Fréttablaðið - 08.03.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.03.2012, Blaðsíða 8
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR8 Geir H. Haarde fyrir Landsdómi – dagur 3 Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is tttststststststttttsttstststtststststststsssssssss á n f n f á n f n f á n f á n f á n f á n f á n f án á n ánán á n á n nnn á nánááááá yr irv yr irv yr irv yr irv yr irv yr irvrvi yr irv yr irv yr irvrv y rv yr irv yr irvirvvvvrirrirrr rararrarrarrrrararrrrararraraaaaaaa B irt m eð f m e yr irv ar a um p re nt vi l nt vi l nt v lu r. H ei m sf er ð i fe rð r ás ki lja s ér r sé r sé t ét t til leil le étét ið ré tt in g a tin g tin á sl á s lík u. í A th . A th A t að v e að v eeer ð g e rð g ee rð g e rð ur br bbb r bb tu r bbb ur bb tu r bb tu r ur r ur r tu r tutu ey syssysysey sysysysysysyey syyyyyyyeyyyyeyyyre yy re y re yy re yy re yy re yeyeyeyyeyeererererrrrr a.aa.aa.a.a..a.aaaaaaa E N N E M M / S IA • N M 51 0 89 frá kr. 29.900* 13. mars * Flug á mann aðra leið með sköttum kr. 29.900 Flug á mann fram og til baka með sköttum kr. 59.800 Kanarí Tenerife Heimsferðir bjóða flug á frábæru verði til Kanarí eða Tenerife 13. mars. Heimflug eingöngu frá Kanarí 28. eða 29. mars. Fjölbreytt gisting í boði. Kr. 3.600 í tvíbýli á dag í íbúð á Tisalaya Park. Kr. 8.400 í tvíbýli á dag með allt innifalið á Beverly Park. Fjármálaeftirlitið íslenska var allt of veikburða fyrir hrun, að mati þáverandi stjórnarformanns þess. Hann segir Landsbankann hafa siglt í fölsku skjóli þegar Icesave-reikning- arnir voru kynntir en Geir Haarde hafi verið mjög áfram um að koma þeim í erlend dótturfélög. Einungis um helmingur fimmtíu manna starfsliðs Fjármálaeftir- litsins (FME) árið 2008 hafði lög- fræði-, hagfræði- eða viðskipta- fræðilega sérþekkingu á þeim málefnum sem eftirlitið sinnti. „Þetta var aldeilis ónógt,“ sagði Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður FME á þriðja degi Landsdómsréttarhaldanna yfir Geir H. Haarde í gær. Landsbankinn sigldi í fölsku skjóli Jón varði drjúgum tíma í að ræða Icesave-reikninga Landsbankans. Hann sagði að sér hafi ekki orðið um sel þegar innlánasöfnunin á reikningana hafi verið orðin jafn- mikil og raun bar vitni. Ekki hafi hins vegar þurft neitt leyfi frá FME til að opna slík útibú erlendis heldur hafi verið nóg að tilkynna það þangað. „Már fannst þessi öra söfnun innlána í annarri mynt í öðrum löndum ógæfuleg,“ viðurkenndi Jón. Hann hafi oftsinnis rætt það við lögfræðinga FME, einkum for- stjórann Jónas Fr. Jónsson, hvort ekki væri hægt að gera eitthvað til að stöðva þessa innlánasöfn- un. Það hafi verið mat lögfræð- inganna að svo væri ekki. Jón nefndi einnig áhyggjur sínar af því að Landsbankinn skyldi vísa til þess í kynningum fyrir reikningana erlendis að samkvæmt evrópskum reglum væru þeir tryggðir af íslenska innstæðutryggingasjóðnum án þess að gera nokkra grein fyrir því hvernig bankinn stóð í raun. „Þeir voru að sigla í fölsku skjóli að mínu áliti,“ sagði Jón. Þá sagði Jón, sem einnig er fyrrverandi seðlabankastjóri, að sér hefði ekki fundist það vel ráðið hjá Seðlabankanum að aflétta bindiskyldunni af Icesave- reikningunum. Icesave í Hollandi ekki á radarnum Jón staðfesti það sem fram hafði komið í máli Davíðs Oddssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra, deginum áður, að þeir tveir hefðu sammælst um að reyna að leggja stein í götu Kaupþings þegar bankinn hugðist kaupa hollenska bankann NIBC í upphafi árs 2008. Þetta hafi tekist, jafnvel þótt vafi hafi leikið á því hvort lagaheimildir væru fyrir hendi til að koma í veg fyrir kaupin. Landsdómarinn Eiríkur Tóm- asson spurði Jón sérstaklega að því hvort ekki hefði komið til álita – í ljósi þess að komið hefði verið í veg fyrir þau kaup – að reyna jafnframt að hindra Lands- bankann í að opna Icesave-reikn- inga í Hollandi og stækka þar með enn frekar. „Stofnun Icesave-reikninga í Hollandi var alls ekki á minni radarsjá,“ svaraði Jón. Mönnum hafi hreinlega ekki dottið í hug að Landsbankamenn myndu gera slíkt. Ómöguleg dótturfélagavæðing Þá var rætt um mögulegan flutn- ing Icesave-reikninganna yfir í dótturfélag og kom fram í máli Jóns að það hefði líkast til verið ómögulegt verk enda hafi eign- irnar sem Landsbankinn hefði þurft að færa utan á móti verið of lélegar og ekki þolað skoðun. Geir H. Haarde hafi hins vegar verið mjög áfram um að það næði fram að ganga. Aldeilis ónógt fjármálaeftirlit UTAN RADARS Jón segir að mönnum hafi einfaldlega ekki dottið í hug að Lands- bankinn myndi stofna Icesave-reikninga í Hollandi. RÉTTABLAÐIÐ/GVA Ógerlegt var að flytja bankana úr landi eða að minnka kerfið með eignasölu vegna þess að það hefði líklega keyrt það í þrot. Þetta sagði Ingimundur Friðriksson, fyrrum seðlabankastjóri, í vitnastúku í gær. Ingimundur sagði það hafa skinið í gegn í viðhorfi erlendra aðila að stóru bankarnir þrír voru settir undir sama hatt. „Þess vegna var ljóst að vandi eins yrði vandi annars.