Fréttablaðið - 29.03.2012, Síða 21
FIMMTUDAGUR 29. mars 2012 21
Ég er stoltur af því að vera Reykvíkingur. Íbúar höfuð-
borgarinnar hafa sýnt það að þeir
hafa margt til málanna að leggja
varðandi borgina sína. Síðan
samráðsvefurinn Betri Reykja-
vík var tekinn í notkun í október
sl. hafa mörg hundruð hugmyndir
litið dagsins ljós á vefnum.
Nú hafa nærri sex þúsund
manns skráð sig á Betri
Reykjavík og fylgjast þar með
hugmyndum og ræða málin fyrir
opnum tjöldum. Fjölmörg mál af
Betri Reykjavík eru nú þegar í
farvegi hjá stjórnsýslu borgar-
innar. Að auki hefur vefurinn
unnið til virtra verðlauna bæði
hér heima og erlendis.
Reykjavíkurborg tók frá 300
milljónir í svokallaða hverfa-
potta á þessu ári. Þessir peningar
standa straum af kostnaði við
smærri nýframkvæmdir og
viðhaldsverkefni í hverfum
borgarinnar.
Í byrjun árs óskuðu borgaryfir-
völd eftir því að borgarbúar settu
fram hugmyndir að slíkum verk-
efnum á Betri Reykjavík. Það
gekk frábærlega vel og yfir 350
hugmyndir bárust.
Fagsvið Reykjavíkur borgar
fóru svo yfir hugmyndirnar
og kostnaðarmátu þær ásamt
hverfa ráðum borgarinnar.
Efstu hugmyndum sem
íbúarnir styðja hefur nú verið
stillt upp til rafrænna kosninga.
Um er að ræða 180 hugmyndir í
hverfum borgarinnar. Allir sem
náð hafa 16 ára aldri og eiga lög-
heimili í Reykjavík geta kosið um
verkefnin. Úrslit kosninganna
verða bindandi og verkefnin
verða framkvæmd í sumar.
Í þessu skyni hefur verið sett
upp kosningakerfi í tengslum
við Betri Reykjavík þar sem
rafræn auðkenni verða notuð í
kosningum í fyrsta sinn á Íslandi.
Verkefnið er því mjög áhuga-
verður áfangi í því skyni að efla
íbúalýðræði hér á landi.
Ég vil hvetja alla Reyk víkinga
til að taka þátt í rafrænum
kosningum um Betri hverfi á
netinu dagana 29. mars-3. apríl.
Kosninga kerfið er mjög einfalt í
notkun. Rafrænt auðkenni er hið
sama og fólk notar við að skila
skattaframtalinu sínu og farið
er í gegnum vefgáttina island.is.
Einnig er hægt að nota rafræn
skilríki.
Ég vil leggja sérstaka áherslu
á að fyllsta öryggis er gætt við
kosninguna og hefur kerfið verið
öryggisprófað af óháðum aðilum.
Reykjavíkurborg getur á engan
hátt nýtt sér hin rafrænu auð-
kenni til að afla upplýsinga um
einstaka kjósendur.
Betri Reykjavík hefur þegar
vakið athygli og unnið til lýð-
ræðisverðlauna erlendis. Það sem
hefur sérstaklega vakið áhuga
útlendinga er fjöldinn sem tekur
virkan þátt í samráðsvefnum. Ég
er sannfærður um að ef Reyk-
víkingar flykkjast á rafrænan
kjörstað dagana 29. mars - 3.
apríl og kjósa sér Betri hverfi
mun það vekja heimsathygli. Ég
hvet ykkur til að nýta lýðræðis-
legan rétt ykkar til að kjósa Betri
hverfi á kjosa.betrireykjavik.is,
leiðin er greið.
Kjósum Betri hverfi
Íbúalýðræði
Jón Gnarr
borgarstjóri
38 Þrep
66°North (barna)
66°North (main)
Aftur
Birna Concept Shop
Borð Fyrir Tvo
Eggert Feldskeri
ELLA
EVA
Gaga Different Clothing
GK REYKJAVIK
Gust
Gyllti Kötturinn
Hringa
Hrím
IQ
Ísfold
Jónsdóttir & co.
Kiosk
Kókó
T Í S KUVAKA
FASHION’S NIGHT OUT
MIÐBORGINNI Í KVÖLD KL. 18:00 - 21:00
Eftirtaldar verslanir munu bjóða upp á tónlist, léttar veitingar, tísku,
sérstök vildarkjör, lífstílssnertingu og tískuforsmekk í tilefni af
REYKJAVIK FASHION FESTIVAL sem hefst á föstudag.
Kron
KronKron
Listaselið
Lítil í upphafi
MOMO
Móðir Kona Meyja
Mundi
Nikita
Nostalgía
Nostrum
Ófeigur Gullsmiðja
Rakel Hafberg Collection
Reykjavík Crafts
Rósa Icelandic Design
Sigurboginn
Skarta
Skór
Spaksmannsspjarir
Spútnik
Sævar Karl
Tiia
Vinnufatabúðin
Volcano Design
Zebra Cosmetique
Þorsteinn Bergmann
Icewear
Orr
Huld
GÞ Skartgripir
Verum, verslum og njótum
þar sem hjartað slær.
Gjafakortið fáanlegt
í öllum bókaverslunum.
Nokkur umræða hefur farið fram að undanförnu um áhrif
hugsanlegra virkjana í neðri hluta
Þjórsár neðan Búrfells. Virkjana-
kostirnir sem um ræðir eru þrír:
Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og
Urriðafossvirkjun. Áhrif þessara
virkjana á lífríkið eru með mis-
munandi hætti og gefur það því
ekki alls kostar rétta mynd að
fjalla um þær þrjár í einu. Nátt-
úruleg búsvæði laxa eru á áhrifa-
svæði Urriðafoss virkjunar,
en ekki ofan við fyrirhugaða
Hvammsvirkjun og Holta virkjun,
þótt þar hafi lax numið land í
seinni tíð vegna tilkomu laxastiga.
