Fréttablaðið - 22.03.2012, Síða 36

Fréttablaðið - 22.03.2012, Síða 36
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið FIMMTUDAGUR 22. MARS 20124 NÁMSKEIÐ ER GÓÐ TÆKIFÆRISGJÖF Aldrei hafa fleiri námskeið verið í boði en um þessar mundir. Gjafabréf á námskeið er góð tækifærisgjöf. Úrval námskeiða er svo mikið að hægt er að finna það sem hentar áhugasviði hvers og eins: Garðyrkju- námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að rækta garðinn sinn, veiðimenn geta farið á fluguveiðinámskeið, skyndihjálp er nauðsynlegt nám- skeið fyrir alla, matreiðslunámskeið hentar öllum þeim sem vilja elda góðan mat, vínskólinn kennir þér að meta góð vín og bjórskólinn býr yfir miklum fróðleik um ölið. Námskeið í sjálfsrækt eru vinsæl og sömuleiðis tungumálanám. Einhverjir gætu haft ánægju af dáleiðslunámskeiði á meðan aðrir kjósa námskeið í verkefnastjórnun. Prjónanámskeið hafa slegið í gegn og gott er fyrir alla að kunna á tölvu. Sumir þurfa leiðsögn á farsímann á meðan aðrir vilja læra myndlist. Köfun, sund, dans, líkamsrækt eða júdó, allt er í boði. Möguleikarnir eru óþrjótandi og um að gera að gúgla áhugasviðið og at- huga hvað hægt er að finna. Námskeið líta vel út í ferilskránni um leið og þau efla andann og næra sálina. Endurupplifun á angist ung- lingsáranna Drew Barrymore settist aftur á skólabekk í myndinni Never Been Kissed. Myndin kom út árið 1999 og segir frá 25 ára gömlum blaða- manni sem fær það verkefni að skrifa grein um líf menntaskóla- nema og dulbýr sig sem einn slík- an. Þegar í skólann er komið reynir hún að endurlifa sín eigin mennta- skólaár og leiðrétta ýmislegt sem henni tókst illa upp með þá. Hún reynir að vingast við „svölu krakk- ana“ en það gengur ekki sem best. Málin taka einnig að f lækjast þegar hún fellur fyrir enskukenn- aranum. Í lokin gerir hún hreint fyrir sínum dyrum og fær koss á íþróttaleikvanginum frá kennar- anum fyrir framan alla. Kemst loks til manns Adam Sandler leikur ofdekraðan iðjuleysingja og son milljónamær- ings í myndinni Billy Madison sem kom út árið 1995. Billy er skikkað- ur til að taka fyrstu 12 skólaárin aftur til að sýna að hann geti tekið við veldi föður síns en í ljós kemur að hann komst gegnum skólann með mútum á sínum tíma. Billy nýtur athyglinnar sem hann fær frá yngstu bekkjarfélögum sínum og hagar sér eins og fífl en þegar ofar dregur bregður honum við að vera ekki „svali gæinn“ lengur. Hann lærir sína lexíu og sannar sig fyrir föður sínum og kennslu- konunni sem hann féll fyrir í leið- inni. Við útskrift tilkynnir hann að hann taki ekki við fyrirtæki föður síns heldur ætli í kennaranám. Lærir að meta mannleg tengsl Í þáttaröðinni Community leik- ur Joel McHale sjálfumglaðan og tungulipran lögfræðing sem skikk- aður er aftur á skólabekk þegar upp kemst að hann falsaði prófskír- teini sitt. Í kringum hann safnast sundurleitur hópur fólks sem hann telur sig í fyrstu eiga lítið sameigin- legt með. Hann sé „svalari“ en þau og lítur á sig sem leiðtoga þeirra. Hópurinn hittist reglulega til að læra saman. Eftir því sem líður á tengjast þau vinaböndum og lög- fræðingurinn áttar sig á að hann er betri maður með þau sér við hlið. Endurupplifun skólaáranna Að setjast aftur á skólabekk á fullorðinsárum er vinsælt efni sjónvarpsþátta og kvikmynda. Ýmsar ástæður liggja að baki þess að viðkomandi persóna fer aftur í skólann og hvort það er af fúsum vilja. Yfirleitt felst síðan annar og meiri lærdómur í skólavistinni en bóklegur þegar upp er staðið. Drew Barrymore reynir að lagfæra það sem miður fór þegar hún gekk fyrst í mennta- skóla. Hún reynir að vingast við „svölu krakkana“ en það fer að sjálfsögðu ekki vel. Hún fellur einnig fyrir enskukennaranum sem flækir málin. Tungulipur lögfræðingur sem lítur stórt á sig í fyrstu áttar sig á gildi mannlegra tengsla þegar hann sest aftur á skólabekk og kynnist sundurleitum hópi samnemenda sinna. Moldríki iðjuleysinginn Billy Madison kemst loks til manns eftir að hann er skikkaður til að taka fyrstu 12 skólaárin aftur. Hann ákveður að fara í kennaranám í framhaldinu. SÆMUNDUR OG SVARTISKÓLI Oft er sagt að Sæmundur fróði í Odda hafi verið fyrstur Íslendinga til að stunda nám í Frakklandi en á þessum tíma var landsvæðið sunnan við Sax- land og austan við Rín oft kallað Franconia og má vera að hann hafi lært þar. Enginn eiginlegur háskóli var þó til í Evrópu á þessum tíma svo að Sæmundur hefur líklega stundað nám við klausturskóla eða á einhverju biskups- eða fræðasetri. Svo mikið er víst að hann fór ungur utan til náms og var þar lengi. Hann kom líklega heim einhvern tíma á árunum 1076-1078. Ein bygginga Háskóla Íslands er nefnd Oddi til heiðurs Sæmundi fróða. MYND/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.