Fréttablaðið - 29.02.2012, Síða 46
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR34
MORGUNMATURINN
Fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir
bar sigur úr býtum í netkosningu
vefsíðunnar Style.com um val á
best klæddu fyrirsætu tískuvik-
unnar í London. Valið stóð á milli
tíu fyrirsæta en Kolfinna hlaut alls
42 prósent atkvæða og hreppti
þar með fyrsta sætið í netkosning-
unum. Annað sætið hreppti Cara
Delevingne sem hlaut 37 prósent
atkvæða og í þriðja sæti kom
Jourdan Dunn sem fékk 7 prósent
atkvæða. Nú stendur yfir val á best
klæddu fyrirsætu
tískuvikunnar í
Mílanó og keppa
meðal annars
ofurfyrirsæturnar
Naomi Campbell
og Lily Donald-
son um þann titil.
Að lokum verður
hægt að kjósa
á milli sigur-
vegara hverrar
tískuviku fyrir
sig og verður
Kolfinna í þeim
hópi. - sm
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Mér leið furðulega daginn
eftir, með hroll í líkamanum og
allur rosa skrítinn. Á vissan hátt
var eins og ég væri þunnur,“
segir fjölmiðlamaðurinn Sölvi
Tryggvason sem tók inn töflu af
samheitalyfi Rohypnol á dögun-
um í rannsóknarskyni fyrir þátt
sinn Málið, en næsti þáttur fjallar
um nauðgunarlyf.
Tveir myndatökumenn voru
með í för og lýsti Sölvi líðan sinni
reglulega í myndavél. „Eftir
svona einn og hálfan tíma var
ég orðinn rosalega ruglaður og
rétt náði að staulast upp í leigu-
bíl og umla út úr mér hvar ég
ætti heima,“ segir Sölvi og lýsir
tilfinningunni sem mjög óþægi-
legri, hann hafi orðið kærulaus og
sljór og allur líkaminn daufur og
máttlítill.
Aðstæðurnar voru mjög ólík-
ar hjá Sölva og hjá fórnarlömb-
um sem er byrlað lyfinu. „Lík-
aminn minn var viðbúinn því að
eitthvað væri að fara að gerast,
þetta var gert um miðjan dag og
ég var ekki að sturta í mig áfengi
með þessu,“ segir Sölvi og bendir
á að gera megi ráð fyrir að áhrif-
in yrðu töluvert meiri þegar lyf-
inu væri laumað í drykk hjá grun-
lausri manneskju klukkan fjögur
á laugardagsnótt og áfengi svo
blandað saman við.
Þátturinn verður sýndur á
Skjá einum mánudaginn 5. mars
og verður þar að finna viðtöl við
fórnarlömb og einstaklinga úr
ýmsum áttum sem þekkja til.
Sölvi segir það hafa verið sláandi
hversu algengt það sé að fólki sé
byrlað nauðgunarlyf, og að allt
bendi til að það sé töluvert meira
um það núna en var fyrir fimm-
tán árum.
Sölvi leggur augljóslega mikla
vinnu í þættina. Þar er tekið á
mannlegum málefnum sem herja
á samfélagið, þó ekki fjármála-
kreppunni, og hafa þættirnir
fengið góð viðbrögð.
- trs
Sölvi Tryggva tók inn nauðgunarlyf
ÓÞÆGILEGT Sölvi byrlaði sjálfum sér
nauðgunarlyf í rannsóknarvinnu fyrir
þátt sinn, Málið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég sagði við stelpurnar í búðinni
að þær yrðu að bjarga sér án mín
fram í apríl,“ segir María Birta
Bjarnadóttir, leikkona og eigandi
verslunarinnar Manía, en hún
hefur tekið að sér að leika annað
aðalhlutverkanna í íslensku
myndinni XL.
Myndin XL er í leik-
stjórn Marteins Þórs-
sonar og fjallar um þing-
mann sem berst við
áfengissýki og er loks
skikkaður í meðferð af
yfirmanni sínum. Þing-
maðurinn ákveður því
að fara á einn svæsinn
drykkjutúr með hörmu-
legum afleiðingum. Það
er leikarinn Ólafur Darri
Ólafsson sem fer með
hlutverk þingmannsins
og leikur María Birta ást-
konu hans. Tökur fara
fram á höfuðborgar-
svæðinu í mars og með
önnur hlutverk fara þau
Elma Lísa Gunnarsdóttir,
Nanna Kristín Magnús-
dóttir og Þorsteinn Bach-
mann.
„Þetta gerðist ótrúlega hratt.
Aðstandendur myndarinnar
höfðu samband við mig fyrir
þremur vikum og ég gat einfald-
lega ekki sagt nei. Ég er mjög
spennt en þetta verður samt erf-
iðasta hlutverk sem ég hef tekið
að mér. Leikstjórinn gerir mikl-
ar kröfur sem ég verð að standa
undir,“ segir María Birta sem
hefur legið yfir handritinu síðan
hún fékk það í hendurnar.
