Fréttablaðið - 22.03.2012, Side 8
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR8
1. Hvaða leikfangafyrirtæki ætlar
að framleiða geimskip úr íslenska
tölvuleiknum Eve Online?
2. Hver var samanlagður hagnaður
Arion banka, Íslandsbanka og
Landsbankans í fyrra?
3. Hve mörgum á sjúkrahús að
þjóna sem Íslendingar gáfu til
Malaví?
SVÖR
ÁSTRALÍA Airbus hefur gengið til
liðs við fyrirtækjasamtök sem
hafa það að markmiði að þróa
sjálfbæran
orkugjafa fyrir
flugiðnað.
Stefnt er á að
vinna eldsneyti
með hitaskiljun
úr Mallee ilm-
viðartrjám sem
vaxa í Ástralíu.
Þar hafa trén
verið notuð til
að rækta upp land í söltum jarð-
vegi.
„Nýjar tegundir af eldsneyti
eru ómissandi þáttur rannsókna á
leiðinni til aukinnar sjálfbærni í
flugiðnaði og styðja metnaðarfull-
ar áætlanir okkur um að draga úr
útblæstri koltvísýrings,“ er haft
eftir Tom Enders, forstjóra Air-
bus, í tilkynningu félagsins. - óká
Airbus reynir hitaskiljun:
Þotubensín
unnið úr trjám
TOM ENDERS
HEILBRIGÐISMÁL Níu konur sem
komið hafa í ómskoðun hjá
Krabbameinsfélagi Íslands eru
með heilar PIP-fyllingar, en
sílíkon í eitlum. Það skýrist af
því að þær hafa fengið sér nýja
púða á síðustu tíu árum, en þeir
gömlu hafi lekið og sílíkonið
ekki fjarlægt.
Samkvæmt nýjustu tölum
frá Krabbameinsfélagi Íslands
er 151 kona sem komið hefur
í ómskoðun með lekar PIP-
brjóstafyllingar, sem gerir hlut-
fallið 61 prósent. Alls hafa 253
konur komið í skoðun af þeim
393 sem fengu bréf frá ráðu-
neytinu á sínum tíma. 92 konur
eru með heila púða og ein er án
fyllinga. Sú kona er búin að láta
fjarlægja úr sér leka púða en
vildi láta kanna hvort sílíkonið
hefði lekið í eitla.
Velferðarráðuneytið hefur
óskað eftir því að Jens Kjart-
ansson lýtalæknir sendi þeim
konum bréf sem fengu hjá
honum PIP-brjóstafylling-
ar fyrir árið 2000 og láti þær
vita að púðarnir gætu mögu-
lega verið gallaðir. Er þetta
gert í ljósi þess að frönsk yfir-
völd sendu nýverið frá sér yfir-
lýsingu um að ekki sé hægt að
útiloka að PIP-púðar sem fram-
leiddir voru fyrir árið 2000 séu
gallaðir. Fram til þessa var ein-
ungis þeim konum sem fengu
fyllingar á tímabilinu 2000 til
2011 boðið að láta fjarlægja þær.
Ekki liggur fyrir hversu margar
konur hafa fengið púðana frá
árinu 1992, þegar framleiðsla
hófst, en þær eru ekki taldar
margar. - sv
Velferðarráðuneytið óskar eftir frekari upplýsingum frá Jens Kjartanssyni í ljósi yfirlýsinga frá Frakklandi:
Níu með sílíkon í eitlum en heila PIP-púða
11 búnar í aðgerð
Samkvæmt upplýsingum frá land-
læknisembættinu hafa 11 konur farið
í aðgerð á Landspítalanum þar sem
PIP-púðar voru fjarlægðir úr brjóstum
þeirra. Á göngudeild hafa komið um
75 til 80 konur og búið er að bóka
göngudeildartíma fram í apríl. Alls eru
áætlaðar 32 aðgerðir í þessum mánuði.
Ekki er ljóst hversu margar af þeim,
sem búnar eru að fara í aðgerð, voru
með leka púða. 1. Lego. 2. þrjátíu milljarðar króna. 3.
125 þúsund manns.
*
Ve
rð
m
ið
as
t
vi
ð
að
b
ók
að
s
é
á
ne
ti
nu
.
SÓLAR
HEFST Í DAG FIMMTUDAGINN
22 MARS KL 12:00.
Flugfar til ALICANTE
valdar dagsetningar í apríl og maí
49.900 kr.*
Verð frá: Báðar leiðir með sköttum.
Spretturinn hefst í dag 22.mars kl.12:00!
Vertu í viðbragðsstöðu því við ræsum af stað sjóðheitan
sólarsprett á hlægilegu verði! Tilboðið gildir til ALICANTE á
völdum dagsetningum í apríl og maí. Sólarspretturinn hefst í
dag fimmtudaginn 22. mars kl. 12:00 og þú hefur aðeins 24
klukkustundir til að bóka ferðina þína á þessu einstaka tilboði
- fyrstir koma fyrstir fá!
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþing-
is gagnrýnir úrskurðarnefnd
almannatrygginga fyrir að túlka
reglugerð of þröngt þegar nefndin
neitaði eldri konu, sem handleggs-
brotnaði á heimili sínu, um bætur
úr slysatryggingu.
Slysatrygginguna fékk konan
með því að haka við í þar til gerðan
reit á skattframtali sínu. Hún var
að elda hádegismat á heimili sínu,
en gerði hlé á eldamennskunni til
að svara símanum. Þegar hún hafði
lokið símtalinu hraðaði hún sér
aftur í eldhúsið, en féll á leiðinni.
