Fréttablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 31
Kynningarblað Fasteignaumsjón, fyrirtækjaþrif,
vorhreingerning, fróðleikur og góð ráð.
RÆSTING
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2012
&ÞJÓNUSTA
ISS Ísland er leiðandi fyrirtæki á svið fasteignaumsjónar. Fast-eignaumsjón ISS saman stendur
af ræstingasviði, veitingasviði og
eignaumsýslusviði. Stærsta svið
fyrirtækisins er ræstingasviðið en
þar vinna um 640 manns af um 850
starfsmönnum ISS Ísland. Hólm-
fríður Einarsdóttir, sviðsstjóri
ræstinga sviðs, segir ræstingasvið-
ið vera stærsta rekstraraðilann í
ræstingum hérlendis. „Ræstinga-
svið okkar veitir fjölbreytta þjónustu
til fyrirtækja, stofnana og sveitarfé-
laga og eru viðskiptavinir okkar á
sjötta hundrað talsins.“
Hólmfríður segir starfsmenn
sviðsins vel í stakk búna til að
takast á við ólík og fjölbreytt verk-
efni á sviði ræstinga og hreingern-
inga. Lausnir eru gjarnan lagaðar að
þörfum viðskiptavinarins, sérstak-
lega í stærri verkefnunum. „Hvort
sem um er að ræða hefð bundnar
og reglubundnar ræstingar eða
óvænt stór og jafnvel sérhæfð verk-
efni erum við í stakk búin til að
veita skjóta og góða þjónustu.“ Hún
nefnir sem dæmi þegar gosið varð
í Eyjafjallajökli árið 2010. Þá hafi
fyrirtækið sent hóp starfsmanna
og stjórnenda á staðinn til að þrífa
ösku á heimilum og vinnustöðum.
Vegna stærðar fyrirtækisins sé ISS
í stakk búið til að taka að sér stór
verkefni og oft á tíðum komi þau
með skömmum fyrirvara. Ræst-
ingasviðið sé alvant að þurfa að
ná saman stórum hópi til að þrífa
fyrirtæki og stofnanir sem eru að
hefja rekstur eða opna daginn eftir
breytingar. Þá þurfi að vinna hratt
og örugglega enda mikið í húfi fyrir
viðskiptavini ISS Ísland.
Sterk staða á markaði
Ræst ingasv ið ISS er stærst i
rekstrar aðilinn á sínu sviði hér-
lendis eins og fyrr segir. Hún segir
ISS Ísland þjóna flestum atvinnu-
greinum hérlendis, t.d. stóriðju,
framleiðslu fyrirtækjum, fjármála-
starfsemi, virkjunum, skólum og
heilbrigðisstofnunum svo eitthvað
sé nefnt. Auk þess séu mörg sveitar-
félög í viðskiptum hjá ISS. „Við
höfum náð mjög góðum árangri
hjá fyrirtækjum og stofnunum á
heilbrigðis sviði og í matvælafram-
leiðslu. Þetta eru svið sem krefjast
mikillar sér hæfingar og eru miklar
kröfur gerðar til árangurs, tækja og
búnaðar og þjálfunar starfsfólks og
þar hefur tengingin við alþjóðafyrir-
tækið komið að góðum notum. Allar
heilsugæslustöðvar á Stór-Reykja-
víkursvæðinu eru t.d. í viðskiptum
við okkur eftir útboð ásamt mörgum
deildum Landspítalans auk margra
læknastofa.“ Hún segir mikla sér-
þekkingu þurfa til að þjónusta fyrir-
tæki og stofnanir á heilbrigðissviði,
þar sé alltaf smithætta til staðar og
huga þurfi vel að sótthreinsun t.d.
tækja og rýma.
