Fréttablaðið - 08.03.2012, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 08.03.2012, Blaðsíða 46
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR38 folk@frettabladid.is ÍSLENSKRA KRÓNA fengust fyrir Christian Dior-kjólinn sem Natalie Portman klæddist á Óskarsverðlaununum. Kate Young, stílisti Portman, fékk kjólinn lánaðan í bresku búðinni Rare Vintage þar sem hann seldist um leið og Portman skilaði honum. 6.284.500 Gamanleikarinn Will Ferrell segir aðdáendur sína iðulega verða vonsvikna þegar þeir hitta hann í lifanda lífi. Þetta kemur fram í viðtali sem hann veitti tímaritinu Rolling Stone. „Ég heilsa þeim og segi: „Hæ, hvað segir þú gott?“ og þau segja á móti: „Hvað ætlarðu að gera fyndið? Eruð þið viss um að þetta sé rétti maðurinn, hann er ekki að gera neitt fyndið?“ Ég er hræddur um að þau verði hrylli- lega vonsvikin öll sem eitt,“ sagði leikarinn sem er nú að kynna nýj- ustu gamanmynd sína, Casa de mi Padre, en þar talar hann ein- göngu spænsku. Lítið fyndinn í alvörunni EKKI FYNDINN Will Ferrell segir aðdá- endur sína verða vonsvikna yfir því hversu lítið fyndinn hann er í raunveru- leikanum. NORDICPHOTOS/GETTY Þýski plötusnúðurinn Micha Moor er væntanlegur aftur til landsins og spilar á 800 Bar á Selfossi föstudaginn 9. mars. Moor hefur komið til landsins nokkrum sinnum áður og ávallt slegið í gegn. Hann sló fyrst í gegn með lagi sínu Space en síðan þá hefur hann gefið út vin- sæl lög eins og Love is Chemical, Learn to Fly, sem var vinsælasta lagið á Íslandi sumarið 2010, og Keep on Rising, sem var eitt heit- asta lagið á Íslandi síðasta sumar. Micha Moor á án efa eftir að slá í gegn á Selfossi um helgina, en miðasala er í fullum gangi á midi.is. Micha Moor á Selfossi Á ÍSLANDI Micha Moor er einn vinsælasti plötusnúður heims um þessar mundir. Mila Kunis er eflaust öfunduð af mörgum fyrir útlit sitt, enda marg- oft verið valin á alls kyns lista yfir kynþokka og fegurð og er eftirsótt af mörgum. Hún er þó ekki fullkomlega ánægð með sjálfa sig, frekar en flestar konur. Í viðtali við leikkonuna. sem kemur til með að birtast í aprílhefti Bazaar- tímaritsins opnar hún sig meðal ann- ars um það að hún vildi óska þess að hún væri með stærri rass. Kunis ræddi alls kyns mál í við- talinu og sagðist meðal annars vera á móti lýtaaðgerðum, en að ef hún yrði spurð álits á þeim aftur eftir 10 ár væri þó aldrei að vita nema sú skoðun hefði breyst. Leikkonan er ættuð frá Úkraínu, en hún flutti til Bandaríkjanna með fjölskyldu sinni þegar hún var 7 ára gömul. Flutningarnir voru henni afar erfiðir og hún segist ekki muna eftir fyrsta árinu í Bandaríkjunum. Hún segist hafa verið eins og blind og heyrnarlaus fyrst um sinn, en hún kunni ekki stakt orð í ensku. Kunis er einhleyp, en hún hætti með kærasta sínum til átta ára, barna- stjörnunni Macaulay Culkin, árið 2010. „Ég var hamingjusöm í sambandi, en ég er líka hamingjusöm ein,“ segir Kunis í viðtalinu og bætir við að hún fari ekki mikið á stefnumót, og þyki best að eyða kvöldum í rólegheitum heima hjá sér með gott vínglas í hönd. Milu Kunis dreymir um stærri rass EKKI ÁNÆGÐ Leikkonan Mila Kunis er ekki fullkomlega ánægð með sjálfa sig, þrátt fyrir að vera talin ein kynþokkafyllsta kona heims. © 2012 Shure Europe GmbH www.drum-mastery.eu Presented by: LOKA BARÁTTAN! Fimm áhuga trommuleikarar valdir úr hópi keppenda frá 23 löndum keppast um að verða alþjóðlegi Shure Drum Mastery siguverarinn. OG ÞITT ATKVÆÐI RÆÐUR ÚRSLITUM! LOKABARÁTTAN UM HEIÐURSNAFNBÓTINA (5 ÞÁTTAKENDUR/5 TROMMUSETT) + SÉRSTAKUR GESTUR: GULLI BRIEM (MEZZOFORTE) + DJ PAUL CROGNALE (LONDON, UK) STEMMING FYRIR OG EFTIR ORUSTU Sjáið keppendur í úrslitum á vefslóðinni: www.drum-mastery.eu 10. MARS 2012 KL. 21:00 GAMLI GAUKURINN AÐGANGUR ÓKEYPIS Tryggvagötu 22, 101 Reykjavík, www.gaukurastong.is DRUM MASTERY LOKA BARÁTTAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.