Fréttablaðið - 29.03.2012, Page 30
FÓLK|TÍSKA
Riccardo Tisci, yfirhönnuður hjá Givenchy, er þekktur fyrir munúðarfull og rómantísk
klæði. Honum bregst ekki bogalistin
með vorlínu sem hefur vakið athygli
fyrir óhefðbundin snið og val á efni
sem á meðal annars rætur að rekja
til sútunarverksmiðju á Íslandi.
„Við eigum í viðskiptum við mörg
af stærstu tískuhúsum heims og við-
skiptavinir okkar njóta fulls trúnaðar.
Hins vegar get ég ekki neitað því
að roðið er frá okkur þar sem þetta
er hlýraroð og við erum eina verk-
smiðjan í heiminum sem sútar það,“
staðfestir Sara María Júlíudóttir, upp-
lýsingafulltrúi Sjávarleðurs á Sauðár-
króki, við blaðamann þegar hann
slær á þráðinn norður.
Myndir af vorlínu Givenchy hafa
verið að birtast í helstu tískutíma-
ritum og þar geta glöggir lesendur
séð roðið frá Sjávarleðri í ýmsum
útfærslum. Þar á meðal sem kjóla,
ermar, belti og jakka en brasilíska
ofursætan Gisele Bündchen sýndi
einn slíkan fyrir Tisci. Víða er farið
lofsamlegum orðum um fötin, þökk
sé fallegum línum og skemmtilegu
efnsvali, og notkun á roði hrósað.
AUKIN EFTIRSPURN
Sara María segist almennt finna
fyrir aukinni eftirspurn eftir roði
frá erlendum tískurisum á borð við
Givenchy, Dior og Gucci. „Roð er
fallegt og roð hlýrans er líka sterkt
og hentar því vel til skinngerðar. Þar
að auki er það hráefni sem fellur til
í matvælaiðnaði áður en það er nýtt
í tískuiðnaði og því eftirsótt af fata-
hönnuðum sem eru að verða sífellt
meðvitaðri um umhverfið.“
Til marks um það nefnir Sara
María að Sjávarleðri hafi nýlega
verið tekið fagnandi á umhverf-
isvænni kaupráðstefnu í Berlín.
„Útsendarar frá Green Peace voru
meira að segja sáttir við okkar
vinnsluferli,“ segir hún og hlær.
Sömuleiðis hafi gengið vel á kaup-
ráðstefnu í París fyrir skömmu sem
starfsmenn stóru tískuhúsanna
sóttu. „Þeir sýndu okkur mikinn
áhuga. Þannig að ýmislegt er í píp-
unum,“ segir hún leyndardómsfull.
■ rve
GIVENCHY NOTAR
ROÐ FRÁ ÍSLANDI
Í TÍSKU Roð frá íslenska fyrirtækinu Sjávarleðri verður sífellt eftirsóttara
meðal erlendra tískurisa. Riccardo Tisci þykir nota það á áhrifaríkan hátt í
nýrri vorlínu Givenchy.
DISCOVERY CHANNEL ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS