Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.03.2012, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 08.03.2012, Qupperneq 12
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR12 12 hagur heimilanna Tollar á nautakjöti og lambakjöti hafa verið lækkaðir til þess að koma á jafnvægi á kjötmark- aði í Noregi. Framleiðsla á nautakjöti er minni en eftir- spurn og hefur innflutning- ur þess vegna aukist. Komið verður á jafnvægi á kjötmarkaði í Noregi í ár með innflutningi og hafa tollar á nautakjöti og lambakjöti verið lækkaðir í því skyni, að því er segir á vef norsku landbúnaðar- stofnunarinnar. Samkvæmt spám um horfur á norska kjötmarkaðnum í ár verð- ur framleiðslan á svínakjöti og kjúklingum í Noregi nóg til þess að anna eftirspurninni en sam- kvæmt samningi við Alþjóða- viðskiptastofnunina, WTO, gilda svokallaðir WTO-innflutnings- kvótar um bæði fiðurfé og svína- kjöt. Vegna nýs samnings við Evrópusambandið (ESB) er búist við því að fugla- og svínakjöt bæt- ist við norska markaðinn en kvót- inn fyrir svínakjöt er 600 tonn án tolla og 800 tonn fyrir fuglakjöt. Framleiðsla á nautakjöti í Nor- egi er talsvert minni en eftir- spurnin. Framleiðslan hefur minnkað á undanförnum árum og innflutningur hefur þess vegna aukist. Í ár verður flutt inn nautakjöt á bæði WTO-kvóta og ESB-kvóta. Þar við bætist inn- flutningur á nautakjöti til Noregs samkvæmt samningum við Nami- bíu, Botsvana og Svasíland auk Suður-afríska tollabandalagsins. Á vefsíðu norsku landbúnaðar- stofnunarinnar segir að innflutn- ingurinn verði ekki nægur til þess að koma á jafnvægi á kjöt- markaðnum. Það þýði þó ekki að skortur verði á nautakjöti í ár. Stofnunin geti lækkað tolla á kjöti til þess að auka innflutning á þeim tímabilum sem kjöt vant- ar. Lágir tollar á nautakjöti verða í gildi þar til 1. apríl. Greint er frá því að markað- urinn fyrir lambakjöt sé nokkuð stöðugur en árlega er flutt inn lambakjöt til Noregs frá Íslandi, Namibíu, Botsvana og Svasílandi. Búist er við meiri framleiðslu á lambakjöti í Noregi í ár en í fyrra þegar beit var léleg. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir tímabundn- um skorti á lambakjöti og hafa tollar þess vegna verið lækkaðir. Tollkvóti Íslands fyrir lamba- kjöt til Noregs er 600 tonn. Af einstökum löndum er Noregur mikilvægasti markaðurinn fyrir lambakjötið, að sögn Ernu Bjarna- dóttur, hagfræðings hjá Bænda- samtökunum. ibs@frettabladid.is Jafnvægi komið á með innflutningi LAMBAKJÖT Tollkvóti Íslands fyrir lambakjöt til Noregs er 600 tonn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Niðurstöður evrópskra rannsókna sýna að ökumenn yngri en 25 ára eru í þrisvar sinnum meiri hættu á að lenda í alvarlegu umferðaróhappi heldur en eldri ökumenn. Framleiðendur Ford-bifreiða setja í haust á markað bíl sem hægt verður að fá með aukabúnaði sem fær ungt fólk til þess að aka varlegar. Með búnaðinum, sem kallast MyKey, verður hægt að stilla inn þann hámarks- hraða sem hægt verður að aka bílnum á, setja dempara á hljóðið úr græjunum í bílnum og minna ökumann á að festa á sig öryggisbeltið. Á sumum bílum verður um staðlaðan búnað að ræða en kaupa verður búnaðinn fyrir aðra bíla. ■ Bílar Hægt að takmarka hraða í nýjum bíl frá Ford GÓÐ HÚSRÁÐ Stundum hefur fólk lent í vandræðum við kökubakstur þar sem koma þarf kremi eða rjóma á milli laga. Óþarfa umstang er að baka marga botna því með einföldum og áhrifaríkum hætti er hægt að skipta upp köku sem bökuð hefur verið í djúpu bökunar- formi. Gæta þarf þess að kakan fái að jafna sig aðeins áður