Fréttablaðið - 29.03.2012, Side 2
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
FERÐAÞJÓNUSTA Ójöfn dreifing
ferðamanna veldur miklu álagi á
umhverfi auk þess sem upplifun
ferðamanna skerðist ef þeir eru of
margir. Þetta er meðal þess sem
kom fram í máli Önnu Dóru Sæþórs-
dóttur, dósents í ferðamálafræði við
Háskóla Íslands, á aðalfundi Sam-
taka ferðaþjónustunnar (SAF) í
síðustu viku.
Anna Dóra bendir á að rúmlega
helmingur erlendra ferðamanna
sæki landið heim á sumrin og
flestir heimsæki sömu staðina, þar á
meðal Þingvelli, Gullfoss, Geysi og
Mývatnssveit. Hún vísar til nýlegra
kannana sem sýni að 40 prósentum
ferðamanna við Hrafntinnusker
þyki óþægilega mikið af ferðafólki
á svæðinu og sama eigi við um 30
prósent þeirra sem heimsæki Land-
mannalaugar.
Anna Dóra segir ljóst að ákveðnir
staðir á suðurhálendinu séu orðnir
mjög ásettir vegna fjölbreyttrar
nýtingar, og fram undan sé sam-
keppni um hálendið sem auðlind.
Samkvæmt upplýsingum frá
SAF hefur erlendum ferða mönnum
á Íslandi fjölgað að meðaltali um
7,4 prósent síðustu 30 árin, frá um
72 þúsundum árið 1981 í um 566
þúsund í fyrra sem er fjölgun um
686 prósent.
Árni Gunnarsson, formaður
SAF, lýsti í ræðu sinni á fundin-
um einnig áhyggjum af þróuninni.
Hann velti upp spurningunni um
hvort gullkálfur núverandi vel-
gengni í ferðaiðnaði ætti sér raun-
verulega framtíð. „Hvort kálfurinn
verði að afurðamikilli mjólkurkú til
frambúðar eða hvort hann breytist
í geldkú vegna vanrækslu í bú-
skapnum? Erum við að ganga nærri
þeim gæðum sem við byggjum
greinina á og er öruggt að stór-
brotin náttúra landsins sem laðar að
sér allan þennan mikla fjölda ferða-
manna þoli enn meira álag á kom-
andi árum án þess að láta á sjá?“
spurðu hann gesti fundarins.
Árni sagði ljóst að dreifa þyrfti
komum erlendra ferðamanna jafnar
yfir árið og tryggja að þjónusta við
þá uppfylli væntingar.
Í þriðja lagi sagði Árni að stjórn-
völd þyrftu að skapa geiranum
ásættanlegt starfsumhverfi. Hann
gagnrýndi bæði skattheimtu af elds-
neyti og fjármögnun Framkvæmda-
sjóðs ferðamannastaða. „Það virð-
ist alveg gleymast að með auknum
fjölda ferðamanna aukast tekjur
ríkisins án breytinga á skattkerf-
inu,“ sagði hann og benti á að bein-
ar skattatekjur ríkisins af aukn-
ingu í komum erlendra ferðamanna
til landsins í fyrra nemi um tveim-
ur milljörðum króna. Og þá væru
ótaldar óbeinar tekjur ríkisins.
olikr@frettabladid.is
Ferðamannastaðir
sumir við þolmörk
Upplifun ferðamanna skerðist ef þeir eru of margir á einum stað. Síðustu 30
ár hefur ferðamönnum að jafnaði fjölgað um 7,4 prósent á ári. Þeir voru 72
þúsund árið 1981, en voru 566 þúsund í fyrra. Formaður SAF hvetur til aðgæslu.
HORFT NIÐUR Í ALMANNAGJÁ Kannanir sýna að á vinsælum ferðamannastöðum telji
hluti ferðamanna að fjöldi ferðamanna á staðnum rýri upplifun þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
fjölgun
hefur orðið
á ferða-
mönnum hér á landi frá árinu
1981 til 2011.
Ragnar, hlakka menn til
mánaðamóta?
„Menn ættu að ekki að raka sig
strax því það á enn eftir að snjóa á
mottuna.“
Mottumars lýkur um næstu helgi þegar
apríl gengur í garð. Ragnar Páll Steinsson
skipulagði Tom Selleck-mottukeppni á
skemmtistaðnum Boston í gærkvöldi.
