Fréttablaðið - 08.03.2012, Síða 50
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR42
sport@frettabladid.is
NIGEL QUASHIE verður að öllu óbreyttu spilandi aðstoðarþjálfari hjá 1. deildarliði ÍR næsta tímabilið,
auk þess að sinna þjálfun í nýstofnum afreksskóla félagsins. Eftir á að ganga frá samningum við Quashie sem
spilaði sem atvinnumaður í Englandi frá 1995 til 2010. Hann er þó aðeins á 34. aldursári.
FÓTBOLTI Ísland tapaði í gær fyrir
Danmörku, 3-1, í leik um fimmta
sætið á Algarve-æfingamótinu í
Portúgal. Hólmfríður Magnús-
dóttir skoraði mark Íslands. Liðið
komst alla leið í úrslit í fyrra en í
ár tapaði liðið öllum leikjum sínum
nema einum. Sigurður Ragnar
Eyjólfs son landsliðsþjálfari er
sáttur við niðurstöðuna enda settu
forföll og meiðsli lykilmanna stórt
strik í reikninginn að þessu sinni.
„Ég er að mestu leyti sáttur við
mótið,“ segir Sigurður Ragnar.
„Við eigum okkar mikilvægasta
leik í undankeppni EM fram undan
– gegn Belgíu í byrjun apríl – og
margir leikmenn enn á undirbún-
ingstímabilum með sínum liðum.
Þetta mót nýttist því vel til að sjá
hvernig leikmenn standa og hverj-
ir væru tilbúnir fyrir leikinn gegn
Belgum.“
Flestar bestu þjóðir heims taka
þátt í Algarve-mótinu og var
Ísland í sterkum riðli. Sigurður
Ragnar sagði ýmislegt gott við
frammistöðu Íslands þrátt fyrir
þrjá tapleiki.
„Ég var ánægður með fyrsta
leikinn sem var gegn Þýska-
landi. Við töpuðum að vísu 1-0
en spiluðum góða vörn gegn
Evrópumeisturunum. Það var
helst að ég var ósáttur við fyrri
hálfleikinn gegn Svíum en þar
var varnarleikurinn alls ekki
góður. Seinni hálfleikurinn
var svo fínn,“ segir Sigurður
Ragnar.
Hann var svo ánægð-
ur með 1-0 sigurinn
gegn Kína á mánudag-
inn en segir að leikmenn
hafi verið þreyttir gegn
Dönum í gær. Meiðsli
hafi líka sett strik í
reikninginn. „Ég valdi
21 leikmann í lands-
liðshópinn fyrir þessa
ferð en var svo bara með
þrjá nothæfa varamenn á
bekknum í þessum leik.
Ég hef aldrei lent í svo
miklum vandræðum
vegna meiðsla leik-
manna síðan ég tók
við liðinu,“ segir Sig-
urður Ragnar.
„Það jákvæða er þó
að óreyndir leikmenn
fengu tækifæri til að
spreyta sig og sumir
þeirra stóðu sig mjög
vel og stimpl-
u ð u s i g
mjög vel
inn í lands-
liðið með sinni frammi-
stöðu. Elísa Ósk Viðars-
dóttir stóð sig vel, Rakel var
góð í hægri bakverðinum og
Guðný Björk Óðinsdóttir var
góð. Ég var ekki bara að
horfa á úrslitin heldur
að finna rétta liðið fyrir
leikinn gegn Belgíu.“
Sigurður Ragnar
hefur ekki afskrifað
neinn leikmann fyrir
leikinn gegn Belgíu
þrátt fyrir meiðslin.
„Auðvitað er ástand
þeirra leikmanna mis-
jafnt en ég bind vonir
við að flestir verði
búnir að jafna sig fyrir
leikinn.“
Hann segist sáttur
við sjötta sætið á Alg-
arve. „Þetta er mjög
sterkt mót og öll liðin
fyrir ofan okkar eru
hærra skrifuð en
við. Það er meira að
segja eitt lið fyrir
neðan okkur sem
er hærra skrifað
[Noregur]. Við
verðum að vera
sátt við það.“
eirikur@frettabladid.is
Erum sátt við sjötta sætið
Ísland hafnaði í sjötta sæti á Algarve-æfingamótinu í Portúgal eftir 3-1 tap fyrir
Danmörku í leik um fimmta sætið í gær. „Góður undirbúningur fyrir mikilvæg-
asta leik okkar í undankeppni EM,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari.
HÓLMFRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR
Meistaradeildin 16 liða úrslit
APOEL Nicosia - Lyon ólokið (1-0)
1-0 Gustavo Manduca (8.). Leikurinn var fram-
lengdur og var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór
í prentun.
