Fréttablaðið - 29.03.2012, Page 43
| FÓLK| 5TÍSKA
Tískuvaka/Fashion night out verður haldin
víða í verslunum á Laugaveginum í kvöld.
Þetta er í fyrsta sinn sem blásið er til þessa
viðburðar en hann er í beinum tengslum við
Reykjavík Fashion Festival. Opið verður fram
eftir í búðunum og ýmsar uppákomur tengd-
ar tísku í boði. Þær verslanir sem taka þátt
verða skreyttar rauðum blöðrum svo auðvelt
verður að þræða uppákomurnar. Hin glænýja
hönnunar búð Hrím á Laugavegi 25 galopnar
dyrnar.
„Við ætlum að hækka í tónlistinni, bjóða
upp á drykki og hafa smá stuð hér í búðinni,“
segir Tinna Brá Baldvinsdóttir eigandi Hríms.
„Kannski bregðum við líka á leik með Loma
ljósmyndavélarnar okkar og fáum fólk til að
smella myndum hvert af öðru og fanga þannig
tískuna á götunni,“ segir Tinna. Hún segir
spennandi að sjá hvernig takast muni til og
mikilvægt að verslanir taki þátt í upp ákomum
sem þessum til að skapa hressandi stemmingu
í bænum. Þétt er á milli verslana í kringum
Hrím en verslunin Aftur er á annarri hæð í
sama húsi og þar verður einnig eitthvað um að
vera í kvöld. Þá er stutt í Nostalgíu og Spútnik
og hvetur Tinna fólk til að kíkja í bæinn.
Í Hrím er að finna hönnunarvöru, bæði ís-
lenska hönnun og erlenda, heimilisvörur, skart
og fylgihluti og var Tinna meðal annars að
taka upp handgerðar leðurtöskur í allavega
litum. Stutt er síðan Hrím var opnað á Lauga-
veginum en verslunin er einnig staðsett í
Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Tinna er
ánægð með viðtökurnar sem Hrím hefur fengið
í höfuðborginni.
„Við opnuðum 16. mars og móttökurnar
hafa verið framar vonum. Ég trúi varla hvað
þetta hefur gengið vel,“ segir Tinna.
Tískuvakan hefst klukkan 18 og stendur til
klukkan 21.
TÍSKUVAKA Í HRÍM
STUÐ Í BÚÐINNI Nokkrar verslanir á Laugaveginum opna dyrnar í
kvöld á tískuvöku sem haldin er í tengslum við RFF.
STEMMING Á LAUGAVEGI Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hríms á Laugavegi 25, ætlar að
hækka í tónlistinni og bjóða upp á léttar veitingar í versluninni milli klukkan 18 og 21 í kvöld.
MYND/ANTON
■ Söngkonan Lady Gaga er þekkt
fyrir skrautlegan klæðaburð og
framkomu sem hefur oftar en ekki
valdið fjaðrafoki. Skemmst er að
minnast þess þegar hún reitti
dýraverndunarsamtökin Peta til
reiði fyrir tveimur árum með því
að mæta í kjötkjól á tónlistar-
myndbandahátíð MTV. Í byrjun
var Gaga gagnrýnd fyrir að stæla
klæðaburð söngkonunnar Madonnu
en flestum ber nú saman um að
sérstæður fatastíll hennar eigi
sér enga hliðstæðu. Enda kannski
ekki margar poppdívur sem hafa
látið sjá sig opinberlega í jakka
gerðum úr mörgum eintökum
af Kermit froski, kjól úr glærum
kúlum eða brjóstahaldara með
logandi stjörnuljósum.
OUTLET-SKÓR | FISKISLÓÐ 75 | 101 REYKJAVÍK
Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407
SK
ÓR
SSK
ÓRR
7.900
aðeins
aðeins
kr.
kr.
11.900
aðeins
kr.4.900
Herra skór
St. 41–48
Stráka skór
St. 27–35
aðeins
1.900
Hjólaskór
barna
St. 28–41
kr.
Shape Ups
dömu skór
St. 36–40
aðeins
5.900
Stelpu skór
St. 28–35
kr.
FER ÓTROÐNAR SLÓÐIR