Fréttablaðið - 08.03.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011
Fimmtudagur
skoðun 16
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
8. mars 2012
58. tölublað 12. árgangur
Í sak Winther, grafískur hönnuður hjá Pipar, segist ekki frægur fyrir skrautlegan fatastíl, hann fari í svartan bol og gallabuxur nánast á hverjum degi. Það hafi því ekki margir vitað hverju hann lumaði á í sokka-skúffunni.
„Ég hef mjög gaman af litríkum sokk-um. Ég er með hálfgert sokkablæti,“ segir Ísak og hlær en hann gaf sokka-blætinu lausan tauminn einn daginn þegar hann hætti að flokka sokkana sína.
„Mér fannst alltaf furðulegt að henda heilum sokk ef annar týndist, leiddist líka að para saman sokka eftir þvott. Einn daginn tók ég því ákvörð-un um að taka bara tvo sokka upp úr skúffunni og fara í þá, hvort sem þeir pössuðu saman eða ekki,“ segir Ísak sem ljósmyndar sokkaklæddar tærn-ar og birtir daglega á veggnum sínum á
facebook, undir nafninu „mitch match of the day“. Uppátækið hefur smitað út
frá sér.
„Þetta hefur hvatt fólk til að stressa sig minna á þessu smáatriði. Einn vinur minn átti 300 svarta sokka og var
alltaf að reyna að finna pör. Hann fann
fyrir gríðarlegu frelsi þegar hann hætti
því og fór hlæjandi í vinnuna í tveim ósamstæðum svörtum sokkum,“ segir Ísak og viðurkennir að ósamstæðu sokkarnir kryddi líka tilveruna.„Um daginn þurfti ég að fara mjög snemma á fætur og klæddi mig í myrkri
til að vekja ekki fjölskylduna. Mundi svo allt í einu eftir því í hádeginu aðég hafði ekki h
fæ skemmtilegar ath
ÓSAMSTÆÐA DAGSINSFRJÁLSLEGUR TIL FÓTANNA Ísak Winther er hættur að flokka sokkana sína og lætur tilviljun ráða sokkavali á hvorn fót.Stækkar þig um númer!
ted 42026 - flottur push up haldari í B, C skálum
á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.995,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Nuddrúlla-mýkir upp stífa vöðvaVerð: 4.980 kr.
LITRÍKT
Ísak tók upp á því að ljósmynda ósamstæða sokka dagsins og birta á Facebook.
MYND/ÍSAK WINTHER
HÖFUÐLAUS DIOR Breski fatahönnuðurinn John Galliano var lengi
vel yfirhönnuður hjá Dior eða þar til tískuhúsið
rak hann á síðasta ári fyrir niðrandi ummæli í garð
gyðinga. Enn er leitað að eftirmanni hans.
inni í blaðinu í dag.
Opið til 21 í kvöld
í kvöld
Opið til
21
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
7
5
1
ÞJÓÐARÖRYGGI Gera þarf um 200
viðbragðsáætlanir vegna aðsteðj-
andi hættu á Íslandi, til viðbót-
ar við þær sem fyrir eru. Aðeins
eru til tvær heildstæðar séráætl-
anir vegna eldgosa á Íslandi svo
dæmi sé tekið, vegna Kötlu og
Eyjafjallajökuls.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í riti sem Almannavarn-
ir hyggjast birta í dag um þær
hættur sem steðja að einstökum
landssvæðum. Þar er allt undir:
eldgos, snjóflóð, jarðskjálftar,
óveður, mengunarslys og fleira.
Verkefnið hefur verið mörg ár í
vinnslu og þar er í fyrsta skipti
í áratugi fengin heildarmynd
af stöðu mála á Íslandi. Birtar
verða sérstakar skýrslur fyrir öll
fimmtán lögregluembætti lands-
ins. Þar eru tilteknar þær hættur
sem eiga við á hverju landsvæði
og það metið hversu líklegt sé
að vá komi upp, að því er Víðir
Reynisson, sérfræðingur hjá
Almannavörnum, segir.
Víðir segir fæð viðbragðsáætl-
ana áhyggjuefni og var athygli
vakin sérstaklega á því við yfir-
völd. Eftir eftirleitan almanna-
varna hafa tveir starfsmenn
verið fengnir til að sinna gerð
slíkra áætlana sérstaklega.
„Við eigum almennar áætlanir
vegna fleiri eldfjalla, en þær eru
gamlar og að mörgu leyti úrelt-
ar,“ segir Víðir. „Það á til dæmis
eftir að taka tillit til reynslu síð-
ustu ára og annað slíkt. Það er
því verið að efla almannavarnir
í þessu samhengi.“
Víðir tekur eldfjöllin Gríms-
vötn og Heklu sem dæmi um
mjög virkar eldstöðvar sem ættu
skilyrðislaust að vera til áætl-
anir um sem lúta að vá vegna
þeirra. „Þessi svæði hljóta að
vera ofarlega á forgangslistan-
um.“
Nú liggur fyrir að með breyt-
ingu á lögum um Ofanflóðasjóð
hefur verið gert kleift að koma
að fjármögnun hættumats vegna
íslenskra eldfjalla til næstu
þriggja ára. Slíkt mat tekur hins
vegar mun lengri tíma en þrjú ár
og Víðir segir að ekki verði beðið
niðurstöðu þeirra rannsókna hvað
varðar viðbragðsáætlanagerð.