“ Eitt af því sem Geir H. Haarde er gefið að sök er að hafa ekki beitt sér fyrir því að minnka bankakerfið eða að fá bankana til að flytja höfuðstöðvar sínar erlendis. Að mati Ingimundar var þó algjörlega óraunhæft að gera hvorugt þegar komið var fram á árið 2008. „Það verður að hafa í huga að á þessum tíma var nánast ógerlegt að selja eignir. Það voru engir kaupendur nema á svo lágu verði að bankarnir þyrftu að taka á sig tap vegna sölu slíkra eigna.“ Slíkar sölur hefðu ekki verð til að styrkja eiginfjárstöðu bankanna heldur hefðu haft þveröfug áhrif. Auk þess hafi það ekki verið hægt með einhliða ákvörðun að flytja bankana úr landi. Stjórnvöld í því landi sem átti að flytja þá til hefðu þurft að samþykkja það líka, og ólíklegt væri að þau myndu gera það. „Áhugi allra stóð til þess að bankarnir minnkuðu [...]Ég hef enga ástæðu til að draga það í efa að það hafi verið vilji forsætisráðherra líka,“ sagði Ingimundur. Þann 16. maí 2008 gerði Seðlabanki Íslands gjaldmiðlaskiptasamning við seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Hluti af því samkomulagi fól í sér skuldbindingu af hálfu Íslands þess efnis að draga úr stærð íslensku bankanna. Aðspurður um hvort að það hafi verið gripið til einhverra aðgerða í kjölfarið til að efna það samkomulag sagði Ingimundur að það hefði ekki verið hægt að knýja fram breytingar sem hefðu getið af sér tjón fyrir bankanna. Því hafi ekki verið farið í neinar meiriháttar aðgerðir, enda hafi þær verið „algjörlega óraunhæfar“. -þsj Vandi eins banka yrði vandi annars INGIMUNDUR FRIÐRIKSSON Íslensku bankarnir voru komnir með óorð á sig í fjármála- heiminum þegar árið 2005 og þá voru erlendir bankar farnir að íhuga að taka skortstöðu gegn þeim. Getgátur voru uppi um það hvenær bankarnir voru komnir í „djúp- stæð eiginfjárvandræði“ – en sumir segja að það hafi verið strax árið 2005. Þetta kom fram í máli Jóns Þ. Sigurgeirssonar, fram- kvæmdastjóra hjá Seðlabanka Íslands og fyrrverandi starfs- manni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, fyrir Landsdómi í gær. Jón, sem hefur mikla reynslu af störfum að efnahags- málum, sagðist hafa séð ýmsar krísur en enga nærri því jafnalvarlega og þá sem skall á 2008. Jón var spurður um áætlanir þess efnis að flytja bankana úr landi eða minnka þá með því að selja eignir. Jón benti á að það hafi ekki verið hægt og að auk þess hafi forsvarsmenn bankanna sjálfra tæpast viljað það. Hann nefndi Kaupþing sérstaklega og sagði að ef til þess hefði komið hefði Kaupþing þurft að sýna eignasafn sitt, sem nú hafi komið í ljós að hafi verið „alveg hræðilegt“ – einkum vegna þess að hve miklu leyti bankinn, eins og aðrir, hafði fjármagnað sig sjálfur. Í tengslum við þetta sagði Jón að það væri með ólíkindum að virt, alþjóðleg endurskoðunarfyrirtæki hefðu skrifað upp á ársreikninga íslensku bankanna. Til samanburðar hefði svikarinn Bernie Madoff, sem afplánar nú 150 ára fangelsis- dóm, notast við einyrkja í endurskoðun. Jón sagði að það hefði vakið athygli manna þegar skuldatryggingarálag á Kaupþing hafi skyndilega tekið að lækka skart árið 2008. „Líklega hafa þeir verið að manipúlera með það eins og annað,“ sagði Jón. - sh Endurskoðun bankanna með ólíkindum JÓN SIGURGEIRSSON Orðrétt Ég held að þetta hafi verið fyrir sjálfan mig. Það var ýmislegt sem við upp- lifðum þetta ár. Ingimundur Friðriksson um minnisblað sem hann gerði um atburði ársins 2008 og er dagsett 13. október 2008. Nú er ég bara komin út í einhverja vitleysu. Það er ekkert um bindiskyldu á þessari blaðsíðu. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari ruglaðist í leit sinni í gögnum málsins, sem telja þúsundir blaðsíðna. Aldrei. Andri Árnason spyr Baldur Guðlaugs- son hvort einhvern tímann hafi verið rætt um að breikka eða víkka hlutverk samráðshópsins. Af mínum kynnum af mínum gamla skólabróð- ur Baldri þá var ég ansi hallur undir hans sjónarmið í mörgum málum. Bolli Þór Bollason um að hann hafi verið sammála Baldri Guðlaugssyni um að engin ríkisábyrgð væri á Icesave. Líklega hafa þeir verið að manipúlera með það eins og annað. Jón Þ. Sigurgeirsson um skuldatrygg- ingarálag Kaupþings, sem tók skyndilega að lækka árið 2008. Stígur Helgason stigur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.