Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 50
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR34 34
menning@frettabladid.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
VILTU TEIKNA? Guðrún Tryggvadóttir myndlistarmaður leiðbeinir gestum í teikningu á sýningunni
Ásjóna í Listasafni Árnesinga laugardaginn 24. mars klukkan 14 til 16. Þar má skoða verk í eigu safnsins
þar sem áherslan er lögð á portrett og teikningu.
Guðrún nam myndlist við listaskóla á Íslandi, í Frakklandi og Þýskalandi. Aðgangur er ókeypis.
DORRIT LEIGÐI SÉR SKARTGRIP
Dorrit Moussaieff leigði sér skartgrip í Hafnarborg í gær. Á sýningunni Rætur
sem þar stendur yfir verður á meðan HönnunarMars stendur yfir hægt að leigja
sér skartgripi á meðan á hátíðinni stendur. Fjölbreyttir gripir standa til boða en
forsetafrúin valdi sér hálsmen eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið og skartgripa-
hönnuð. Skartgripaleigan er líklega sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og verður
opin á opnunartíma safnsins. Leiguverði er stillt í hóf að sögn staðarhaldara en
allur ágóði af leigunni rennur til Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningssamtaka
fyrir fólk sem fengið hefur krabbamein. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hönnunarmars hefst í fimmta sinn í dag.
Fjöldi hönnuða tekur þátt í sýningum og
uppákomum sem endurspegla hönnun í
breiðum skilningi hugtaksins.
„Hönnunarmiðstöð var sett á laggirnar vorið 2008
og það var strax á dagskrá hjá okkur að standa fyrir
svona dögum. Og þrátt fyrir hrunið haustið 2008
þá stóðum við fyrir hinum fyrsta Hönnunarmars
2009,“ segir Halla Helgadóttir,
framkvæmdastjóri Hönnunar-
miðstöðvar Íslands. „Við erum
mjög ánægð með hversu mikið
hátíðin hefur eflst ár frá ári. Ég
myndi segja að hún hafi gert
íslensku hönnunarsamfélagi gott
og að við höfum náð upp mikilli
umræðu um íslenska hönnun sem
er eitt markmið hátíðarinnar. Við
viljum meðal annars vekja athygli
almennings, ráðamanna og fjöl-
miðla á hönnun og hvað hönnun er. Okkar hönnunar-
saga er stutt og við höfum ekki jafn sterkan þekk-
ingarbakgrunn eins og til dæmis Danir. Hönnun er
ákveðin aðferðafræði og getur verið tæki til breyt-
inga, því viljum við gjarnan koma á framfæri.“
Halla segir hönnunarsamfélagið hafa náð að nær-
ast og nýta sér hátíðina sér til framdráttar. „Við
finnum líka að með hverju árinu verður hátíðin
þekktari og auðveldara að koma henni á framfæri
til dæmis í fjölmiðlum.“
Þátttakendur í hátíðinni koma úr öllum stéttum
hönnuða; fatahönnuðir, skartgripahönnuðir, arki-
tektar og iðnhönnuðir eiga allir sína fulltrúa á sýn-
ingum og uppákomum hátíðarinnar. „Hátíðin hefur
vaxið og dafnað sem er mjög ánægjulegt,“ segir
Halla.
Upplýsingar um hátíðina er að finna á heimasíðu
hennar honnunarmars.is. Bækling með upplýsing-
um um dagskrána er að finna á sýningarstöðum og í
verslunum 10-11 og svo er hægt að hlaða niður appi
hjá Símanum með upplýsingum um dagskrána.
sigridur@frettabladid.is
HÁTÍÐ SEM EFLIR ÍSLENSKA HÖNNUN
1 Matarhönnun ýmiss konar
skipar sinn sess á hátíðinni.
HönnunarMarsipan snýr aftur
og verður hægt að festa kaup
á því í Kiosk á Laugavegi
65. Í dag má svo meðal
annars hlusta á fyrirlestur
matarhönnuðarins Marije
Vogelsang á fyrirlestrardegi
hátíðarinnar í Gamla bíói.
2 Hönnunarsafn Íslands
tekur að sjálfsögðu þátt í
HönnunarMars og kynnir
samstarfsverkefni safnsins og
Erlu Sólveigar Óskarsdóttur
húsgagnahönnuðar. „Safnið
fór þess á leit við Erlu að hún
hannaði létt borð fyrir gesti
safnsins sem nota mætti
bæði úti og inni. Góa er úr
áli og er eina íslenska borðið
á markaði sem hentar utan-
dyra.“
3 Íslensk hönnun er í aðal-
hlutverki á HönnunarMars,
en í fyrsta skipti í ár sækja
erlendir gestir hátíðina heim.
Finnska Popup-verslun
Design Forum verður starf-
rækt í Netagerðinni næstu
þrjá daga. Halla Helgadóttir,
framkvæmdastjóri Hönn-
unarmiðstöðvar, segir það
ánægjulega nýbreytni: „Við
viljum fá erlenda hönnuði á
hátíðina.“
4 Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður
reist Fyrirmyndarborg en það
er Arkitektafélag Íslands sem
stendur fyrir þeirri uppákomu.
„Fjölskyldur og börn geta
fengið úthlutað
lóð í skipulagi
sem verður
komið fyrir á
gólfi Ráðhúss-
ins, þar byggja
þau hús, torg
og garða,“ segir
á heimasíðu
HönnunarMars.
5 Meðal hönnuða sem taka
þátt í hátíðinni eru Sigga
Heimis iðnhönnuður og
Tinna Gunnarsdóttir. Sigga
sýnir ný húsgögn og nytja-
hluti, innblásna af hafinu og
fortíðinni, sem framleiddir
eru á Íslandi en á sama stað
sýna Anna María og David
Sandahl skartgripi. Sýning
með verkum Tinnu Gunn-
arsdóttur verður svo opnuð
í Listasafni Íslands.
*Nánari upplýsingar um þessa
viðburði og alla hina er að
finna á heimasíðunni www.
honnunarmars.is
ARKITEKTÚR, ÚTIHÚSGÖGN OG ERLENDIR GESTIR*
HALLA
HELGADÓTTIR
3
42
5
1