Fréttablaðið - 29.02.2012, Side 23

Fréttablaðið - 29.02.2012, Side 23
SAFETRAVEL MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012 Kynningarblað um snjóflóðaöryggisbúnað, leiðarval og annað fyrir örugg ferðalög. SNJÓFLÓÐAÖRYGGIS BÚNAÐUR OG LÍFSLÍKUR Í SNJÓFLÓÐUM Safetravel og Slysavarnafélagið Landsbjörg bjóða þér að sækja fyrirlesturinn „Snjóflóðaöryggis- búnaður og lífslíkur í snjóflóðum”. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði Hjálparsveitar skáta í Reykjavík að Malarhöfða 6 og í húsnæði Súlna – björgunarsveitar Akureyrar að Hjalteyrargötu 12. Fyrirlesturinn hefst á báðum stöðum kl. 20. Farið verður yfir það hvernig mismunandi búnaður virkar og hvernig hann miðar að því að auka lífslíkur þess sem lendir í snjóflóði. Þetta er fyrirlestur sem enginn er ferðast til fjalla ætti að láta fram hjá sér fara. MYND/ÓLAFUR LARSEN ÞÓRÐARSON AÐ VERÐA FYRIR SNJÓFLÓÐI Ef þú lendir í snjóflóði geta lífslíkur þínar aukist mikið með réttum viðbrögðum. Hið fyrsta sem þú átt að gera er að reyna að halda þér upp úr flóðinu með því að taka sundtökin. Ef þú hefur einhverja möguleika á því að reyna að verja nef og munn skaltu reyna að gera það svo öndunarvegurinn fyllist ekki af snjó. Þegar þú finnur að snjóflóðið hægir á sér, er að stöðvast skaltu hreyfa þig eins og þú getur til að skapa þér rými til að hreyfa þig og anda. Allan tímann skaltu reyna að halda ró þinni. Sparaðu kraftana þar til þú heyrir í leitarmönnum og kallaðu þá eftir aðstoð – mundu að þú heyrir betur í þeim en þeir í þér. RÉTT VIÐBRÖGÐ SKIPTA SKÖPUM Lífslíkur fólks sem grefst í snjó- flóðum á víðavangi hafa verið rannsakaðar töluvert. Nú er talið að 90-93% þeirra sem grafast alveg í snjóflóði séu á lífi fyrstu 15 mínúturnar eftir að flóðið stöðvast. Mjög margir látast síðan vegna köfnunar á næstu 30 mínútum þar á eftir en þau 25% sem eru á lífi 45 mínútum eftir að flóðið stöðvast, eru þeir sem ná að anda í flóðinu. Niðurstöðurnar af þessari tölfræði eru augljósar. Björgun fram- kvæmd af þeim sem eru á staðnum þegar flóðið fellur er lang- mikilvægust og slík félagabjörgun er árangursríkust með snjóflóðaýli. Guðmundur Jónsson, einn fjallgöngumannanna, segir að það hafi komið sér mjög á óvart hversu fljótar björg- unarsveitir voru á vettvang. „Einn okkar, Bjartmar Örn Arnarson, var að fara í sjötta skiptið á jök- ulinn. Hann hefur gengið á Mont Blanc og er alvanur fjallgöngu- maður. Ég hafði gengið á mörg fjöll og var í annað skiptið á leið upp Hvannadalshnúk. Við vorum bæði vel skipulagðir og mjög vel útbúnir fyrir þessa ferð,“ segir Guðmundur. Bjart og gott veður var þenn- an dag. „Við lögðum af stað undir morgun og vorum komnir að toppnum þegar f lóðið fór af stað um hádegi. Þetta var ekki stór snjóskaf l en þegar hann rann af stað braut hann undan okkur þannig að við misstum fótanna. Þetta var einungis 20 cm þykkur snjóskafl, léttur snjór en í brattri hlíð. Við vorum bundnir í línu og ég var aftastur. Þegar snjór- inn fór að hreyfast undan okkur þá misstum við sem vorum aftast jafnvægið með þeim afleiðingum að allir fimm hröpuðu niður. Það skaðaði þá þrjá sem voru á undan okkur að við vorum bundnir saman. Einn rif beinsbrotnaði, annar ökklabrotnaði og sá þriðji tognaði illa á ökkla. Við vorum í 45 gráðu halla svo það var snar- bratt niður. Við runnum 70 metra niður með flóðinu en þegar það stoppaði var sem betur fer enginn okkar í kafi. Við kölluðumst strax á og það var mikill léttir að allir voru með höfuðið uppi,“ greinir Guðmundur frá. Aðstoðin kom fljótt Eftir að í ljós kom að þrír félag- anna voru slasaðir veltu þeir vöngum yfir hvað best væri að gera í stöðinni. „Við ákváðum að óska eftir aðstoð og náðum í al- mannavarnastöð á Kirkjubæjar- klaustri. Aðeins tveir í hópnum voru göngufærir og við vorum staddir í mikilli hæð. Aðgerða- stöð í Reykjavík ákvað að senda bæði björgunarsveit og þyrlu á staðinn og við vorum þakklátir fyrir það. Fjórir í fjallgönguhópn- um eru flugmenn og vissu að það gæti verið tæpt að ná mönnunum í þetta miklum