Fréttablaðið - 22.03.2012, Síða 35
KYNNING − AUGLÝSING22. MARS 2012 FIMMTUDAGUR
FAGLEGAR RÁÐNINGARAÐFERÐIR
Það að ráða einstakling í starf getur verið flókið og
vandasamt ferli. Á námskeiðinu Faglegar ráðningar-
aðferðir hjá Endurmenntun HÍ er fjallað um hönnun
ráðningaferils frá greiningu starfs og gerð auglýsing-
ar til samanburðar á umsækjendum og ákvörðun um
ráðningu.
Meginmarkmiðið er að
þátttakendur fái hag-
nýta þekkingu og þjálf-
un sem byggir á fag-
legum grunni. Fjallað
verður um helstu að-
ferðir við mat á um-
sækjendum svo sem
ferilskrár, viðtöl, mis-
munandi sálfræðileg
próf en einnig um teng-
ingu ráðningaferils við
frammistöðumat fyrirtækja
eða stofnana. Kennari er Albert Arnarson, M.Sc. í iðn-
aðar- og skipulagssálfræði og mun hann leggja nokkur
raunhæf verkefni fyrir þátttakendur og þeir sem eiga
þess kost geta einnig haft með sér verkefni úr eigin
starfi. Albert starfar á mannauðssviði Marels og sinn-
ir stundakennslu við félagsvísindadeild HÍ.
Námskeiðið er þrír eftirmiðdagar og það hefst 10.
apríl. Skráning er á endurmenntun.is og skráningar-
frestur er til 3. apríl.
ER MYGLA MEINSEMD FYRIR
MENN?
Að undanförnu hafa myglusveppir í hýbýlum verið
í umræðunni. Á námskeiðinu Er mygla meinsemd
fyrir menn? hjá Endurmenntun HÍ verður fjallað
um sveppi, myglu og raka í húsum
í víðu samhengi.
Í f lestum tilfellum
lifa menn í sátt og sam-
lyndi við aðrar lífver-
ur eins og bakteríur
og sveppi. Þó er það
stundum að þessi sátt
raskast og getur það
valdið veik indum
og jafnvel dauða hjá
mönnum. Sumir telja
sig fá almenn einkenni
af myglusveppum sem
eru til staðar á heimili eða vinnustað en skiptar
skoðanir eru um meinmyndandi þátt myglunnar
í þeim einkennum. Þó er nokkuð víst að raki í hí-
býlum er heilsuspillandi.
Umsjónarmaður námskeiðsins er Michael
Clausen læknir, sérfræðingur í ofnæmis- og barna-
lækningum, en ásamt honum halda ýmsir sérfræð-
ingar erindi.
Námskeiðið verður haldið 29. mars næstkom-
andi hjá Endurmenntun HÍ að Dunhaga 7. Skrán-
ing er á endurmenntun.is.
Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur og Berg-lind Guðmundsdóttir sál-
fræðingur stýra námskeiðinu.
Þau starfa bæði á Landspítalan-
um en starfið snýst að miklu leyti
um að vinna með áföll og afleið-
ingar þeirra.
„Þetta er námskeið fyrir stjórn-
endur sem hafa mannaforráð.
Við förum í gegnum hvernig á að
bregðast við áföllum inni á vinnu-
staðnum, jafnt áföll sem tengjast
einkalífi starfsmanna en einnig
ýmiss konar erfið vandamál sem
geta komið upp á vinnustaðnum,“
útskýrir Vigfús Bjarni. „Við kenn-
um fólki að bregðast við áföll-
unum og að fylgja málum eftir,“
bætir hann við.
„Síðustu ár hefur það aukist
töluvert að stjórnendur þurfi að
takast á við áföll og afleiðingar
erfiðra ákvarðana. Það hafa verið
skerðingar í starfsmannahaldi,
uppsagnir og annars konar erfið-
leikar í einkalífi fólks,“ segir Vig-
fús Bjarni.
Hann telur að þegar uppsagnir
eigi sér stað á vinnustöðum reyni
bæði á þá sem missa vinnuna og
hina sem eftir eru. „Við hjálpum
stjórnendum að fylgja eftir erfið-
um ákvörðunum og því sem upp
kann að koma í kjölfarið.
Við byggjum á sýnikennslu og
verklegum dæmum þannig að
þátttakendur fái að spreyta sig
sjálfir. Farið verður í æfingar sem
takast á við ólík áföll, eins og til
dæmis andlát og áföll sem tengj-
ast einkalífi einstaklinga. Kennd-
ar eru leiðir til að segja erfið tíð-
indi og hvernig á að bregðast
við í kjölfar þeirra innan starfs-
mannahópsins. Þetta hafa verið
uppbyggilegar samverustundir
með þátttakendum. Þeir sem sitja
námskeiðið hafa miðlað af eigin
reynslu sem er lærdómsríkt.“
Þegar hafa verið haldin tvö
áfallanámskeið fyrir stjórnendur
sem hafa verið vel sótt og fengið
afbragðs mat þátttakanda. Þriðja
námskeiðið verður 11. apríl en
það stendur yfir í þrjá morgna frá
kl. 8.30 til 12.30. Skráningarfrest-
ur er til 4. apríl.
Áföll og álag
á vinnustað
Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á námskeið fyrir stjórnendur um viðbrögð og
samfylgd í kjölfar áfalla í starfsmannahópum. Námskeiðið fjallar um birtingarmynd álags hjá
einstaklingum og hópum.
Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur stýrir námskeiðinu ásamt Berglindi Guðmundsdóttur sálfræðingi. MYND/ANTON
Endurmenntun HÍ er til húsa á
Dunhaga 7 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og skráning:
sími 525 4444 og endurmenntun.is
Fjölbreytt námskeið
á næstunni
Enn fleiri námskeið á endurmenntun.is
Á ferð um Íslendingasagnaslóðir með Magnúsi Jónssyni
Evrópski timburstaðallinn EN 1995
Facebook sem markaðstæki fyrir lengra komna
Fáðu krydd í tilveruna: Námskeið um ræktun kryddjurta
Fjárhagsupplýsingakerfi
Fjármál og vinnubrögð fyrir almenna stjórnendur
Forsaga Íslands
Framhaldsnámskeið í gagnasafnsfræði og SQL
Framhjáganga Þórbergs Þórðarsonar 1912
- merkasta ganga íslenskra bókmennta hundrað ára
Frá Oddaverjum til Engeyinga – Ættir, auður og völd
Gerð ferilskrár
Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna í félögum
Jarðfræði Reykjaness
Kínverska II: framhaldsnámskeið
Mynd er minning:
Myndaalbúm og miðlun stafrænna ljósmynda
Rangar og brostnar forsendur í samningarétti
Siðareglur: Undirbúningur, skráning og ávinningur
Skattlagning úttekta úr atvinnurekstri
Skáldsaga sett á leiksvið: Svar við bréfi Helgu
Stjórnun og leiðtogahæfni
Sölu- og ráðgjafanámskeið. Inniskór eru ekki málið
Trjárækt á sumarhúsalóðum
Vorverkin i garðinum – almenn umhirða og viðhald