Fréttablaðið - 29.03.2012, Side 35

Fréttablaðið - 29.03.2012, Side 35
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2012 3Geðhjálp ● SÓLRÚN ÓSK LÁRUSDÓTTIR SKRIFAR: Landssamtökin Geðhjálp voru stofnuð af aðstandendum og stuðn- ingur við þá er mikilvægur þáttur í starfi félagsins. Um helmingur þeirra sem leita til ráðgjafaþjón- ustu Geðhjálpar er aðstandendur; foreldrar, börn, makar, systkini, vinir, frændfólk, afar og ömmur. Talið er að á hverjum tíma séu um 50.000 Íslendingar að glíma við einhvers konar geðsjúkdóm þannig að flest þekkjum við til eða erum aðstandendur einhverra. Stuðningur aðstandenda er afar mikilvægur og getur tekið á sig ýmsar myndir. Í sumum tilfellum veita aðstandendur fjárhagslegan stuðning, gerast málsvarar, veita aðstoð við athafnir daglegs lífs og útvega jafnvel húsaskjól. Tilfinningalegur stuðningur er nauðsynlegur en oft eiga aðstand- endur erfitt með að vita hvernig þeir eiga að veita hann. Sumir þola illa afskiptasemi og ofverndun í veikindum sínum og vilja jafnvel enga hjálp þiggja. Það getur verið flókið að læra hvar og hvenær á að setja mörk og að hlusta og sýna skilning án þess að vera meðvirkur. Þeir sem glíma við geðsjúkdóma sýna stundum hegðun sem nákomn- ir eiga erfitt með að takast á við og getur komið róti á tilfinninga lífið. Aðstandendur geta fundið fyrir ótta, reiði, sársauka, sorg og sekt- arkennd svo eitthvað sé nefnt. Þótt stuðningur geti verið gefandi og sé veittur með glöðu geði getur hann einnig valdið álagi og oft skortir að- standendur aðgang að úrræðum og upplýsingum. Rannsóknir hafa bent til að það hafi jákvæð áhrif á bata í geðrænum veikindum þegar þörf- um aðstandenda fyrir upplýsingar, ráðgjöf og stuðning er mætt. Geðsjúkdómar geta hent okkur öll. Ef þig grunar að einhver þér nákominn glími við geðræn veikindi gæti verið gott að byrja á því að spyrja viðkomandi hvernig honum líði og hvort og hvernig þú getir stutt hann. Einnig er hægt að hafa samband við ráðgjafa Geð- hjálpar sem gæta fyllsta trúnaðar. Við erum öll aðstandendur Ráðgjafinn Sólrún Ósk segir aðstand- endum standa stuðningur til boða. KRISTÍN TÓMASDÓTTIR SKRIFAR: Geðhjálp hefur á undanförnum tveimur árum lagt áherslu á að efla þjónustu sem snýr að hags- munagæslu fyrir hagsmunahóp félagsins. Í hagsmunagæslu felst að standa vörð um hag og réttindi sjúklinga og aðstandenda, vera hlustandi og óháður tals maður. Gæta þarf að því að farið sé að lögum og að mannréttindi séu ekki brotin en einnig að meðferðar þegi sé hafður með í ráðum varðandi sína meðferð og að virðing sé borin fyrir hans/hennar skoðunum. Þá getur hagsmunagæslan einnig snúið að réttindum aðstandenda til þess að taka ákvarðanir eða fá fyrir liggjandi gögn í hendurnar. Geðhjálp eru óháð hagsmuna- samtök sem hafa enga hagsmuni af því að verja ákvarðanir spítal- anna, Tryggingastofnunar, ráðu- neyta eða annarra aðila sem gætu tekið ákvarðanir um málefni hags- munahópsins nema það sé hópnum fyrir bestu. Í þessu felst að vera óháður hagsmunaaðili. Undanfarin tvö ár hafa komið inn á borð ráðgjafa Geðhjálpar að meðaltali sex hagsmunamál á mánuði. Mörg þeirra eru leyst með einföldum aðgerðum til dæmis að- stoð við lestur á fyrirliggjandi gögnum, aðstoð við bréfaskrif eða stuðning á fundum um málefni þess sem á í hlut. Stundum snúa málin að einföldum misskilningi og fellur það þá í hlut hagsmuna- gæslunnar að reyna eftir bestu getu að leiðrétta misskilninginn. Sumir geðsjúkdómar eru þess eðlis að fólk getur átt erfitt með að meta aðstæður eða greina hver þeirra réttindi eru og hvort þau séu í há- vegum höfð. Í þeim tilfellum getur óháður aðili safnað saman upplýs- ingum og gögnum sem styðja að svo sé, nú ef svo er ekki þá getur hagsmunagæslan fylgt málunum eftir og þrýst á að svo verði. Sumir eiga aðstandendur sem sinna þessu hlutverki en margir þeirra leita til Geðhjálpar eftir praktískum upplýsingum um geðheilbrigðiskerfið