halla. Á meðan þyrlan sveimaði fyrir ofan okkur var björgunarsveitin á leiðinni á vélsleðum og bílum. Auk þess voru fjórir fallhlífarstökkvar- ar úr björgunarleiðangrinum sem stukku úr Fokker-vél og voru fluttir með þyrlunni á slys- stað. Það var í fyrsta skipti sem fallhlífarsveitin var send á vett- vang,“ segir Guðmundur enn fremur. Eftir að þeim slösuðu hafði verið bjargað í þyrluna tíndum við sem eftir vorum saman dótið og héldum af stað niður. Um sama leyti sáum við menn koma gangandi til okkar en þeir höfðu komið með þyrlunni og gátu að- stoðað okkur með farangurinn. Það var svo varla liðinn klukku- tími þegar fyrstu vélsleðarn- ir blöstu við. Björgunarsveitin var ótrúlega fljót á vettvang. Við erum ákaf lega þakklátir snar- ræði björgunarsveitanna sem stóðu afar vel að öllum aðgerð- um.“ Snjóflóð hreif þá niður snarbrattan jökulinn Fimm vanir fjallgöngumenn lentu í snjóflóði í Virkisjökli í Hvannadalshnúk í lok maí 2006. Þrír þeirra slösuðust og var fjöldi björgunarmanna kallaður til enda um erfiðar aðstæður að ræða. Í snjóskafli. Mikil mildi var að ekki urðu alvarleg slys á mönnum. Ferðin gekk vel upp á toppinn þangað til snjórinn gaf sig undir fótum þeirra. Fjallgöngumennirnir voru bundnir saman í línu sem skapaði hættu þegar flóðið féll. Guðmundur Jónsson, einn fimmmenn- inganna, segir að björgunarsveitin hafi verið ótrúlega fljót á staðinn. Félagarnir fóru á Hvannadalshnúk í björtu og fallegu veðri. „Snjóflóðabakpokar byggja á lögmáli snjóflóða þegar stórir hlutir eins og bílar standa upp úr á meðan fólk grefst undir flóðinu,“ útskýrir Ríkarður Sigmundsson í Garmin-búðinni þar sem finna má ABS-snjóflóðabakpoka. „ABS hefur frá 1985 staðið fyrir umfangsmiklum rannsóknum í tengslum við þróun snjóflóðabak- poka, en þeir hafa þann tilgang að auka rúmmál einstaklings sem lendir í snjóflóði þannig að hann fljóti ofan til í flóðinu, eins og stærri hlutir gera.“ Í ABS-snjóflóðabakpoka eru tveir stórir belgir, samanlagt 170 lítrar, sem blása sjálfkrafa út þegar kippt er í handfang á pokanum. Belgirnir liggja meðfram hliðum pokans og trufla því hvorki handa- né höfuðhreyfingar einstaklings sem getur óþvingað kraflað sig áfram og séð í kringum sig. „Á bak við ABS-bakpokana eru 270 skráð tilfelli úr snjóflóðum þar sem fólk hefur verið með bakpokana á sér og björgunarlíkur hafa reynst 97 prósent.” ABS-snjóflóðapokar fást í Garmin-búðinni, Ögurhvarfi 2 í Kópavogi. Sjá nánar á www.garmin.is LÍFSBJÖRG Í SNJÓFLÓÐI Snjóflóðabakpokar hafa sannað gildi sitt til bjargar mannslífum í snjóflóðum. Ríkarður Sigmundsson með ABS-snjó- flóðabakpoka í Garmin Búðinni. MYND/VALLI „Níu af hverjum tíu sem látast í snjóflóðum deyja vegna súrefnisskorts eða of mikils þrýstings á lungu þegar þeir grafast djúpt undir. Því er helsta markmið varnarbúnaðar að halda þeim sem lenda í snjóflóði á yfirborði þess, með því að auka ummál þeirra með uppblásanlegum belgjum,“ upplýsir Kolbeinn Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Frera ehf. sem býður snjóflóðabakpoka frá Backcountry Access (BCA). „Snjóflóðabakpoki nýtist eins og hver annar bakpoki, en býr yfir innbyggðum 150 lítra belg sem blæs upp þegar kippt er í gikk á pokanum,“ útskýrir Kolbeinn. BCA-bakpokar hafa margsannað sig í björgun mannslífa í snjóflóðum. „BCA hannar bakpoka sína út frá áratuga rannsóknum á snjóflóðum og lífs- reynslu fólks sem lent hefur í slíkum hamförum,“ segir Kolbeinn. „Snjóflóðabakpoki er lífsnauðsynleg- ur búnaður við ferðamennsku í snjóugu brattlendi og ekki síst fyrir vélsleðafólk. BCA-snjóflóðabakpok- arnir byggja á nýrri og mun hagkvæmari tækni en eldri snjóflóðabakpokar á markaðnum og eru fylltir lofti í stað gass, sem Freri sér um að fylla á að kostnaðarlausu.“ Sjá nánar á www.freri.is BELGIR SEM BJARGA Freri selur snjóflóðabakpoka sem eru hannaðir út frá rannsóknum á snjóflóðum og lífsreynslu fórnarlamba sem lent hafa í þeim. Kolbeinn Guðmundsson með BCA-snjóflóða- bakpoka frá Frera ehf. MYND/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.