Fréttablaðið - 08.03.2012, Qupperneq 38
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
Hlutverk hönnuða verður til
umræðu á fyrirlestradegi sem
markar upphaf HönnunarMars
þann 22. mars næstkomandi. Dag-
inn þann munu fjórir framsæknir
hönnuðir stíga á stokk og greina
frá hugmyndum sínum. Þema fyr-
irlestradagsins er samstarf þvert á
greinar - mikilvægi þess að sækja
sér þekkingu úr ólíkum áttum og
deila sérþekkingu milli fagsviða.
Hönnuðirnir sem koma fram
eru í fyrsta lagi Marije Vogelzang,
frumkvöðull á sviði matarhönn-
unar. Vogelzang leitar hugmynda í
siðum, sögu, menningu og uppruna
matvæla en hún stofnaði og hann-
aði meðal annars tilraunakenndu
veitingastaðina PROEF í Rotter-
dam og Amsterdam.
Í öðru lagi Tuomas Toivonen,
arkitekt og tónlistarmaður. Toivo-
nen stendur nú fyrir opnun fyrstu
almenningssánunnar í Helsinki
um langt árabil. Markmiðið er að
skapa stað fyrir samveru á grund-
velli baðmenningar í borginni.
Þriðji hönnuðurinn sem
heldur fyrirlestur er Koert van
Mensvoort, vísindamaður og lista-
maður hjá NextNature.net. Fátt er
Koert van Mensvoort óviðkomandi,
hann er doktor í heimspeki og tekst
á við áskoranir breyttra tíma, sam-
spil manns, náttúru og tækni.
Loks kemur fram Hjalti Karls-
son, grafískur hönnuður. Hjalti
stofnaði hönnunarstúdióið Karls-
sonwilker í New York ásamt Jan
Wilker árið 2000, en þeir félagar
höfðu áður unnið saman hjá Stefan
Sagmeister. Meðal viðskiptavina
þeirra má nefna Vitra, MoMA og
New York Times Magazine.
Fyrirlestrarnir fara fram í
Gamla bíói og hefst dagskráin
klukkan tíu. Kynnir og stjórnandi
verður Guðmundur Oddur Magnús-
son, prófessor við LHÍ.
- sbt
Framsæknir hönn-
uðir ræða málin
VÍÐUR SJÓNDEILDARHRINGUR Marije Vogelzang og Koert van Mensvoort eru á
meðal þeirra sem koma fram á fyrirlestradegi HönnunarMars.
Sigríður Víðis Jónsdóttir
hlýtur viðurkenningu Hag-
þenkis í ár fyrir verk sitt
Ríkisfang: Ekkert, sem
byggir á viðtölum við
palestínskar flóttakonur.
„Vinnan við þessa bók var dýrmæt
reynsla fyrir mig persónulega, en
viðbrögðin við henni eru ekki síður
ánægjuleg; að sjá að þetta er efni
sem getur snert við svo mörgum og
að fólk getur sett sig í spor þessara
flóttakvenna. Þær voru í óbæri-
legri stöðu í Írak en komu svo hing-
að, mállausar, til framandi lands
og komu standandi niður. Þær eru
hetjur,“ segir Sigríður Víðis Jóns-
dóttir sem í gær var sæmd viður-
kenningu Hagþenkis, félags höf-
unda fræðibóka og kennslugagna,
fyrir bók sína Ríkisfang: Ekk-
ert. Flóttinn frá Írak á Akranes.
Verðlaunaupphæðin er ein millj-
ón króna og koma öll fræðirit sem
gefin eru út á Íslandi til greina við
veitingu viðurkenningarinnar.
Í ályktunarorðum viðurkenning-
arráðs Hagþenkis er verki Sigríð-
ar, sem byggir á viðtölum við átta
palestínskar flóttakonur sem komu
til Akraness haustið 2008 ásamt
ungum börnum sínum, lýst sem
„metnaðarfullu verki sem sam-
þættir með upplýsandi og áhrifa-
miklum hætti lífshlaup einstak-
linga og sögulega atburði sem þeir
hafa litla sem enga stjórn á“. Þá
gat formaður viðurkenningarráðs-
ins, Dr. Unnur Birna Karlsdóttir,
þess í ávarpi sínu að ritið væri lóð á
vogarskálar mennskunnar í heim-
inum.
