Fréttablaðið - 29.03.2012, Qupperneq 8
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR8
Verðtryggð skuldabréf
Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
LSS150224
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. kt. 580407-1100, hefur birt
útgefandalýsingu og grunnlýsingu dagsett 28. mars 2012 vegna
töku skuldabréfa til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf.
Útgefandalýsinguna og grunnlýsinguna ásamt gögnum sem
vitnað er til í þeim er hægt að nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga
ohf., Borgartúni 30, 105 Reykjavík og á vefsíðu Lánasjóðs
sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is fram til okagjalddaga
skuldabréfanna.
Nafnverð útgáfu: Heildarnafnverð skuldabréfanna sem
óskað hefur verið að tekin verði til
viðskipta 30. mars 2012 er 100.000.000 kr.
heildarnafnverð flokksins eftir þá stækkun
er þá 28.344.000.000 kr. Nafnverð hverrar
eining-ar er 1 kr.
Skilmálar bréfanna: Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf.
Bréfin bera fasta 3,75% ársvexti sem greiddir
eru hálfsárslega, 15. febrúar og 15.
ágúst ár hvert, í fyrsta sinn 15. febrúar
2009 og í síðasta sinn 15. febrúar 2024.
Auð-kenni flokksins á NASDAQ OMX
Iceland hf. er LSS150224 og ISIN númer
IS0000018869.
Reykjavík, 29. mars 2012.
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Skemmtileg
t
að skafa!
100.000 kr.
á mánuði í 15 ár!
BANDARÍKIN Undanfarna þrjá daga
hafa dómarar Hæstaréttar Banda-
ríkjanna hlýtt á málflutning um
heilbrigðislöggjöfina sem Barack
Obama forseti undirritaði fyrir rétt
rúmu ári.
Andstæðingar frumvarpsins telja
það brjóta í bága við stjórnarskrá
Bandaríkjanna að skylda einstak-
linga til að greiða fyrir heilbrigðis-
tryggingu. Gætu stjórnvöld þá ekki
alveg eins skyldað einstaklinga til
að kaupa sér tíma í líkamsrækt? Nú
eða til dæmis bifreiðar, ef því er að
skipta.
Skyldutryggingin hefur á síðustu
mánuðum komið til kasta fjögurra
bandarískra dómstóla og nú síðast
féllst Hæstiréttur á að skera úr um
málið.
Af níu dómurum Hæstaréttar eru
fimm skipaðir af forsetum Repú-
blikanaflokksins og líklegir til að
telja lögin brjóta í bága við stjórnar-
skrána, en fjórir eru skipaðir af for-
setum Demókrataflokksins og þykja
líklegir til að fallast á skyldutrygg-
inguna.
Ekki er þó víst að flokkslínur
ráði. Þannig viðraði forseti hæsta-
réttar, John Roberts, sem George W.
Bush skipaði dómara á sínum tíma,
efasemdir um rök eins andstæðinga
skyldutryggingar. Roberts sagði
alla Bandaríkjamenn vera á þessum
markaði með heilbrigðis tryggingar:
„Og það gerir hann mjög frá-
brugðinn markaði með bifreiðar eða
önnur ímynduð dæmi sem þú tókst,
og það eina sem reglurnar snúast
um er hvernig greiðslur fara fram.“
Búist er við úrskurði dómstólsins
í júní.
Almennar heilbrigðistryggingar
hafa verið eitt helsta baráttumál
Demókrataflokksins áratugum
saman. Þær voru einnig eitt af
helstu kosningamálum Obama
fyrir forsetakosningarnar árið
2008.
Það þótti því mikill sigur fyrir
Obama þegar málið var loks í
höfn snemma á síðasta ári. Að
sama skapi væri það mikið áfall,
bæði fyrir Obama og Demókrata-
flokkinn, kæmist Hæstiréttur
að þeirri niðurstöðu að skyldu-
tryggingin stæðist ekki stjórnar-
skrána.
Með lögunum var 30 milljónum
Bandaríkjamanna, sem fyrir
voru án heilbrigðistryggingar,
í fyrsta sinn veittur réttur til
heilbrigðistrygginga, þannig að
nú nær kerfið til nær allra íbúa
landsins.
Umdeilt er hvaða þýðingu nei-
kvæður úrskurður Hæstaréttar
hefði fyrir lögin í heild. Einnig
er óljóst hvaða áhrif það hefði á
möguleika Baracks Obama í for-
setakosningunum næsta haust.
gudsteinn@frettabladid.is
Heilbrigðislöggjöf í
höndum dómara
Hæstiréttur Bandaríkjanna tekur sér nú umþóttunartíma fram í júní þegar úr-
skurður verður kveðinn upp um það hvort ársgömul heilbrigðislöggjöf Baracks
Obama stenst stjórnarskrá Bandaríkjanna. Þriggja daga málflutningi er lokið.
FYRIR UTAN HÚS HÆSTARÉTTAR Í WASHINGTON Stuðningsmenn og andstæðingar
skyldutryggingar hafa vakið athygli á málstað sínum síðustu daga. NORDICPHOTOS/AFP
1 Við hvern er hin árlega
mottukeppni sem fram fer á Boston
kennd?
2 Hjá hvaða fyrirtæki var gerð
húsleit á þriðjudag vegna gruns um
brot á lögum um gjaldeyrismál?
3 Hvers konar hatt setti Benedikt
16. páfi upp í Mexíkó í vikunni?
SVÖR:
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt Agné Krataviciute, 22 ára litháíska
konu, í tveggja ára fangelsi fyrir að kyrkja
nýfæddan son sinn til bana á baðherbergi á
Hótel Fróni við Laugaveg í fyrrasumar.
Lögregla fann hvítvoðunginn í rusla-
gámi við hótelið, vafinn í plastpoka, eftir að
konan hafði leitað sér ásjár á spítala vegna
fósturláts. Hún kannaðist þó ekki við að
hafa fætt barn og hélt sig við þann fram-
burð allt málið á enda.
Dómurinn telur fullsannað að hún hafi
fætt barnið og deytt það, en hins vegar er
það álit sérfróðra fulltrúa í dómnum að hún
„hafi verið sér alls ómeðvituð um þung-
unina og nær öruggt að fæðingin hafi komið
henni í opna skjöldu“.
Fæðingin, sem hafi verið óundirbúin og
án aðstoðar, hafi að öllum líkindum valdið
„skelfingarviðbrögðum með tímabundnu
minnisleysi eða hugrofi“.
Agné er þess vegna ekki sakfelld fyrir
manndráp, heldur brot gegn 212. grein hegn-
ingarlaga, sem kveður meðal annars á um að
ef ef móðir kemst í veiklað eða ruglað hugar-
ástand við fæðingu og deyðir þess vegna
barn sitt varði það fangelsi allt að 6 árum.
Agné er jafnframt dæmd til að greiða
fyrrverandi sambýlismanni sínum og barns-
föður 600 þúsund krónur í bætur. - sh
Agné Kataviciute dæmd í fangelsi fyrir að deyða nýfæddan son sinn:
Tveggja ára dómur fyrir barnsdráp
NEITAÐI SÖK Agné viðurkenndi aldrei að hún hefði fætt
barn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM1. Tom selleck 2. Samherja 3. Mexíkóhatt
eða sombrero
VEISTU SVARIÐ?