Barcelona - Bayer Leverkusen 7-1
1-0 Lionel Messi (25.), 2-0 Messi (42.), 3-0 Messi
(49.), 4-0 Cristian Tello (55.), 5-0 Messi (58.),
6-0 Cristian Tello (62.), 7-0 Messi (85.), 7-1 Karim
Bellarabi. (90.). Barcelona vann samanlagt 10-2.
Enski bikarinn 16 liða úrslit
Tottenham - Stevenage 3-1
0-1 Joel Byrom, víti (4.), 1-1 Jermain Defoe (25.),
2-1 Emmanuel Adebayor, víti (55.), 3-1 Jermain
Defoe (75.) Tottenham fær heimaleik á móti
Bolton í átta liða úrslitunum.
Iceland Express kvenna
Haukar - Keflavík 84-68 (32-26)
Stigahæstar: Tierny Jenkins 24 (17 frák./7
stoðs./7 stolnir), Jence Ann Rhoads 22 (7
frák./8 stoðs.), Íris Sverrisdóttir 21 - Pálína
Gunnlaugsdóttir 22, Jaleesa Butler 13 (9 frák./6
varin), Eboni Mangum 12, Hrund Jóhannsd.10.
Hamar - Fjölnir 71-77 (34-28)
Stigahæstar: Fanney Lind Guðmundsdóttir 19,
Katherine Virginia Graham 18 (10 stoðs./6
stolnir), Marín Davíðsdóttir 16 (15 frák.) - Brittney
Jones 30 (9 stoðs.), Jessica Bradley 24 (17 frák.),
Katina Mandylaris 10 (20 frák.).
Njarðvík - Snæfell 97-92 (54-43)
Stigahæstar: Lele Hardy 49 (21 frák./8 stoðs.),
Petrúnella Skúladóttir 15, Eyrún Líf Sigurðardóttir
8 - Kieraah Marlow 22 (8 frák./6 stoðs.),
Jordan Murphree 19 (13 frák./5 stoðs.), Hildur
Sigurðardóttir 16 (13 frák./7 stoðs.), Hildur Björg
Kjartansdóttir 14, Alda Leif Jónsdóttir 14.
STAÐAN Í DEILDINNI
Keflavík 26 20 6 1991-1819 40
Njarðvík 26 19 7 2161-1951 38
Snæfell 26 14 11 1906-1940 28
Haukar 26 13 13 1908-1863 26
KR 26 13 13 1904-1808 26
Valur 26 11 15 1908-1928 22
Fjölnir 26 8 18 1856-2125 16
Hamar 26 6 20 1807-2007 12
ÚRSLIT Í GÆR
Misstu ekki af stórleikjum dagsins • sérútgáfa • 8. mars 2012
216 KR.
Á DAG
Stöð 2 Sport og fylgistöðvar
KAUPTU ÁSKRIFT Á STOD2.IS
FÍ
TO
N
/
S
ÍA
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
í dag kl. 17.50
Sporting lisbon - MANCHESTER City
Toppliðið í ensku deildinni heimsækir portúgalska stórveldið.
Leikurinn er sýndur bæði á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport HD.
í kvöld kl. 20.00
Standard Liege - Hannover 96
Birkir Bjarnason og félagar mæta þýska stálinu í
opinni dagskrá á Stöð 2 Sport 3.
TIL Í SLAGINN?
Rooney og félagar fá eitilharða Bilbæinga í heimsókn. Leikurinn er einnig sýndur í HD.
Á STÖd 2 SPORT KL. 19.50
MAN. UtD. - AtHletic BILBAO
LÉTTÖL
FÓTBOLTI Lionel Messi og félagar
í Barcelona sýndu enga miskunn
í gærkvöldi þegar þeir slógu
þýska liðið Bayer Leverkusen út
úr sextán liða úrslitum Meistara-
deildarinnar. Barcelona vann
leikinn 7-1 og þar með saman-
lagt 10-2. Messi skoraði fimm og
hefur skorað 12 mörk í 7 leikjum í
keppninni í ár.
Lionel Messi skoraði tvö mörk í
fyrri hálfleiknum, það fyrra á 25.
mínútu með laglegri vippu eftir
glæsilega stungusendingu frá
Xavi og það síðara á 42. mínútu
eftir sendingu frá Andrés Iniesta.
Barcelona vann fyrri leikinn 3-1
og úrslitin voru því ráðin í hálf-
leik.
Messi var búinn að innsigla
þrennuna eftir fjögurra mínútna
leik í seinni hálfleik og bætti
síðan við tveimur mörkum áður
en yfir lauk. Varamaðurinn
Cristian Tello skoraði hin tvö
mörkin. - óój
Stórsigur Barca á Leverkusen:
Meistari Messi
LIONEL MESSI Skoraði fimm. MYND/AP