Fréttablaðið - 22.03.2012, Side 32
FÓLK|4 |FÓ K |TÍSKA
Ásta Kristjánsdóttir og Munda-teymið eiga hugmyndina að þessu samstarfi. Ásta segir að
ef hönnunarhúsið verði vel sótt um
helgina sé kominn möguleiki fyrir
áframhaldandi starfsemi. „Við vorum
lengi búin að velta fyrir okkur hvernig
hægt væri að minnka rekstrarkostn-
að og auka sölu á íslenskri hönnun
í krafti samstöðu. Það er dýrt fyrir
hönnuði sem eru að fóta sig að reka
verslun, markaðssetja vöruna og
auglýsa. Fyrsti vísir að svona sam-
starfi var Reykjavík Fashion Week.
Gamla Sautján-húsið er tilvalið undir
þessa starfsemi og býður upp á mikla
möguleika,“ segir Ásta.
Hönnunarhúsið hafa þau nefnt
ATMO. „Auk 37 fata- og skartgripa-
hönnuða verður í húsinu ýmis önnur
starfsemi. Þar get ég nefnt Rauða
kross-búð í kjallaranum sem ætlar að
bjóða fatnað sem hefur verið sérval-
inn af tveimur stílistum. Þar leynast
örugglega gersemar,“ segir Ásta.
„Veitingahúsið Gló með Sollu hrá-
fæðismeistara verður með létta rétti
og boost-drykki. Kaldi verður með bar
á efstu hæðinni þar sem hægt verður
að fá lífrænt ræktaðan bjór. Hugleikur
verður með bóksölu á sömu hæð.
Barnafatnaður er í boði ekki síður
en barnaleikföng. Krumma er með
risastóran helli þar sem börnin geta
leikið sér og Ígló verður með teikni-
myndasamkeppni fyrir börn.
Þá er dekur í boði fyrir konur, með-
al annars Babyliss-hárbar þar sem
hægt er að prófa ýmsar hárgreiðslur.
Það verður því upplifun fyrir fólk að
koma hingað. Mjög margt að gerast,“
útskýrir Ásta og bætir
því við að það sé von lista-
mannanna að þessi prufu-
keyrsla á samstarfinu takist
vel. „Við viljum endilega fá
sem flesta til að styrkja ís-
lenska hönnun.“
Húsið er opið í dag, á
morgun og laugardag frá 11-
20 en til kl. 17.00 á sunnudag. ■ elin
GAMALL
DRAUMUR
Ásta Kristjánsdóttir
hafði lengi velt fyrir sér
hvernig hægt væri að
auka sölu á íslenskri
hönnun í krafti sam-
starfs. MYND/HAG
GAMLA SAUTJÁN
BREYTIST Í HÖNNUNARHÚS
FLOTT HÖNNUN Líf og fjör verður í gamla Sautján-húsinu að Laugavegi 89 um helgina. Þar hafa 37 ís-
lenskir fata- og skartgripahönnuðir komið upp aðstöðu til að sýna nýjustu framleiðslu sína.
LAGERSALAN
Vönduð þýsk og dönsk gæðavara!
Ekki missa af þessu, komdu
og gerðu ótrúleg kaup!
2. hæð Engjateigi 5
Opið: Fim. og föst. 12-18. Laug 10-16
ENN MEIRI VERÐLÆKKUN !!
Aðeins 8 verðflokkar
frá 500 kr. til 7.990 kr.
VERÐDÆMI
Uldahl leðurjakki verð áður 52.990 verð nú 7.990
K&S skór verð áður 29.800 verð nú 2.990
Erich Fend buxur verð áður 10.500 verð nú 500
Ný sending af kjólum
í st 38-50
Fyrir fermingarveisluna
Ótrúlegt úrval
NÝ SENDING AF
SPARIKLÆÐNAÐI
Útsalan að klárast en meiri lækkun
Skipholti 29b • S. 551 0770
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3