Marteinn skrifar sjálfur hand-
ritið að myndinni ásamt rithöf-
undinum Guðmundi Óskars-
syni en þeir framleiða myndina
ásamt Ólafi Darra og Ragnheiði
Erlingsdóttur. Stefnt er á frum-
sýningu myndarinnar XL með
haustinu.
María Birta byrjar í tökum
á sunnudaginn og því skammt
stórra högga á milli hjá leik-
konunni sem leikur stórt hlut-
verk í myndinni Svartur á leik
sem frumsýnd verður á morg-
un. María Birta játar
því að leikkonustarf-
ið hafi aldeilis undið
upp á sig undanfarið.
„Þetta eru sannköll-
uð snjóboltaáhrif og
hefur gengið mjög vel
en ekki grunaði mig
að ég mundi frum-
sýna tvær íslensk-
ar myndir á árinu,“
segir María Birta,
sem er með þéttskip-
aða dagskrá næstu
mánuðina. Í lok mars
heldur hún til Flórída
þar sem hún ætlar að
nema fallhlífastökk í
einn mánuð.
„Ég ákvað strax í
haust að flýja land
eftir að Svartur á leik
væri frumsýnd. Ég
hef ekki séð myndina sjálf en ég
er viss um að ég verð feimin að
ganga niður Laugaveginn. Þess
vegna er gott að ég fari bara beint
í tökur og verð því í hálfgerðum
felum þar til ég fer út,“ segir
María Birta og vísar í svæsn-
ar senur myndarinnar sem hafa
verið til umfjöllunar í fjölmiðlun.
Hún ætlar að taka foreldra sína
með sér á frumsýninguna á morg-
un. „Ég er einhleyp svo ég tek
mömmu og pabba með. Ég veit að
það verður óþægilegt að horfa á
sumar senurnar í bíósalnum með
fullt af fólki,“ segir María Birta
að lokum.
alfrun@frettabladid.is
MARÍA BIRTA BJARNADÓTTIR: ERFIÐASTA HLUTVERK SEM ÉG HEF TEKIÐ AÐ MÉR
LEIKUR ÁSTKONU ÓLAFS DARRA
TVÆR FRUMSÝNINGAR Á ÁRINU Það er skammt stórra högga á milli hjá leikkonunni
Maríu Birtu Bjarnadóttur en hún leikur annað aðalhlutverkanna í nýju íslensku
myndinni XL ásamt Ólafi Darra Ólafssyni. Hún fer einnig með hlutverk í kvikmynd-
inni Svartur á leik sem verður frumsýnd á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þetta hefur
gengið vel en
ekki grunaði
mig að ég
mundi frum-
sýna tvær
íslenskar
myndir á
árinu.
MARÍA BIRTA
LEIKKONA
Vilhelm Anton Jónsson, betur þekkt-
ur sem Villi naglbítur, verður kynnir
við afhendingu Íslensku tónlistarverð-
launanna sem fara fram í Hörpunni í
kvöld. Hann vonast til þess að geta fengið
fólk til að hlæja en leggur mesta áherslu
á að vera ekki of lengi uppi á sviði í hvert
sinn.
„Mér finnst mjög gaman að þessu því
ég hef unnið Grímur, Eddur og Lúðra en
aldrei Tónlistarverðlaunin og finnst því
gaman að stjórnendur skuli sjá aumur á
mér og leyfa mér að kynna verðlaunin. Ég
lít á það sem smá sárabót,“ upplýsir Villi
sem kveðst ekki kvíðinn fyrir kvöldinu.
Hann sér sjálfur um að semja text-
ann sem hann fer með á milli atriða og
vonast til þess að geta fengið gesti til að
hlæja. „Ég ætla að vera í hreinum fötum,
með burstaðar tennur og reyna að fá fólk
til að hlæja. Tónlistarfólk er annars svo
skemmtilegt að ég er lítið stressaður
fyrir kvöldinu. Mestu máli skiptir að vera
stutt í einu uppi á sviði svo fólki hætti
ekki að þykja vænt um mig.“
Flestar tilnefningar í ár hlaut tónlistar-
fólkið Björk, Lay Low og Mugison en
sá síðastnefndi er tilnefndur til alls sex
verðlauna. - sm
Vill fá tónlistarfólk til að hlæja
SKEMMTIR TÓNLISTARFÓLKI Vilhelm Anton Jónsson, eða Villi naglbítur eins
og hann er betur þekktur, verður kynnir Íslensku tónlistarverðlaunanna sem
fram fara í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Ristað brauð með Nutella og
banönum. Það er aðalmálið.“
Alli abstrakt rappari.
Sunnudag á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS