Fréttablaðið - 29.03.2012, Síða 16

Fréttablaðið - 29.03.2012, Síða 16
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR16 16 hagur heimilanna Fyrirtækið Arctic Trucks hefur ákveðið að innkalla Yamaha XV 1300A vegna hættu á bruna. Neytendastofa greinir frá því að borist hafi tilkynning frá Yamaha í vikunni þar sem segir að við reglubundna skoðun hafi komið í ljós galli í bensínslöngu í Yamaha XVS 1300A. Við sérstakar aðstæður getur gallinn valdið því að bensín undir þrýstingi leki. Því hefur verið ákveðið að innkalla umrædd hjól í öryggis- skyni og gera á þeim viðeigandi lagfæringar. Skipt verður um bensín- slönguna sem og bensínkrana og tengda lögn. Viðgerðin tekur um tvær klukkustundir og er eigendum að kostnaðarlausu. Um er að ræða hjól framleidd frá október 2008 til ágúst 2011. Eigendum hefur verið gert viðvart um inn- köllunina. Verð á bankahólfum hjá stóru bönkunum þremur hafa hækkað talsvert síðustu ár. Fréttablaðinu barst ábending frá viðskiptavini Arion banka sem sagði ársgjald á sínu hólfi hafa hækkað úr 2.000 krónum upp í 5.000 frá árinu 2010. Auk þess hafi verið tekið upp 300 króna heim- sóknargjald á ákveðnum tímum dags. Þau svör bárust frá Arion að vissulega hafi verðið hækkað, en ástæðan sé sú að það hafi haldist óbreytt lengi áður og hafi ekki staðið lengur undir kostnaði. Verð hjá Íslandsbanka er nú frá 2.500 krónum upp í 6.500, eftir stærð hólfanna og hjá Landsbanka er verðið á bankahólfum frá 3.000 krónum upp í 9.000. Margir neytendur hafa sent Neytendasamtökunum erindi vegna erfðabreyttra matvæla að undanförnu. Frá þessu greina samtökin á heimasíðu sinni. Þeir sem hafa haft samband lýsa undrun sinni á því að engin matvæli séu merkt sem erfðabreytt. Reglur um merkingar á erfðabreyttum matvælum gengu í gildi um síðustu áramót. Nú er óheimilt að selja slík matvæli án þess að það komi fram á umbúðum að þau séu erfðabreytt. Ef erfðabreytt hráefni eru meira en 0,9 prósent af vörunni þarf það líka að koma fram á umbúðum. Matvæla- stofnun og heilbrigðiseftirlit eiga að hafa eftirlit með því að þessu sé fylgt eftir. ■ Matvæli Erfðabreytt matvæli á að merkja Tryggingar á innbúum heimila eru í mörgum til- fellum of lágar, bæði vegna vanmats á innbúinu þegar trygging var keypt og vegna hækkandi verðlags í kjölfar hrunsins. Þetta er skoðun Hákonar Hákonar- sonar, eiganda Trygginga- vaktarinnar. „Þegar fólk metur sjálft innbúið sitt vegna kaupa á tryggingum vanmet- ur það verðmæti hlutanna. Það horf- ir á sjónvarpið, sófann, borðstofu- settið og ís skápinn en gleymir til dæmis fatnaði sem getur kostað talsvert á fjögurra manna fjöl- skyldu að ógleymdum skósöfnum kvenna sem geta verið verðmæt í dag,“ segir Hákon Hákonarson, eig- andi Trygginga vaktarinnar. Hákon bendir jafnframt á að nú kosti til dæmis húsbúnaður miklu meira heldur en fyrir efnahags- hrunið vegna gengisfalls krón- unnar. Þess vegna þurfi þeir sem tryggðu fyrir hrun að endurmeta tryggingar sínar. „Ef fólk er að spara sér iðgjaldið fær það bara hlutabætur verði tjón. Brenni sófinn í stofunni, sem nú kostar til dæmis 400 þúsund krónur, fær hinn tryggði aðeins 200 þúsund krónur sé hann til dæmis bara með 50% tryggingu. Fólk ætti alltaf að tryggja sem næst verðmæti hlutarins í dag og hlutirn- ir kosta miklu meira nú heldur en fyrir hrunið.“ Að sögn Hákonar getur trygg- ingafélag ekki sagt að brunninn sófi hafi í raun verið lítils virði þar sem hann hafi verið slitinn og kominn til ára sinna. „En tryggingafélag getur beitt ákveðinni fyrningarreglu sem er ákveðin prósenta fyrir hvert ár sem líður. Það er hins vegar ekki tryggingamanns að segja að hlutir séu einskis virði vegna þess að hinn tryggði þarf að kaupa nýtt í staðinn verði hann fyrir tjóni.“ Allt efni til húsbygginga kost- ar nú miklu meira en fyrir hrun. Þess vegna er nauðsynlegt að huga að endurmati á brunatryggingum, eins og Hákon bendir á. „Það er um tvo kosti að velja. Fólk getur beðið um endurmat á brunabótamati en einnig er hægt að kaupa viðbótar- brunatryggingu. Þetta á ekki bara við um heimilin í landinu, heldur einnig um fyrirtækin. Mörg þeirra eru vantryggð á sama hátt og heim- ilin.“ ibs@frettabladid.is Margir með vantryggt innbú eftir bankahrunið VERÐHÆKKUN Verð á húsgögnum hefur hækkað í kjölfar hrunsins. Þess vegna eru innbústryggingar í mörgum tilfellum of lágar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ■ Bankastarfsemi Verð á bankahólfum hafa hækkað mikið Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is PÁSKAVERÐ* Miele þvottavél W1634 áður kr. 184.500 nú kr. 169.900 Miele þvottavél W1714 áður kr. 202.500 nú kr. 184.900 * á meðan byrgðir endast Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 87% VERÐHÆKKUN hefur orðið á eggjum á undan-förnum tíu árum. Kílóið kostaði 331 krónu árið 2001, 429 krónur árið 2006 og 619 krónur í fyrra. ■ Mótorhjól Hætta á bruna í Yamaha mótorhjólum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.