Fréttablaðið - 22.03.2012, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið FIMMTUDAGUR 22. MARS 20126
INNRITUN Í FRAMHALDSSKÓLA
HAUSTIÐ 2012
Forinnritun nemenda í 10. bekk
(fæddir 1996 eða síðar) hófst
mánudaginn 12. mars og lýkur
föstudaginn 30. mars.
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995
eða fyrr) sem ekki eru nú í fram-
haldsskóla eða ætla að skipta um
skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl
og lýkur fimmtudaginn 31. maí.
Umsækjendur þurfa að sækja veflykil
að innritunarvef á menntagatt.is.
Nemendur í 10. bekk hafa frest til
að sækja um nám í framhaldsskóla
eða breyta umsóknum úr forinn-
ritun til miðnættis föstudaginn 8.
júní. Einkunnir þeirra verða sendar
rafrænt frá grunnskólum til fram-
haldsskóla eftir skólaslit.
Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram samkvæmt fyrir-
komulagi sem einstakir framhaldsskólar auglýsa. Upplýsingar um fram-
haldsskóla má fá á menntagatt.is.
HÁSKÓLINN REKUR RÆTUR TIL KLAUSTRA
Háskólinn sem stofnun er yfirleitt
talinn eiga rætur að rekja til kirkjulegra
stofnana á miðöldum. Áður en háskólar
voru stofnsettir fór æðri menntun
nánast eingöngu fram í skólum
kaþólsku kirkjunnar eða í klaustrum
hennar. Munkar og nunnur sáu um
kennsluna og fundist hafa menjar um
slíkar skólastofnanir sem benda til þess
að þetta fyrirkomulag hafi byrjað strax
á sjöttu öld.
Með hröðum vexti borga á elleftu
öld varð eftirspurn eftir menntun mun
meiri en áður hafði þekkst og stofnanir
kirkjunnar höfðu ekki svigrúm til þess
að verða við henni. Í kjölfarið var komið
á fót háskólum með svipuðu sniði
og við þekkjum þá í dag. Sá fyrsti hóf
starfsemi í Bologna árið 1088 og fljótlega upp úr því var stofnaður háskóli
í París, sem reyndar stóð á gömlum merg kaþólsks skóla. Oxford og Cam-
bridge stofnuðu sína háskóla í kringum aldamótin 1200 og fyrr en varði
fylgdu aðrar borgir víða um Evrópu fordæmi þeirra.
Nunnur, prestar og munkar sáu um
nánast alla kennslu fyrr á öldum.
HOLLT FYRIR HEILANN
Þegar blóðsykurinn fellur, til dæmis ef við gleymum
að borða, minnka hæfileikar okkar og við missum
einbeitingu. Rannsóknir sýna að mjög hár blóðsykur
getur einnig haft hamlandi áhrif á andlega
virkni okkar.
Sterkju- og trefjarík fæða eins og gróft brauð,
belgjurtir og grænmeti er góð fyrir heilastarfsemina
þar sem hún hækkar blóðsykurinn hægt og hann verður
ekki of hár.
Ómettuð fita er einnig gott eldsneyti fyrir heilann og þá sér-
staklega fjölómettaðar omega 3-fitusýrur sem við fáum úr fiski
eins og makríl, túnfiski, síld og laxi. Þessar fitusýrur hjálpa til við
að halda æðum í heilanum hraustum.
Heimild: www.islenskt.is A
ðdáendur Harry Potter eru vel kunnugir quidditch-íþróttinni sem
Harry og félagar hans keppa í árlega. Nú hefur gripið um sig hálf-
gert quidditch-æði í bandarískum háskólum og frá árinu 2007
hefur verið haldið háskólamót í íþróttinni þar sem virtir skólar eins og
Harvard, Boston University og Emerson College etja kappi við lið há-
skóla frá öllum Bandaríkjunum.
Mótið nýtur gríðarlegra vinsælda og eru að meðaltali um 5.000
áhorfendur að hverjum leik. Þar sem galdrar koma mjög við sögu í
quidditch-keppnum í bókunum um Harry Potter, hefur íþróttinni
verið breytt töluvert og nefnist nýja útgáfan mugga-quidditch.
Nýjustu fréttir herma að æðið hafi nú loks gripið um sig í
heimalandi Potters og birti breska blaðið The Guardian ný-
lega myndasyrpu af stúdentum Oxford-háskóla algölluðum í
quidditch-keppni.
Hérlendis hefur einnig verið efnt til quidditch-móta, en þar
eru að verki einlægir Harry Potter aðdáendur sem ekki tengj-
ast háskólum, nema þá kannski óbeint.
Það eru fleiri en Harry Potter sem hafa heillast af quidditch.
Menntaskólinn i Kópavogi
Hótel- og matvælaskólinn
Ferðamálaskólinn og Leiðsöguskólinn
Digranesvegi 51
sími 594 4000
www.mk.is
Stúdentsnám
- Félagsfræðabraut
- Málabraut og ferðagreinar
- Náttúrufræðibraut
- Viðskipta- og hagfræðibraut
- Listnámsbraut
AN3 Grunndeild matvælagreina
fyrir þá sem stefna á að verða:
- Bakari
- Framreiðslumaður (þjónn)
- Kjötiðnaðarmaður
- Matreiðslumaður (kokkur)
Framhaldsskólabraut
Kynntu þér málið á www.mk.is
MK – Menntaskólinn í Kópavogi
Sími 594 4020
Háskólamót í
mugga-quidditch
Hálfgert quidditch-æði hefur gripið um sig í bandarískum háskólum
og frá árinu 2007 hefur verið haldið háskólamót í íþróttinni.