en hún er tekin úr ofninum, en síðan er brugðið snæri á hana miðja, settur á einfaldur hnútur og dregið í snærisendana þannig að lykkjan sem myndast á snærinu skeri kökuna áður en hnúturinn myndast. Síðan er einfalt að draga snærið með hnútnum út úr kökunni. Gott er að nota girni eða jafnvel tvinna við verkið, því gildari þráður getur orðið til þess að upp úr botninum molnar eða brotnar. Hefja á flokkun á sorpi til end- urvinnslu í Kópavogi í sumar. Markmiðið er að endurvinna allt að fjórðung af því sorpi sem íbú- arnir skila frá sér. „Á hverju ári falla til um 175 kílógrömm af sorpi á hvern íbúa Kópavogs eða samtals 1.300 tonn á ári. Með sorpflokkuninni er vonast til að um 44 kílógrömm af þessum 175 kílógrömmum fari til endurvinnslu,“ segir í tilkynn- ingu frá Kópavogsbæ. Fram kemur að Kópavogsbær hafi í upphafi ársins efnt til sam- eiginlegs útboðs með Mosfellsbæ á evrópska efnahagssvæðinu. Alls hafi sjö tilboð borist og til- boð frá Hafnarbakka – Flutn- ingatækni ehf. verið hagstæðast. „Hafist verður handa við að dreifa um níu þúsund bláum end- urvinnslutunnum til bæjarbúa í maí og er miðað við að það taki um það bil fimm vikur að koma þeim til allra íbúa bæjarins,“ segir í fréttinni. „Markmið Kópavogsbæjar er að auka þjónustu við bæjarbúa, hvetja til endurvinnslu og draga úr úrgangi sem fer til urðunar. Það þýðir að bæjarbúar hafa framvegis tvær tunnur við hús sín; þá svörtu sem verður áfram undir almennt sorp og þá bláu sem í fer pappír, dagblöð, pappa- kassar og fernur sem sent er til endurvinnslu.“ - gar Níu þúsund endurvinnslutunnum dreift í Kópavogi: Vilja endurvinna fjórðung sorpsins SAMIÐ UM SORPTUNNUR Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri hjá Kópavogsbæ, undirrituðu samkomulag um endurvinnslutunnur við fulltrúa Hafnarbakka, Svein Hannesson og Ómar Þórðarson. ER SÚ HÆKKUN sem hefur orðið á verði 2 lítra kókflösku á 10 árum. Í febrúar kostaði flaskan 275 krónur en tíu árum fyrr kostaði hún 205 krónur. 34,15% „Að hjóla er eins og kynlíf. Maður gleymir því aldrei. Svo eru hjólreiðar líka fín hreyfing.” Safnaðu mottu og áheitum á www.mottumars.is H :N M ar ka ðs sa m sk ip ti / S ÍA Hægt er að skrá sig á námskeiðið með tölvupósti á lagmuli@heilsuhusid.is eða í síma 578 0300 milli kl. 10 -18 virka daga. Verð kr. 6.100,- Ath! Takmarkaður fjöldi Á námskeiðinu verður þessum spurningum m.a. svarað: • Hvernig er best að byrja? • Hvernig á að sá/forrækta? • Hvernig er plantað út? • Hvaða áhöld þarf? •Hvernig fá plönturnar næringu? • Hvað þarf til að fá uppskeru allt sumarið? • Hvaða jurtir eru fjölærar? HEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR kennir hve auðvelt er að rækta grænmeti og kryddjurtir og gefur góð ráð sem nýtast byrjendum jafnt sem lengra komnum. Miðvikudaginn 14.mars kl. 19.30 - 22.30 Fimmtudaginn 22.mars kl. 19.30 - 22.30 Þriðjudaginn 27.mars kl. 19.30 - 22.30 Húsgagnaverslunin IKEA hefur innkallað ofngrindur úr NUTID og FRAMTID ofnum þar sem grindurnar sem fylgdu með ofnunum eru ekki nógu breiðar. Þær geta þess vegna dottið niður við notkun og valdið brunaslysum. Í tilkynn- ingu frá IKEA kemur fram að ekki hafi borist tilkynningar um slys. Innköllunin nær aðeins til ofna með framleiðsludagsetningu 1134-1150 (ár/ vika) og ákveðin vörunúmer. Framleiðsludagsetningu og vörunúmer má sjá á miða framarlega innan í ofninum þegar hurðin er opnuð. Sjálfar ofnskúffurnar passa í ofninn og eru ekki innkallaðar. ■ Slysahætta IKEA innkallar ofngrindur vegna hættu á brunaslysum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.