Konan handleggsbrotnaði á hægri
handlegg þegar hún bar handlegg-
inn fyrir sig við fallið.
Hvorki Sjúkratryggingar Íslands
né úrskurðarnefnd almannatrygg-
inga töldu konuna eiga rétt á bótum.
Hún hafði merkt við að hún vildi
njóta tryggingar við heimilisstörf
á skattframtali, og taldi sjálf að hún
hefði verið við heimilisstörf.
Úrskurðarnefndin taldi konuna
ekki hafa verið við eldamennsku
einmitt þegar hún datt. Í reglugerð
um heimilistryggingarnar segir að
þær eigi til dæmis ekki við slasist
fólk í baði, við að klæða sig, borða,
svara í síma og sækja póst. Trygg-
ingin á að gilda við almenn heim-
ilisstörf, til dæmis matseld, þrif,
almenna viðhaldsvinnu og garð-
yrkju.
Bæði Sjúkratryggingar og
úrskurðarnefndin töldu að konan
hafi gert hlé á eldamennsku með
því að svara í símann, og sinnt því
sem kallað er „daglegum athöfn-
um“. Ekki var tekið tillit til þess að
símtalið snerist um innkaup á mat,
og því tengt eldamennsku óbeint. Í
úrskurði nefndarinnar er vitnað í
reglugerðina, þar sem sérstaklega
er tekið fram að tryggingin gildi
ekki slasist fólk við að tala í símann.
Umboðsmaður Alþingis telur
niðurstöðu úrskurðarnefndarinn-
ar ekki í samræmi við lög, enda
hafi slysið átt sér stað í beinum
tengslum við eldamennsku kon-
unnar. Í áliti umboðsmanns er lagt
að nefndinni að endurskoða niður-
stöðu sína, sækist konan eftir því,
og breyta vinnubrögðum í sambæri-
legum málum. brjann@frettabladid.is
Kona fái bæt-
ur fyrir fall á
eigin heimili
Úrskurðarnefnd taldi eldri konu sem slasaðist í
miðri eldamennsku ekki hafa verið við heimilisstörf
og synjaði bótakröfu. Umboðsmaður Alþingis átelur
nefndina og telur konuna eiga rétt á slysabótum.
GARÐYRKJA Með því að haka í viðkomandi reit í skattframtali getur fólk fengið
slysatryggingu við almenn heimilisstörf, þar með talið garðyrkjustörf.
NORDICPHOTOS/GETTY
Með því að haka í þar til gerðan
reit í skattframtali, sem landsmenn
eiga að skila á næstu dögum,
getur fólk tryggt sér slysatryggingu
við heimilisstörf. Tryggingin gildir á
heimili viðkomandi, í sumarbústað
og í afmörkuðum húsagarði.
Tryggingin nær meðal annars til:
■ Hefðbundin heimilisstörf, til
dæmis matseld og þrif.
■ Umönnun sjúkra, aldraðra og
barna.
■ Almenn viðhaldsverkefni, til
dæmis málningu innanhúss
og minni háttar viðgerðir með
„hættulitlum verkfærum“.
■ Hefðbundin garðyrkjustörf.
Ýmislegt er undanskilið:
■ Slys við viðameiri viðhaldsfram-
kvæmdir.
■ Slys við daglegar athafnir á borð
við að klæða sig, borða, svara í
síma og sækja póst.
■ Slys á ferðalögum, til dæmis í
tjaldi, hjólhýsi og á hótelum.
Slysatrygging
STJÓRNSÝSLA Stjórnendur Landbún-
aðarháskólans segja þungbært að
ekki hafi tekist að reka hann innan
fjárheimilda og gera reksturinn
sjálfbæran til lengri tíma.
„Ástæðurnar eru okkur mjög
ljóslega þær að í upphafi var ekki
rétt gefið og stofnunin hefur ekki
fengið þann stuðning sem hún
hefur þurft,“ segir í viðbrögðum
sem skólinn sendi frá sér í gær
vegna athugasemda Ríkisendur-
skoðunar í skýrslu til Alþingis sem
birt var á þriðjudag.
Bent er á að heimanmundur
skólans við stofnun hafi verið
115 milljóna króna halli frá árinu
2004, frá þeim stofnunum sem
runnu saman og mynduðu skól-
ann. Heildarskuldir skólans nema
nú 739 milljónum króna. Þar af
skuldar skólinn ríkinu um 695
milljónir. Í viðbrögðum mennta- og
menningarráðuneytisins í skýrslu
Ríkisendurskoðunar er tekið undir
sjónarmið skólans og segir ráðu-
neytið mál metin á þann hátt að
óraunhæft sé að krefja skólann
um endurgreiðslu skuldarinnar við
ríkissjóð á meðan hagræðingarað-
gerðir ganga yfir.
Í svörum skólans er líka hafnað
efasemdum um heimtur á skulda-
bréfaeign skólans vegna sölu hans
árið 2009 á hlut sínum í ORF líf-
tækni.
„Umrædd skuldabréf eru á
gjalddaga síðar á þessu ári og
væntir skólinn þess að allri óvissu
um verðgildi þeirra verði eytt
innan ársins með því að þau verði
greidd upp.“ - óká
Stjórnendur Landbúnaðarháskólans svara gagnrýni:
Segja ekki hafa verið
rétt gefið í upphafi
VEISTU SVARIÐ?