Fréttablaðið - 08.03.2012, Qupperneq 27
KREPPA
Fjöldi rannsókna
sýnir að snyrti-
vörur seljast vel
og jafnvel betur
þótt efnahagur-
inn versni, eins
ótrúlega og það
kann að hljóma.
Svo virðist sem
fólk verji einfald-
lega meiri pening-
um í útlitið en skeri
niður á öðrum
sviðum.
Þótt kaupmáttur landsmanna hafi minnk-að jafnt og þétt frá seinni hluta ársins 2008 bendir flest til að þeir séu tilbúnir
að reiða fram háar fjárupphæðir fyrir snyrti-
vörur. Haft var samband við starfsmenn í
snyrtivörudeildum Debenhams í Smáralind,
Hagkaup Litlatúni, Lyfja og heilsu Kringlunni
og Lyfju Lágmúla og að sögn nokkurra eru
dæmi um að andlitskrem í þekktum merkjum
seljist á allt að 80.000 krónur stykkið.
„Salan á snyrtivörum er góð. Líka á þeim
dýru,“ segir Anna Bergmann snyrtifræðing-
ur hjá Debenhams í Smáralind. „Auðvitað
dróst salan í hágæðakremum eitthvað aðeins
saman í kreppunni en hún hefur haldið sér
mjög vel,“ tekur hún fram. Aðrir viðmælendur
hafa svipaða sögu að segja.
Að þeirra sögn má skipta snyrtivörum í
þrjá mismunandi verðflokka sem miðast við
merki, gæði og virkni. Þannig er algengt að
ódýrasti flokkur andlitskrema kosti 800 til
10.000 krónur. Millidýr andlitskrem kosta frá
10.000 til 20.000 krónur. Síðasti verðflokkur-
inn er breiður, allt frá 20.000 og upp í 80.000
kr. Eftirspurnin ræðst af verði og þannig selj-
ast ódýrustu andlitskremin best og svo koll af
kolli að sögn viðmælenda. Þeir segja líka tölu-
vert seljast af millidýrum kremum. Til marks
um það áætlaði starfsmaður Lyfja og heilsu í
Kringlunni að í þeim verðflokki selji verslun-
in allt að 40 krem í mánuði. Flestir segja fína
sölu á kremum sem kosta upp í 50.000 krónur.
Minnst fer af kremum sem kosta allt að 80.000
krónur en þó fara nokkur mánaðarlega.
En hverjir eru tilbúnir að verja allt að 80.000
krónum í kaup á einu kremi? Að sögn viðmæl-
enda eru viðskiptavinirnir undantekninga-
laust konur en karlar kaupa sér frekar krem
og aðrar snyrtivörur í ódýrasta verðflokki.
Yfirleitt séu á ferð fastakúnnar, bæði í efnaðri
kantinum og aðrir sem eru til í að skera niður
á öðrum sviðum til að eiga fyrir kostnaðinum.
„Þetta eru oft kúnnar sem halda tryggð við
ákveðin merki og sumir eru tilbúnir að fórna
öðru í staðinn,“ bendir Anna á. ■ rve
EFTIRSÓTT
EÐALKREM
MUNAÐUR Hágæða andlitskrem og aðrar snyrtivörur
seljast vel þrátt fyrir minni kaupgetu landsmanna.
Oasis Kringlan s. 553-5111 | Oasis Smáralind s. 554-7980
Finndu okkur á Facebook
20 – 30%
afsláttur
af peysum
8. – 11. mars
Þættirnir Sex and the City höfðu mikil áhrif á tískuheim-
inn. Leikkonan smávaxna Sarah Jessica Parker var þar
fremst í flokki og skartaði ófáum flíkum eftir bæði heims-
þekkta og minna þekkta tískuhönnuði. Konur um allan
heim heilluðust af klæðaburði Carrie og vinkvenna
hennar. Fyrir vikið hefur Sarah Jessica Par-
ker orðið táknmynd tískunnar í margra
augum. Þau merki sem Parker er hvað
þekktust fyrir að skarta eru Oscar de
la Renta, Halson Heritage, Chanel og
Alexander McQueen. Þá eru skór frá
Manolo Blahnik ekki langt fjarri.
TÍSKUTÁKN
■ Sarah Jessica Parker
VINSÆL Hágæða
snyrtivörur seljast vel
þrátt fyrir að kreppi að.
LAGERSALAN
Nú einnig fatnaður úr TUZZI í Kringlunni
DRANELLA • CULTURE • ULDAHL
Stærðir 34 – 46
Þýsk og dönsk gæðavara á ótrúlegu verði
70–90% afsláttur af ÖLLUM
fatnaði og skóm!
2. hæð Engjateigi 5
Opið: Fim. og föst. 12-18. Laug 10-16
NÚ EINNIG KÁPUR OG ÚLPUR
TÍSKA| FÓLK| 3