Áhrif fyrirhugaðra fram-
kvæmda á lífríki eru ávallt háð
nokkurri óvissu. Óvissan minnkar
þó með auknum rannsóknum.
Rannsóknir á lífríki Þjórsár, og
einkum fiskistofna þar, hafa átt
sér stað allt frá árinu 1973. Í upp-
hafi stóð Veiðimálastofnun fyrir
rannsóknunum en í seinni tíð hafa
þær verið unnar að mestu af Veiði-
málastofnun fyrir Landsvirkjun.
Aðrir aðilar hafa ekki rann sakað
fiskistofna Þjórsár með viðlíka
hætti og hamlar það nokkuð fræði-
legri og faglegri umræðu um þetta
mál. Vissulega má draga lærdóm
af rannsóknum, sem farið hafa
fram annars staðar í heiminum,
og við Íslendingar eigum að gera
það að svo miklu leyti sem unnt
er með tilliti til aðstæðna. Þegar
Þjórsá er borin saman við ár á
vesturströnd Norður-Ameríku
þarf að hafa í huga að þar ytra er
um að ræða Kyrrahafslaxa en ekki
Atlantshafslax. Þá eru virkjanir í
Columbia og Snake ánum margfalt
fleiri en í Þjórsá og flestar voru
þær byggðar á tímum þar sem
þekking og áhersla á lífríki var
minni en hún er í dag.
Annað sem nefna má er að
stjórnun rennslis í mörgum virkj-
unum á vesturströnd Norður-
Ameríku er töluvert frábrugðin
því sem fyrirhugað er í Þjórsá. Í
neðri hluta Þjórsár eru fyrir huguð
lón, ekki miðlunarlón heldur lítil
inntakslón með stöðugu vatns-
borði og því verður ávallt tölu-
verður straumur í gegnum lónin.
Rennslissveiflur í ánni verða ekki
frábrugðnar núverandi sveiflum,
og búast má við hefðbundnum vor-
flóðum líkt og í dag. Af þessum
ástæðum er ástæðulaust að halda
að lónin tefji eða hindri niður-
göngu seiða umtalsvert enda er
viðstöðutími vatns ekki nema 11
til 14 klst. í hverju lóni.
Landsvirkjun mun standa fyrir
mótvægisaðgerðum til þess að
draga eins mikið og mögulegt er úr
neikvæðum áhrifum virkjananna
á laxastofninn, eins og áður hefur
komið fram. Eru þær mótvægis-
aðgerðir byggðar á fenginni
reynslu og rannsóknum. Þegar
hefur fengist afar jákvæð reynsla
af fiskistiganum við fossinn Búða,
sem hefur gert laxi kleift að nema
land á stöðum ofar í ánni sem áður
voru honum ekki aðgengi legir.
Tvöfaldaðist stærð laxgengra
svæða með fiski stiganum. Þessi
nýju svæði sem laxinn hefur numið
á undanförnum árum eru lýsandi
dæmi þess að mótvægisaðgerðir
geta heppnast vel.
Fiskistiginn við Búða gerir laxi
kleift að komast upp fyrir Holta-
virkjun og einnig er fyrirhugað að
gera fiskistiga framhjá Hvamms-
virkjun og Urriðafossvirkjun. Þá
verður ákveðin gerð fiskvænna
hverfla sett í virkjanirnar. Seiða-
fleyta verður við Urriðafoss, en
vakin skal sérstök athygli á því að
það er eina fyrirhugaða virkjunin
á náttúrulegu búsvæði laxa í
Þjórsá.
Dregið verður úr netaveiði um
70 til 80% með samningum við
landeigendur sem mun draga
verulega úr veiðiálagi. Sú breyting
hefur jákvæð áhrif á laxastofna og
eykur möguleika til stangveiða.
Mótvægisaðgerðir Lands-
virkjunar miða að því að áhrif
fyrirhugaðra virkjana á laxastofn
Þjórsár verði óveruleg. Eru mót-
vægisaðgerðirnar hannaðar út frá
fenginni reynslu og niðurstöðum
rannsókna.
Á undanförnum árum hefur
farið fram umfangsmikið og vand-
að ferli innan ramma áætlunar
þar sem virkjanakostir hafa verið
metnir með tilliti til nýtingar og
verndunarsjónarmiða. Eftir ára-
langa vinnu stórs hóps vísinda- og
fagaðila með ítrekuðum opnum
umsagnarferlum skilaði verkefnis-
stjórn skýrslu sinni á síðasta ári.
Þar koma virkjanir í neðri hluta
Þjórsár vel út og voru því haustið
2011 allar settar í nýtingarflokk í
drögum að þingsályktunartillögu
iðnaðarráðherra og umhverfisráð-
herra um flokkun virkjanakosta.
Að mati Landsvirkjunar hafa ekki
komið fram efnisleg rök til að
breyta þeirri flokkun.
Allri málefnalegri umræðu um
þetta mál er fagnað og hvetjum við
alla hagsmunaaðila og áhugasama
einstaklinga til að kynna sér málið
og mynda sér sjálfstæða skoðun út
frá þeim tillögum, upplýsingum
og rannsóknum sem liggja fyrir
og eru birtar á vefsíðu Lands-
virkjunar, landsvirkjun.is.
Neðri Þjórsá - áhrif virkjana á fiskistofna
Orkumál
Hörður
Arnarson
forstjóri Landsvirkjunar