Hann tekur Reykjanes sem dæmi.
Þar verði dregin upp áætlun sem
byggir á því sem þegar er vitað,
en mikil vitneskja liggur fyrir
um fjölmörg svæði þó að hún sé á
tíðum brotakennd. - shá
Vantar 200 nýjar áætlanir
vegna aðsteðjandi hættu
Gera þarf um 200 nýjar viðbragðsáætlanir vegna hættuástands sem getur skapast á Íslandi. Nær það yfir
allt frá stórum eldgosum til mengunarslysa. Aðeins eru til heildstæðar áætlanir vegna tveggja eldstöðva.
FÓLK Unnar Helgi Daníelsson
stofnaði viðburðafyrirtækið
Reykjavík Rocks fyrir níu mán-
uðum og nú starfa þar 12 manns.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að lóðsa
erlenda ferðamenn um Ísland og
þá ekki síst næturlíf Reykjavíkur-
borgar.
„Það er ekki gert nóg til að
markaðssetja næturlífið í Reykja-
vík en ég er að vinna í að gera
það,“ segir Unnar Helgi. Helstu
viðskiptavinir fyrirtækisins eru
vel stæðir útlendingar sem vilja
skemmta sér á Íslandi. „Það stefn-
ir í brjálað sumar hjá okkur og
við erum samhentur hópur sem
vinnum vel saman. Það er augljós-
lega markaður fyrir svona fyrir-
tæki á Íslandi en bara í gærkvöldi
gekk ég frá þremur bókunum fyrir
sumarið.“
Unnar Helgi hefur séð um ferðir
frægra einstaklinga á Íslandi svo
sem Seans Parker, annars stofn-
enda Facebook, leikkonunnar Liv
Tyler, rapparans Busta Rhymes
og leikarans Jared Leto. Hann
vill þó ekki gefa nánari upplýsing-
ar um dvöl þeirra hérlendis. „Ég
held miklum trúnaði við mína við-
skiptavini en mestan part hefur
þetta snúist um að skemmta sér í
Reykjavík.“ - áp / sjá síðu 46
Starfsemi viðburðafyrirtækisins Reykjavík Rocks hefur vaxið mikið frá stofnun:
Djammið heillar ríka útlendinga
UNNAR HELGI DANÍELSSON Eigandi
Reykjavík Rocks segir ekki nóg gert til að
markaðssetja næturlífið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HVASST SV-TIL Víða suðvestan
8-15 m/s, en 10-20 m/s SV-til í
kvöld. Víða él en úrkomulaust
að mestu NA-til. Hiti í kringum
frostmark.
VEÐUR 4
0
0
1
2
-1
Stelpurnar í sjötta sæti
Landsliðsþjálfarinn var
sáttur við frammistöðu
landsliðsins á Algarve.
sport 42
REYKJAVÍK FOLK FESTIVAL Tónlistarhátíðin Reykjavík Folk Festival hófst á Café Rósenberg
í gær en á meðal hljómsveita sem stigu á stokk var South River Band. Hátíðin er hugarfóstur Ólafs Þórðarsonar
heitins en hann lék um árabil með hljómsveitinni. Hátíðin stendur fram á laugardagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DANMÖRK Viðskiptaráðherra
Danmerkur, Pia Olsen Dyhr,
hefur boðið kínverska fjárfest-
inum Huang Nubo til Danmerkur
til þess að hann geti kynnt sér
danska menningu. Viðskiptaráð-
herranum finnst jafnframt til-
valið að Kínverjinn heimsæki
Grænland.
Á efnahagsráðstefnunni í
Davos í Sviss í janúar síðastliðn-
um bað forsætisráðherra Dan-
merkur, Helle Thorning-Schmidt,
um fund með Huang Nubo sem
einnig var á ráðstefnunni.
Það er mat Dyhr að ekki séu
ástæður til að hafa strax áhyggj-
ur af því að Kínverjar kaupi
jarðir í Danmörku. Zhongkun
Investment Group, sem er í eigu
Kínverjans, vill flytja kínverska
verkamenn til Danmerkur vegna
mögulegra fjárfestinga en Dyhr
mun hafa bent á að í Danmörku
sé hæfur vinnukraftur. - ibs
Ráðherrar áhugasamir:
Nubo boðið til
Danmerkur
Við eigum almennar
áætlanir vegna fleiri
eldfjalla, en þær eru gamlar
og að mörgu leyti úreltar.
VÍÐIR REYNISSON
SÉRFRÆÐINGUR HJÁ ALMANNAVÖRNUM
Flóttakonurnar hetjur
Sigríður Víðis Jónsdóttir
hlaut viðurkenningu
Hagþenkis fyrir bók sína
Ríkisfang: Ekkert.
menning 30
50 ára söngafmæli
Anna Vilhjálmsdóttir
heldur upp á söngafmælið
á sama stað og ferillinn
byrjaði, í Austurbæjarbíói.
tímamót 24