ÍSRAEL, AP Shaul Mofaz, fyrr-
verandi yfirmaður ísraelska
hersins, vann sigur í leiðtoga-
kjöri ísraelska Kadima-flokks-
ins. Hann fékk
62 prósent
atkvæða en
Tzipi Livni,
fráfarandi leið-
togi flokksins
og fyrrver-
andi utanríkis-
ráðherra, fékk
37 prósent.
Mofaz er
þekktastur fyrir harða stefnu
sína gagnvart uppreisn Palest-
ínumanna á fyrstu árum aldar-
innar. Á seinni árum hefur hann
þó sýnt stöðu Palestínu manna
meiri skilning.
Það var Ariel Sharon, þáver-
andi forsætisráðherra, sem stofn-
aði Kadimaflokkinn árið 2005,
skömmu áður en hann fékk heila-
blóðfall og féll í dá, sem hann
hefur enn ekki vaknað úr. - gb
Leiðtogakjör í Kadima:
Mofaz vann
sigur á Livni
FLYKKI Fallbyssuskotið var ansi stórt. Hér
sést það við hlið hefðbundins farsíma.
MYND/LANDHELGISGÆSLAN
LANDHELGISGÆSLAN Sprengjusveit
Landhelgisgæslunnar eyddi nýver-
ið skothylki sem lögreglan hafði
fengið í sína vörslu úr dánarbúi.
Lögreglan óskaði aðstoð-
ar sprengjusveitarinnar og við
skoðun kom í ljós að um var að
ræða 57 millimetra fallbyssuskot.
Í tilkynningu frá Landhelgis-
gæslunni segir að mjög hættulegt
geti verið að meðhöndla hluti sem
þessa og er brýnt fyrir fólki að
hreyfa aldrei við torkennilegum
hlutum heldur skrá hjá sér stað-
setninguna og hafa samband við
yfirvöld. - sh
Hættulegur hlutur í dánarbúi:
Gæslan eyddi
fallbyssuskoti
SVÍÞJÓÐ Umboðsmaður barna og
nemenda hjá skólaeftirlitinu í
Svíþjóð hefur krafið ríkis rekinn
heimavistarskóla um 178.400
sænskar krónur í bætur eða rúmar
3,3 milljónir íslenskra króna vegna
eineltis og ofbeldis sem nemandi
við skólann varð fyrir af hálfu
annarra nemenda.
Það er mat umboðsmannins
að skólayfirvöld hafi vitað að
nemandinn var niðurlægður en
ekki gert nóg til að koma í veg
fyrir það.
Samkvæmt könnun í skólanum
í janúar síðastliðnum kváðust
þónokkrir nemendur hafa orðið
fyrir einelti, flestir á heima-
vistinni. -ibs
Einelti og ofbeldi í skóla:
Milljóna króna
krafist í bætur
ALÞINGI Katrín Jakobsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, mælti fyrir lögum um
breytingar á stjórn fiskveiða á
Alþingi í gær, í fjarveru Stein-
gríms J. Sigfússonar, ráðherra
sjávarútvegsmála. Steingrímur
er staddur í Kanada.
Umræðan fór ekki þrautalaust
af stað, en stjórnarandstæðingar
voru margir hverjir mjög ósáttir
við fjarveru Steingríms. Sögðu
þeir það fáheyrt að ræða jafn
viðamikið mál í fjarveru fagráð-
herrans sem bæri ábyrgð á því.
Eftir nokkurt karp um málið hófst
umræðan.
Katrín sló á létta strengi í
máli sínu, í ljósi fyrrgreindrar
umræðu. „Frú forseti. Eins og
fram hefur komið mun ég mæla
hér fyrir frumvarpi á þingskjali
númer 1052, það er gaman að
segja frá því.“ Katrín fór yfir
aðalatriði frumvarpsins, en
Fréttablaðið hefur greint frá inni-
haldi þess undanfarna daga.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, vakti athygli
á því að umsagnaraðilar hefðu
lýst yfir gríðarlegum efasemd-
um um frumvarpið áður en það
var lagt fram. Hann nefndi til
sögunnar Daða Má Kristófersson
og Þórodd Bjarnason, sem efuðust
um að byggðaaðgerðir þess næðu
tilætluðum árangri. Hann spurði
ráðherra hvort ekki hefði verið
tilefni til að bregðast við þeim
athugasemdum áður en frumvarp-
ið var lagt fram.
Katrín sagði eðlilegt að rætt
yrði um byggðaráðstafanir frum-
varpsins, enda væru þær með
öðrum hætti en hingað til hefði
tíðkast. Gert væri ráð fyrir að
byggðakvótinn yrði minnkaður
og honum vísað í leigupottinn.