og hvernig best sé að snúa sér í ákveðnum aðstæðum. Stundum getur verið gott að fá utanaðkomandi aðila til þess að sinna þessu hlutverki til þess eins að koma í veg fyrir trúnaðar bresti í traustum sam- böndum við aðstandendur. Aðrir eiga ekki aðstandendur sem geta sinnt þessu hlutverki eða gera sér ekki grein fyrir mikilvægi þess. Þá er þjónusta Geðhjálpar oftar en ekki vel þegin. Til þess að hagsmunagæslan skili góðum árangri er mikilvægt að allir málsaðilar vinni vel saman en þannig næst yfirleitt mikil sátt og niðurstöður sem eru öllum fyrir bestu. Mikilvægi hagsmunagæslu „ Í hagsmunagæslu felst að standa vörð um hag og réttindi sjúklinga og aðstandenda, ” segir Kristín Tómasdóttir ráðgjafi hjá Geðhjálp. STEINDÓR J. ERLINGSSON SKRIFAR: Miklar deilur standa í dag vegna fimmtu útgáfu flokkunar- og greiningarkerfis bandarísku geð- læknasamtakanna (DSM-5), sem væntanleg er á næsta ári. Tillögur DSM-5 vinnuhópanna eru sumar þess eðlis að óbreyttar muni þær leiða til þess að fjöldi þeirra sem hægt er að greina með geðröskun mun vaxa mikið. Í hugum sumra fela tillögurnar í sér áframhald þeirrar miklu sjúkdómsvæðingar mannlegra tilfinninga sem fylgdi DSM-III (1980) og IV (1994). Það er því viss kaldhæðni falin í því að harðasti gagn- rýnandi DSM-5 er geðlæknir- inn Allen Frances ( http://bit.ly/ c jKial), sem ritstýrði DSM-IV. Frances hefur bent á að líkja megi stöðu flokkunar kerfis geðlæknis- fræðinnar við ástand líffræði- legrar flokkunarfræði fyrir daga þróunarkenningar Darwins. Þá var hægt að flokka höfrunga með fiskum og leðurblökur með fuglum því að oftast var horft á yfirborðs- einkenni, eins og geðlæknar gera í greiningum sínum, en ekki undir- liggjandi skyldleika. Í þessu sambandi má spyrja hvort sorgarviðbrögð við fráfall maka eða náins ættingja séu í raun þunglyndi . Samkvæmt DSM- IV má ekki greina einstakling sem upplifir slíka sorg með þung- lyndi, þó hann uppfylli greiningar- skilyrði, fyrr en eftir tvo mánuði. Í DSM-III var tímabilið eitt ár. Nú stendur hins vegar til að fella sorgarundanþáguna út úr DSM-5 og því má greina einstakling með þunglyndi tveimur vikum eftir t.d. fráfall maka. Bandaríska geðlækninum Arthur Kleinman stendur ekki á sama um þessa tillögu. Í grein sem birtist um miðjan febrúar í lækna- tímaritinu Lancet fjallar hann um dauða eiginkonu sinnar, sorgina, æsinginn, svefn-, einbeitingar- og lystarleysið sem fylgdi í kjölfarið. Kleinman segir að eftir því sem mánuðirnir liðu hafi þessi erfiða reynsla orðið léttbærari, en nú þegar ár er nánast liðið frá and- látinu „finn ég enn stundum fyrir sorg og líður eins og hluti af mér sé að eilífu horfinn“. Vegna faglegra og persónulegra ástæðna á Kleinman jafn erfitt með að skilja núverandi tillögu um að fella út sorgarundanþáguna og tveggja mánaða undan þáguna sem fyrir er í DSM-IV. Kleinman segir að hér sé á ferð sjúkdóms væðing eðlilegra tilfinninga. Leiðara- höfundur Lancet tekur undir með Kleinman: „Sorg er ekki sjúk- dómur. Það er gagnlegra að hugsa um hana sem fylgifisk þess að vera manneskja og eðlilegt viðbragð við fráfalli ástvinar. Það er óvið- eigandi að setja tímamörk á sorg.“ Leiðarahöfundurinn leggur áherslu á að þótt sorg geti stundum leitt til alvarlegs þunglyndis komist mikill meirihluti þeirra sem upp- lifa hana í gegnum reynsluna án aðstoðar læknis eða lyfja. Enn fremur bendir hann á að ekki liggi vísindalegar sannanir fyrir því að þunglyndislyf gagnist einstaklingum sem nýlega hafa upplifað mikla sorg. Það virðist því vel hægt að taka undir með Frances að ef tillagan nær fram að ganga muni einungis lyfjafyrir- tækin græða á henni. Er sorg þunglyndi? Vísindasagnfræðingurinn Steindór J. Erlingsson segir miklar deilur standa um fimmtu útgáfu flokkunar- og greiningarkerfis bandarísku geðlæknasamtakanna (DSM-5). En í hugum sumra fela þær í sér sjúkdómsvæðingu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.