Fréttablaðið - 08.03.2012, Síða 54

Fréttablaðið - 08.03.2012, Síða 54
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR46 LÖGIN VIÐ VINNUNA „Til að koma mér í gang á morgnana hlusta ég á út- varpsþáttinn Virkir morgnar á Rás 2. En þess á milli er það Metallica.“ Steinn Óskar Sigurðsson, matreiðslu- meistari á Silfurtunglinu. Hin árlega Big Lebowski-hátíð verður haldin á laug- ardagskvöld í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Mikið hefur breyst síðan keppnin var fyrst haldin fyrir sex árum. „Þá mættu fimmtán og ég þekkti alla með nafni,“ segir Svavar H. Jakobsson, sem skipuleggur keppnina ásamt Ólafi H. Jakobssyni. Í fyrra voru gestirnir 110 talsins, sem er metþátttaka. Hátíðin er haldin fyrir aðdáendur gamanmynd- arinnar The Big Lebowski frá árinu 1998. Gestir klæða sig upp sem persónur úr myndinni, drekka Hvítan Rússa, fara í keilu og skiptast á ódauðleg- um frösum úr myndinni, sem hefur öðlast „költ“ fylgi síðustu árin. Í ár verður í fyrsta sinn haldin spurningakeppni og vonast Svavar eftir góðum við- brögðum. Til marks um aukin umsvif hátíðarinnar hafa þeir félagar ráðið aðstoðarmann til að hjálpa þeim með framkvæmdina á laugardaginn. „Það var orðið svolítið mikið að gera síðast. Hann er ekkert á nein- um dúndurlaunum en hann fær eitthvað fyrir sinn snúð.“ Verðlaun verða veitt fyrir efstu sætin í búninga- og spurningakeppninni, besta skorið í keilu, ásamt Achiever-heiðursverðlaunum. Miðasala fer fram á Bolur.is og er miðaverð 2.800 krónur inn. Innifalið er þátttaka í hátíðinni, keila, bjór og Lebowski-stutt- ermabolur. - fb Lebowski-gestum fjölgar ört LEBOWSKI-AÐDÁENDUR Svavar og Ólafur Jakobssynir heiðra húðlata friðarsinnann, Lebowski, á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Ég treysti mér alveg til að gera allt vitlaust þriðja hvern dag,“ segir Eiríkur Jónsson. Blaðamaðurinn umdeildi er í þann mund að setja í loftið vefsíðuna Eirikurjonsson.is. „Þetta er nýr vefur sem bygg- ir á löngum ferli mínum. Ég hef verið að blogga á Eyjunni með 35 til 40 þúsund lesendur á viku og þetta byggir á því. En það verður meira á síðunni og þetta verður nýstárlega sett upp.“ Búið er að stofna hlutafélagið Eiríkur Jónsson ehf. og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins koma fjársterkir aðilar að því. Eiríkur kveðst ekki ætla að elta aðra netmiðla enda sjái þeir sjálf- ir um að elta hver annan. Nýjar fréttir í hinum sérstæða stíl hans verða í fyrirrúmi og í framtíðinni verður sjónvarp á síðunni þar sem gamlir viðtalsþættir hans verða hugsanlega endurvaktir. „Þetta verður eins og fjölmiðill en algjör- lega á mínum forsendum.“ Eiríkur hefur komið víða við á blaðamannaferli sínum. Undan- farið hefur hann bloggað á Eyj- unni en þar áður var hann einn- ig blaðamaður á Pressunni. Netið á hug hans allan enda segir hann framtíðina vera þar. „Ég ætla ekki að koma hægt og hljótt inn í þetta. Þessi vefsíða byggist á þessari tröllatrú sem ég hef á netinu til framtíðar. Sá sem er búinn að koma sér sæmilega fyrir á netinu hefur mikið forskot.“ Spurður hvort stofnun síðunnar eigi sér langan aðdraganda neit- ar Eiríkur því. Ástandið í samfé- laginu hafi kallað á að hann gerði eitthvað upp á eigin spýtur. „Ef þú ætlar að biðja um vinnu einhvers staðar þá er sagt: „Við vorum að reka sex áðan.