Sigríður segir viðurkenn-
ingu Hagþenkis mikinn heiður,
en að baki verkinu liggur nærri
þriggja ára þrotlaus vinna. „Það
er ánægjulegt að hafa náð til svo
breiðs lesendahóps. Ég hef heyrt
svo marga jákvæða hluti frá ótal
mörgum og greinilegt að bókin
hefur haft áhrif. Fyrirfram von-
aðist ég auðvitað til þess að fólk
vildi ræða málefni flóttafólks
eftir lestur bókarinnar og sú hefur
svo sannarlega orðið raunin. Sem
dæmi hafa ýmsir hópar, félaga-
samtök og fleiri, tekið sig saman og
skipulagt umræður um þessi mál. Í
raun hefur verið svo mikið að gera
í kringum gerð og útgáfu bókarinn-
ar að þessa dagana er ég aðeins að
blása úr nös og jafna mig,“ segir
Sigríður og bætir aðspurð við að á
þessari stundu hafi hún ekki gert
áform um frekari bókaskrif, en
hún starfar í dag sem upplýsinga-
fulltrúi UNICEF á Íslandi.
Höfundurinn segir náið og gott
vináttusamband hafa myndast
milli sín og umfjöllunarefna bók-
arinnar, en sjálf kemur Sigríður
upprunalega frá Akranesi. „Sú vin-
átta ríkir enn og þegar ég fer upp á
Skaga geng ég hús úr húsi í heim-
sóknir.“ kjartan@frettabladid.is
Flóttakonurnar eru hetjur
STÓR STUND Palestínsku flóttakonurnar, umfjöllunarefni bókarinnar Ríkisfang: Ekkert,
voru mættar í Þjóðarbókhlöðuna þar sem Sigríður Víðis Jónsdóttir veitti verðlaunum
Hagþenkis viðtöku. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Auk bókar Sigríðar voru eftir-
talin verk tilnefnd til verðlauna
Hagþenkis:
Mannvist
Sýnisbók íslenskra fornleifa.
Aðalhöfundur og ritstjóri er Birna
Lárusdóttir.
Nútímans konur
Menntun kvenna og mótun kyn-
gervis á Íslandi 1850-1903 eftir
Erlu Huldu Halldórsdóttur.
Íslenskur fuglavísir
eftir Jóhann Óla Hilmarsson.
Landnám
Ævisaga Gunnars Gunnarssonar
eftir Jón Yngva Jóhannsson.
Íslensk listasaga I-V frá síðari
hluta 19. aldar til upphafs 21.
aldar
Ritstjóri er Ólafur Kvaran.
Jón forseti allur?
Táknmyndir þjóðhetju frá andláti
til samtíðar eftir Pál Björnsson.
Trúmaður á tímamótum
Ævisaga Haralds Níelssonar eftir
Pétur Pétursson.
Lestrarlandið
Ritstjóri er Sylvía Guðmundsdóttir.
Sæborgin
Stefnumót líkama og tækni í
ævintýri og veruleika eftir Úlfhildi
Dagsdóttur.
TILNEFNINGAR
www.facebook.com/drdenimiceland
LAUGAVEGI 7 & SMÁRALIND
-40%AF ÖLLUMÚTSÖLUVÖRUM
HLJÓMSVEITIN AGENT FRESCO spilar á órafmögnuðum tónleikum ásamt strengjasveit í Gamla Bíói annað
kvöld, föstudagskvöldið 9. mars, en sú sveit leikur ekki oft órafmagnað. Agent Fresco gaf út breiðskífuna A Long Time
Listening í lok árs 2010 en um þessar mundir er sveitin að undirbúa tónleikaferð um Evrópu.