystipoka fyrir sjávarútveg- inn,“ segir hann. Plastprent er leiðandi á sviði plastumbúða og er viðskiptavinahópurinn afar breiður og vöruúrvalið mikið. „Við erum með tvö þúsund viðskiptavini í tólf atvinnugreinum, allt frá landbúnaði og sjávarútvegi til heilbrigðisgeir- ans og matvælaiðnaðarins,“ segir Guðbrandur. Framleiðsla fyrir matvælaiðnaðinn er stærsti þátturinn í starfsemi Plastprents. „Tveir þriðju af því sem við erum að selja eru matvælaum- búðir af ýmsu tagi.“ Sérfræðingar í umbúðalausnum Ánægja viðskiptavina skiptir Plastprent miklu máli. Því er lögð áhersla á að fyrirtækið afhendi vörur á tilsettum tíma og að þær uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til gæða og áreiðanleika. „Fyrirtækið kappkostar að finna hagkvæm- ustu lausnir fyrir viðskiptavini sína og legg- ur áherslu á að starfsfólk veiti vandaða og fag- lega þjónustu,“ segir Guðbrandur og bætir við að hjá Plastprenti starfi sérfræðingar á hverju sviði. Þá starfi starfsmenn með gildi fyrirtækis- ins að leiðarljósi en þau eru: Áreiðanleiki, gæði og sveigjanleiki. Gæðakerfi og vottanir „Plastprent er með vottað gæðakerfi sem er byggt upp samkvæmt GÁMES kerfi og í sam- ræmi við staðalinn ISO 9001.2008,“ segir Guð- brandur en til viðbótar er Plastprent með vott- unina BRC/IOP (British Retail Consortium/ Institute of Packaging). „Sú vottun gerir okkur kleift að framleiða matvælaumbúðir ætlaðar fyrir vörur seldar í stóru smásölukeðjunum í Bretlandi á borð við TESCO, ASDA, Morrison og fleiri,“ útskýrir hann. Hluti af framleiðslu Plastprents hefur því farið til útlanda. Innt- ur eftir því hvort sá þáttur eigi eftir að aukast svarar Guðbrandur: „Við verðum seint útflutn- ingsfyrirtæki á umbúðum en þetta er fínt með öðru.“ Aukin áhersla á endurvinnslu Plastprent hefur ávallt lagt upp úr endurvinnslu en að undanförnu hefur áherslan á endur- vinnsluna í fyrirtækinu aukist til muna. „Við höfum aukið vélakost til endurvinnslu og erum í samstarfi við kaupendur um söfnun á plasti sem fellur til hjá viðskiptavinum,“ segir Guð- brandur. Hann tekur dæmi um að í framleiðslu á sorppokum séu notuð 90 prósent af endur- unnu hráefni. „Við flokkum hráefnið sem fer í endurvinnsluna og ef við erum til að mynda með óáprentað, hvítt eða glært plast, getum við notað það áfram í burðarpoka,“ segir hann. Guðbrandur telur framtíðina bjarta hjá Plastprenti. Stefnan sé að auka enn véla- kost í verksmiðjunni og halda áfram stöðugri vöruþróun auk þess sem hann sér fyrir sér að endur vinnslan verði með tímanum enn stærri þáttur í starfi fyrirtækisins. Nánari upplýsingar um starfsemi Plast- prents má nálgast á www.plastprent.is. VOTTAÐ FRAMLEIÐSLUKERFI Gæðakerfi Plastprents er byggt upp samkvæmt GÁMES kerfi og í samræmi við staðalinn ISO 9001.2008. Plast- prent er einnig með BRC/IOP (British Retail Con- sortium/Institute of Packaging) sem gerir Plastprenti kleift að framleiða matvælaumbúðir fyrir vörur seldar í stóru smásölukeðj- unum í Bretlandi. UMHVERFISÁHRIF PLASTEFNA Plastefni eru orðin ómiss- andi hluti af daglegu lífi fólks, í raftækjum, tölvum, ýmsum heim- ilisbúnaði, í bifreiðum, flugvélum og svo framvegis. Plastefnin eru einnig mjög mikilvæg í ýmsum umbúðum. Meira en helmingur allra framleiðsluvara í Evrópu er pakkaður í umbúðir úr plasti. Þrátt fyrir það vega plastumbúðir aðeins um 17% af heildarþyngd umbúða. Það þarf því minna af plastefnum til umbúða saman- borið við önnur umbúðaefni. Plastefni minnka því orkunotkun og útblástur koltvísýrings. Plastefni lágmarka sóun auðlinda, þar sem minni orku þarf til að framleiða plastefni, minna magn af plastefni þarf til að leysa ákveðin verkefni og minna magn spilliefna. Sem dæmi má nefna léttari flöskur fyrir vatn, gosdrykki eða þvottaefni og þynnri filmur fyrir umbúðir. Plastpokar eru 100% endurvinnanlegir. ENDURUNNIÐ HRÁEFNI Plastprent hefur í áraraðir endurunnið plastúrgang sem fellur til í verksmiðju í framleiðslu á sorppokum og burðarpokum. Sorppokarnir frá Plastprenti eru með yfir 90% endurunnið hráefni. Burðarpok- arnir frá Plastprenti eru með allt að 80% endurunnið hráefni. BLEIKI POKINN Plastprent lagði Krabbameins- félaginu lið í október og seldi poka merktan Bleiku slaufunni til viðskiptavina sinna. Um var að ræða bleikan poka sem minnti fólk á átakið og seldust alls 20.000 pokar á tímabilinu. Plastprent styrkti Krabbameinsfélagið um 5 krónur á hvern seldan poka og afhenti Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélagsins, bleika ávísun upp á 100.000 krónur. Áreiðanleiki, gæði og sveigjanleiki að leiðarljósi Plastprent er sérhæft umbúðafyrirtæki á sviði mjúkra plastumbúða. Það var stofnað árið 1957 og fagnar því 55 ára afmæli í ár. Fyrirtækið er leiðandi á sviði plastumbúða á Íslandi með breiðan viðskiptavinahóp og mikið vöruúrval. Hér er verið að framleiða plast fyrir sjávarútveginn.Notað plast er malað og öðlast nýtt líf í endurvinnsluhluta Plastprents. Plastfilmur blásnar í verksmiðjunni. Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Plastprents, með hluta af umbúðaframleiðslu fyrirtækisins í baksýn. MYND/VALLI Guðbrandur við Bielloni tíu lita prentvél fyrirtækisins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.