Fréttablaðið - 08.03.2012, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 8. mars 2012 39
Eftir miklar vangaveltur staðfesti Armenía
þátttöku sína í Eurovision-keppninni í Bakú 17.
janúar síðastliðinn. Nú hefur þjóðin þó dreg-
ið það til baka, eftir að armenskir söngvarar
söfnuðu undirskriftum gegn þátttöku, og til-
kynntu um að þeir kæmu ekki til með að taka
þátt.
Lengi hefur ríkt óvild á milli Armeníu og
Aserbaídsjan og óttuðust Armenar um öryggi
landsmanna sinna í Bakú. Löndin háðu stríð á
árunum 1988 til 1994 og síðan þá hefur andað
köldu milli landanna, þrátt fyrir að friðarsátt-
máli hafi verið undirritaður við stríðslok.
Armenía tók fyrst þátt í Eurovision-söngva-
keppninni árið 2006 og hefur endað í efstu tíu
sætunum í öllum keppnum þar til í fyrra þegar
söngkonan Emmy kom lagi sínu, Boom Boom,
ekki upp úr undankeppninni. - trs
Armenía ekki með í Eurovision
BOOM BOOM Söngkonan Emmy kom lagi Armena ekki upp úr
undanúrslitunum í Eurovision-keppninni sem haldin var í Þýska-
landi í fyrra.
Annan apríl hefst endurhljóð-
blönduð útgáfuröð með lögunum
af plötu Bjarkar, Biophilia. Þeir
sem taka þátt í verkefninu eru
These New Puritans, Matthew
Herbert, El Guincho, Hudson
Mohawke, Alva Noto, 16 Bit,
Current Value, King Cannibal og
pönk-rappsveitin Death Grips frá
Kaliforníu.
Lögin verða gefin út með
tveggja vikna fresti á fjögurra
mánaða tímabili. Það er plötu-
snúðurinn og upptökustjórinn
Current Value sem hefur leik-
inn með lögunum Crystalline og
Solstice. Hann aðstoðaði Björk
einmitt á Biophilia, rétt eins og
Matthew Herbert og 16 Bit.
Biophilia í
nýrri útgáfu
ENDURHLJÓÐBLÖNDUÐ Lögin af
Bjarkarplötunni Biophilia verða gefin út í
endurhljóðblönduðum útgáfum.
Söngkonan Debbie Harry lenti í
því um helgina að vera ruglað við
leikkonuna Lindsay Lohan. Kon-
urnar gistu báðar á Mercer-hótel-
inu í New York helgina sem leið og
því var urmull af ljósmyndurum í
biðstöðu við hótelið þá helgi.
Ljósmyndarar sátu um Lohan
vegna framkomu hennar í Sat-
urday Night Live og urðu kátir
þegar leikkonan yfirgaf Mercer-
hótelið snemma á sunnudags-
morgni. Í ljós kom þó að umrædd
kona var ekki Lohan heldur söng-
konan Debbie Harry sem sló í
gegn með hljómsveitinni Blondie
á áttunda áratugnum. Harry er 66
ára gömul og 41 ári eldri en Lohan.
Fóru mannavillt
MANNAVILLT Ljósmyndarar töldu
Debbie Harry vera enga aðra en Lindsay
Lohan. NORDICPHOTOS/GETTY
Victoria Beckham upplýsir
lesendur franska tímaritsins
Madame Figaro að hún elski
tísku of mikið til þess að nokkru
sinni klæðast íþróttagalla.
„Þú munt aldrei sjá mig klæð-
ast íþróttagalla á almannafæri.
Ég elska tísku einfaldlega of
mikið til að klæðast þannig flík.
Það sama á við um UGG skóna,
ég klæðist þeim aðeins innan
veggja heimilisins,“ sagði tísku-
drósin og hönnuðurinn í viðtali
við tímaritið.
Beckham sagðist einnig
vera „háð“ hönnun tískuhúss-
ins Prada, gollum og töskum frá
Hermés.
Aldrei í
íþróttaföt
Opið laugard. kl. 10-14