Að sögn Hólmfríðar hefur ISS Ís-
land náð góðum árangri í þjónustu
við matvælaiðnaðinn, það er kjöt-
og fiskvinnslur hérlendis. Þar er um
að ræða sértæk þrif á vinnuvélum
og vinnuaðstöðu. Sú vinna tengist
síðan aftur ýmsum vottunum sem
fyrirtækin þurfa að vinna og stan-
dast. Því sé mikilvægt að vandað sé
til verka og að samstarf aðila sé gott.
Þekking og reynsla sótt að utan
Móðurfélag ISS Íslands er ISS A/S
og hefur félagið höfuð stöðvar í
Danmörku. Samsteypan hefur
starfsstöðvar í 56 löndum og hjá
henni vinna nú um 534.000 starfs-
menn. ISS Ísland er í þeirri ein-
stöku aðstöðu að geta sótt víðtæka
þekkingu og reynslu til móður-
félagsins sem hefur starfað á þessu
sviði í rúmlega 100 ár. „Mikil gæða-
vinna fer fram hjá ISS á alþjóða-
vettvangi. Þar eru Norðurlöndin í
forystu og er Ísland hluti af þeim
hópi. Þar má helst nefna Cleaning
Excellence sem er heildrænt kerfi
sem snýr m.a. að ferlum, tækjum
og búnaði, verklagi og starfsað-
ferðum með gæði verks að leiðar-
ljósi. Þar er rauði þráðurinn að lág-
marka erfiðisvinnu fyrir starfs-
menn okkar um leið og afköst eru
skilgreind.“ Hólmfríður segir að
tengingin við alþjóðaf yrirtæk-
ið sé ISS Íslandi mikil áskorun því
mikill agi sé á öllum vinnubrögð-
um varðandi framkvæmd þjónustu
og fjármál. Sá agi og aðgangur að
mótuðum lausnum, þekkingu og
reynslu nýtist á öllum sviðum fyrir-
tækisins sem síðan skilar sér í enn
betri þjónustu til viðskiptavina á Ís-
landi.
Heildarlausnir á sviði
ræstinga fyrir atvinnulífið
Ræstingasvið ISS Ísland er stærsti þjónustuaðilinn á sviði ræstinga hérlendis. Sviðið þjónustar flestar atvinnugreinar og
býr við þá einstöku aðstöðu að geta sótt víðtæka reynslu og þekkingu til alþjóðlega móðurfélagsins ISS A/S sem hefur
starfað í heila öld.
Hólmfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri ræstingasviðs, segir ISS Ísland þjóna flestum
atvinnugreinum á Íslandi.
RÆSTINGASVIÐ ISS MEÐ
NORRÆNA UMHVERFIS
VOTTUN
Árið 2009 hlaut ræstingarsvið
ISS norrænu umhverfis vottunina
Svaninn, sem er opinbert um-
hverfismerki Norðurlanda.
Svanurinn hefur skapað sér sess
sem mikilvægasta og áreiðan-
legasta umhverfismerkið á
Norðurlöndum með mikla
útbreiðslu og traust meðal
neytenda. Með vottuninni
tryggir ISS Ísland fyrirtækjum og
stofnunum gæðaþjónustu sem er
vistvænni í framkvæmd.
ISS ÍSLAND ER FRAMÚR
SKARANDI FYRIRTÆKI
ISS Ísland var eitt af 245 fyrir-
tækjum sem stóðust styrk- og
stöðugleikamat Creditinfo fyrir
rekstrarárið 2011. Af rúmlega
32.000 fyrirtækjum sem skráð eru
í hluthafaskrá uppfylltu einungis
245 fyrirtæki þau skilyrði. Meðal
þátta sem horft var til var að
viðkomandi fyrirtæki hafi sýnt
jákvæðan rekstrarhagnað þrjú ár í
röð og að eignir fyrirtækis séu yfir
80 milljónir árin 2008-2010. Sams
konar vottanir þekkjast erlendis
en skilyrðin hér voru strangari.
Listinn undirstrikar því vel styrk-
leika fyrirtækja sem á honum eru.