Ráðherra hefði síðan heimild til
að vísa um helmingi þess potts í
leigu á svæði sem illa stæðu. Hún
sagði ekki ætíð hafa ríkt ánægju
með byggðaaðgerðir í sjávarút-
vegi og því væri tilefni til að leita
annarra leiða.
Umræða um kvótamálið hélt
áfram á fundi Alþingis sem hófst
klukkan 20 í gærkvöldi og stóð
enn þegar blaðið fór í prentun.
- kóp
Sjávarútvegsráðherra fjarverandi umræðu um kvótamál:
Kvótamál til umræðu á Alþingi
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
BJARNI
BENEDIKTSSON
EFNAHAGSMÁL Steingrímur J. Sig-
fússon, efnahags- og viðskiptaráð-
herra, vill efla stjórnmálaleg og
viðskiptaleg tengsl Íslands og Kan-
ada. Hann er nú staddur í Kanada
til að ræða efnahagsmál við þar-
lenda ráðamenn og fundaði meðal
annars með seðlabankastjóra og
fjármálaráðherra Kanada í gær.
Hann sagði fundina hafa verið
afar gagnlega og telur ljóst að það
sé áhugavert fyrir Ísland að byggja
upp aukin tengsl við Kanada og
horfa til þess fjármálakerfis sem
þar er við lýði þegar tekin verður
ákvörðun um framtíðarskipan
íslenska kerf-
isins. „Það er
óumdeilt að Kan-
ada sigldi til-
tölulega lygnan
sjó í gegnum
fjármálakrepp-
una og þeirra
bankakerfi
komst vel frá
henni. Þeir hafa
rekið íhaldsamt
bankakerfi með ströngum reglum
og stífu eftirliti og það hefur skilað
sér. Þeirra bankar voru minna
áhættusæknir og þar af leiðandi
traustari. Það var því mjög áhuga-
vert að skoða þeirra regluverk.“
Mikil umræða hefur verið um
mögulega upptöku Kanadadollars
hérlendis. Steingrímur segir það alls
ekki hafa verið dagskrárefni þeirra
funda sem hann átti með kanadísk-
um ráðamönnum. Umræðuna hafi
þó borið á góma. „En stjórnvöld
beggja landa vita hvernig staðan
er. Þetta var því ekki rætt í neinni
alvöru og þetta var alls ekki dag-
skrárefni. Við fórum þó yfir hvernig
mál standa hjá okkur, til dæmis
varðandi afnám gjaldeyrishafta.
Þeir fylgjast vel með því.“ -þsj
Steingrímur J. Sigfússon ræddi efnahagsmál við ráðamenn í Kanada:
Horft til bankakerfis Kanada
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
REYKJAVÍK Rafrænar íbúakosn-
ingar í Reykjavík hófust klukkan
eina mínútu yfir miðnætti í nótt.
Kosið verður um 180 verkefni
innan borgarmarkanna sem eru
talin fegra eða bæta hverfin að
mati Reykjavíkurborgar. Kostn-
aður við hvert og eitt verkefni
er mismunandi, en dæmi eru um
að sum kosti allt að tíu milljónir
króna.
Borgin leggur 300 milljónir
króna í verkefnin. Þau sem fá
mest fylgi í íbúakosningunum
verða þau sem ráðist verður í
framkvæmdir við í sumar.
Opið verður fyrir móttöku
atkvæða fram yfir miðnætti
þriðjudaginn 3. apríl, inni á slóð-
inni www.betrireykjavik.is. - sv
Íbúar kjósa um 180 verkefni:
Kosning hófst
klukkan 00.01
SHAUL MOFAZ
MENNTUN Börn á leikskólum í Ísa-
fjarðarbæ eru sautján prósentum
færri nú en árið 2002. Þeim fækk-
aði úr 271 í 225 á tímabilinu.
Þetta kemur fram í skýrslu
Haraldar L. Haraldssonar hag-
fræðings um rekstur Ísafjarðar-
bæjar, sem sagt er frá á vefnum
bb.is. Lagt er til að stöðugildum í
leikskólum bæjarfélagsins verði
fækkað í samræmi við fækkun
barnanna. Börnum hefur fækkað í
öllum leikskólum nema Tjarnabæ
á Suðureyri, en þar hefur fjölgað
um tuttugu börn. - þeb
Vill fækkun stöðugilda:
Færri börn á
leikskólum
686%