Fréttablaðið - 22.03.2012, Page 48
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR32
BAKÞANKAR
Friðriku
Benónýs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. hróss, 6. frá, 8. húsfreyja, 9.
æxlunarkorn, 11. kind, 12. samhygð,
14. bor, 16. vörumerki, 17. af, 18. stal,
20. stöðug hreyfing, 21. æskja.
LÓÐRÉTT
1. hluta sólarhrings, 3. úr hófi, 4. læri-
meistari, 5. beiskur, 7. sárasótt, 10.
hljóma, 13. upphrópun, 15. stjórna,
16. hlóðir, 19. tónlistarmaður.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lofs, 6. af, 8. frú, 9. gró,
11. ær, 12. samúð, 14. nafar, 16. ss,
17. frá, 18. tók, 20. ið, 21. óska.
LÓÐRÉTT: 1. dags, 3. of, 4. fræðari, 5.
súr, 7. fransós, 10. óma, 13. úff, 15.
ráða, 16. stó, 19. kk.
Gjörðu svo vel,
elskan. Volgur malt-
bjór í bananalíkjör.
Njóttu!
Nú hef ég
ekki minnsta
vit á tísku,
en var þetta
eðlilegt?
Pondus!
sumar stelpur
gera allt til að
skera sig úr
hópnum!
Já, henni
tókst
það.
Já... Hún
er sérstök.
Hei, Halli ætlar að
bjóða nokkrum heim
til sín í grill og mig
langar að fara.
Já, foreldrar hans verða heima.
Nei, það verður ekkert áfengi.
Já, ég skal hringja þegar ég
mæti þangað. Nei, ég fer ekki
neitt annað án þess að tala við
ykkur fyrst.
Palli er að
verða svo
ábyrgur
ungur
maður.
Ég er að
verða svo
mikill auli.
Hei hei hei! HættiÐ þessu! ÞiÐ
eruÐ aÐ hræÐa fiskinn!!
Þegar þú segir: Þau hljóta aÐ heyra:
Takið nú
saman
dótið ykkar,
krakkar
mínir.
Hei!
hverjum
langar að
rífast?
! ! ! ! ! !
! ! ! ! ! !
Leitið og þér munuð finna.“ Stutt og lag-gott svar eins kennaranna í almennri
bókmenntafræði í denn við spurningu eins
nemandans um það hvert viðfangsefni
bókmenntafræðinnar væri. Þessi kennari
taldi sem sé að túlka mætti hvaða texta sem
væri út frá fyrirframgefnum hugmyndum
lesandans og heimfæra hverja þá kenn-
ingu sem lesandanum væri kærust upp á
alla texta sem skrifaðir hafa verið. Textinn
öðlaðist ekki merkingu fyrr en í huga les-
andans.
SAMKVÆMT þessari kenningu eru
Íslendingar upp til hópa útfarnir bók-
menntafræðingar. Mann rekur í roga-
stans oft á dag við að lesa þær ólíku
túlkanir frétta og umræðugreina
sem lesa má úr athugasemdum á
fréttasíðum og samskiptasíðum. Það
sem einn les sem sláandi rök fyrir
inngöngu í ESB les annar sem heið-
skýrt dæmi um þann hrylling sem
inngangan hefði í för með sér. Grein
þar sem karlmaður viðrar víðsýni
sína og femínísk viðhorf, og hlýtur
fyrir lof frjálslyndra kynbræðra
sinna, lesa róttækir femínistar
sem enn eina varnarræðuna fyrir
ríkjandi gildi feðraveldisins og
fyrirlitningu á konum. Frétt um
skelfilega árás á innheimtulög-
fræðing er ýmist lesin sem hræði-
legur mannlegur harmleikur eða sem birt-
ingarmynd réttlátrar reiðinnar sem þjóðin
beri til banka og innheimtustofnana. Og svo
framvegis út í hið óendanlega.
ALLAR þessar túlkanir eiga þó eitt sam-
eiginlegt: Þeir sem setja þær fram eru
handvissir um að þær byggi á réttum skiln-
ingi. Fegurðin býr í auga þess sem horfir
og skilningurinn í huga þess sem les. Enda
lesskilningur til þess að gera nýtt hugtak
sem sást ekki á prenti fyrr en á sjöunda
áratugnum. Fram að þeim tíma áttu menn
bara að kunna hlutina utan að og muna þá
um aldur og ævi, skítt með allan skilning.
Kannski er það sú kennsluaðferð sem ábyrg
er fyrir þessum einstrengingshætti í túlk-
unum íslenskra lesenda. Þeir halda sig við
það sem þeir kunna og muna. Hlutirnir
eru bara svona og ekkert svigrúm fyrir ný
sjónarhorn. Menn eru annað hvort í þessu
liðinu eða hinu og stranglega bannað að
svíkja lit með því að taka undir málflutning
einhvers í hinu liðinu hversu skynsamlegur
sem hann annars er. Hin eina rétta skoðun
er ekki sveigjanleg.
ÞAÐ vekur því nokkra furðu að þar til gerð
yfirvöld og skrifandi rithöfundar skuli ótt-
ast skort á lesskilningi hjá íslenskum ung-
lingum. Er hann ekki bara í samræmi við
íslenska lestrarhefð? Það læra börnin sem
fyrir þeim er haft.
Bókmenntafræði hversdagsins