“ Það er allt lamað í samfélaginu og hvað gerirðu þá? Þá verðurðu að skapa.“ - fb Gerir allt vitlaust þriðja hvern dag Á EIGIN FORSENDUM Eiríkur Jónsson ætlar að vera á eigin forsendum á vefsíðunni sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vigdís Grímsdóttir hlaut Menningarverðlaun DV fyrir bók sína TRÚIR ÞÚ Á TÖFRA? Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn „Þetta er sannkallað meistaraverk.“ Steingrímur Sævarr Ólafsson / pressan.is „Þetta er afskaplega fallega skrifuð bók.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan „Það er ekki gert nóg til að mark- aðssetja næturlífið í Reykjavík en ég er að vinna í að gera það,“ segir Unnar Helgi Daníelsson, eigandi viðburðafyrirtækisins Reykjavik Rocks sem sérhæfir sig í að lóðsa erlenda ferðamenn um Ísland og þá helst sýna þeim næturlíf Reykjavíkurborgar. Níu mánuðir eru síðan Unnar stofnaði fyrirtækið Reykjavik Rocks en fyrirtækið er í mikilli sókn og nú starfa þar tólf manns. Helstu viðskiptavinir fyrirtækis- ins eru vel stæðir útlendingar sem vilja skemmta sér á Íslandi. „Þetta eru einstaklingar sem hafa mikið á milli handanna en vilja geta losað um bindishnútinn á Íslandi og skemmt sér. Við hjálpum þeim að gera það.“ Unnar Helgi hefur séð um ferðir frægra á Íslandi svo sem Sean Par- ker, annars stofnenda Face book, leikkonunnar Liv Tyler, rapparans Busta Rhymes og leikarans Jared Leto. Hann vill þó ekki gefa upp nánar upplýsingar um dvöl þeirra hérlendis. „Ég held miklum trún- aði við mína viðskiptavini en mest- an part hefur þetta snúist um að skemmta sér í Reykjavík. Það er nokkuð síðan Jared Leto kom til landsins ásamt bróður sínum og tók ég þá með mér í lambalæri til mömmu. Þeim fannst það frá- bært,“ segir Unnar Helgi og bætir við að vinasamband myndist oftast á milli hans og viðskiptavinanna. Fyrirtækið tekur að sér að skipuleggja afþreyingu fyrir hópa jafnt sem einstaklinga en sam- kvæmt heimasíðu þeirra, Reykja- vikrocks.is, eru möguleikarnir endalausir á Íslandi. „Við getum skipulagt allt milli himins og jarðar. Síðustu helgi var ég með 28 ára milljarðamær- ing frá Hollandi sem kom einn og vildi hafa gaman. Ég sýndi honum næturlífið og fór svo með hann í þyrluferð um landið.“ UNNAR HELGI DANÍELSSON: HJÁLPUM ÞEIM AÐ LOSA BINDISHNÚTINN Lóðsar milljarðamæringa um næturlíf Reykjavíkur Í þessum mánuði er fyrirtæk- ið að skipuleggja dvöl 300 útlend- inga á vegum CCP-tölvuleikja- framleiðandans á Íslandi og er Unnar strax byrjaður að fá bók- anir fyrir komandi sumar. „Það stefnir í brjálað sumar hjá okkur og við erum samhentur hópur sem vinnum hérna. Það er augljóslega markaður fyrir svona fyrirtæki á Íslandi en bara í gærkvöldi gekk ég frá þremur bókunum fyrir sumarið.“ En hvað er það sem helst heillar útlendingana við land og þjóð að mati Unnars? „Auðvitað er það náttúran sem heillar og svo skemmtilegt næturlíf. En ég verð líka að vera hreinskilinn og segja að stelpurnar heilla. Margir vilja kynnast íslenskum stelpum.“ alfrun@frettabladid.is REYKJAVÍK HEILLAR Á níu mánuðum hefur við- burðafyrirtæki Unnars Helga Daníelssonar, Reykjavík Rocks, verið í mikilli sókn en það sérhæfir sig í að skipuleggja skemmtiferðir til Íslands fyrir vel stæða útlendinga. Jared Leto og Liv Tyler eru á meðal þeirra sem hafa notið leiðsagnar Unnars og félaga. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.