Fréttablaðið - 29.03.2012, Qupperneq 61
FIMMTUDAGUR 29. mars 2012 41
Tónlist ★★★ ★ ★
Songs From the Top of the
World
Hot Eskimos
Björk hittir
Áhöfnina á
Halastjörnunni
Hot Eskimos er djasstríó skipað Karli
Olgeirssyni píanóleikara, Jóni Rafns-
syni kontrabassaleikara og Kristni
Snæ Agnarssyni trommuleikara.
Songs From The Top Of The World
hefur að geyma þrettán íslensk
dægurlög útsett fyrir píanótríó.
Lögin koma úr ýmsum áttum. Þarna
er bæði Ammæli Sykurmolanna,
Rúdolf Þeysara, Can‘t walk away
Herberts Guðmundssonar og Is it
true? sem Jóhanna Guðrún söng í
Eurovision.
Það er ekkert nýtt að taka
dægurlög og djassa þau upp. Annað
píanótríó, The Bad Plus, kemur strax
upp í hugann, en meðlimir þess
hafa gert út á þetta með góðum
árangri síðasta áratuginn; tekið allt
frá Abba og David Bowie til Aphex
Twin og Interpol.
Songs From The Top Of The World
er að mörgu leyti mjög vel heppnuð
plata. Útsetningarnar eru ágætar,
hvort sem við tölum um Army of
me, Rúdolf, Þú komst við hjartað
í mér, Fjöllin hafa vakað eða Stolt
siglir fleyið mitt. Það hefði kannski
mátt setja aðeins meiri trylling í þær
sumar, en þetta er samt vel gert.
Það besta við plötuna er lagavalið;
Björk, Jóhanna Guðrún, Þeyr, Jónsi
og Áhöfnin á Halastjörnunni eru allt
í einu komin á alveg sama staðinn
og manni finnst það ekkert skrítið!
Eins og nafnið á hljómsveitinni
og plötunni gefur til kynna er Songs
From The Top Of The World svolítið
stíluð inn á erlenda ferðamenn.
Íslendingar ættu samt ekki að láta
það styggja sig. Þessi plata er ekkert
síður fyrir þá. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Karl Olgeirs, Jón Rafns
og Kristinn Snær djassa upp íslensk
popplög úr ólíkum áttum.
Tékkneska tónlistarkonan Marketa
Irglova er stödd hér á landi ásamt
hljómsveit við upptökur. Hún heldur
tónleika á Kexi 4. apríl.
Margir kannast eflaust við
Marketu úr dúettinum The Swell
Season sem hún skipar ásamt Íran-
um Glen Hansard. The Swell Season
hélt einmitt eftirminnilega tónleika
á Nasa í október 2010. Irglova, sem
er 23 ára, hlaut Óskarsverðlaunin
ásamt Hansard árið 2008 fyrir lagið
Falling Slowly úr myndinni Once.
Hún varð þar með fyrsta tékkneska
konan til að vinna Óskarinn.
Frjálst sætaval er á tónleikana
á Kexi en setið verður á gólfinu.
Fólk er því hvatt til að koma með
púða með sér. Miðaverð er 1.900
krónur og hefst miðasala á Midi.is
á fimmtudaginn.
Irglova með tónleika
Á ÍSLANDI Marketa Irglova stígur á svið
ásamt hljómsveit sinni á Kexi 4. apríl.
Leikkonan Michelle Williams er nú
orðuð við gamanleikarann Jason
Segel, en þau hafa þekkst í nokkur
ár. Myndir náðust af parinu er það
fékk sér göngutúr ásamt sex ára
gamalli dóttur Williams, Matildu.
Tímaritið US Weekly náði
myndum af Williams og Segel er
þau snæddu saman á veitinga-
staðnum Frankie‘s Spuntino og
er þau gengu hönd í hönd í átt að
heimili hennar í Brooklyn.
„Hann hélt utan um hana og
þau hlógu mikið. Þau virtust mjög
hrifin af hvort öðru og virtist líða
vel í návist hvors annars,“ var haft
eftir sjónarvotti.
Næsta dag sást
parið fá sér göngu-
túr ásamt Matildu,
sem Williams átti
með leikaranum
Heath Ledger. Að
sögn sameigin-
legra vina eru
leikararnir
mjög hamingju-
samir og ætla
að láta reyna á
sambandið þrátt
fyrir að Segel
sé búsettur í
Los Angeles og
Williams í New
York.
Fann ástina
að nýju
FANN ÁSTINA
Leikkonan
Michelle Williams er
sögð hamingjusöm
með gamanleikar-
anum Jason Segel.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ashton Kutcher er sagður vera í
samningaviðræðum um að leika í
nýrri þáttaröð af Two and a Half
Men.
Leikarinn tók við aðalhlutverki
gamanþáttanna af Charlie Sheen
í fyrra og hefur leikið milljarða-
mæringinn Walden Schmidt í
fyrstu þáttaröðinni. Áhorfið á
þættina hefur minnkað nokkuð
eftir að Sheen hvarf á
braut en það virðist
ekki hafa áhrif
á framleiðend-
urna, sem vilja
endilega halda
í Kutcher. Talið
er að Kutcher fái
tæpar níutíu
milljónir
króna fyrir
hvern þátt
af Two and a
Half men og
er hann þar
með hæst
launaði
sjónvarps-
leikari
Banda-
ríkjanna.
Vilja semja
við Kutcher
ASHTON
KUTCHER
Kutcher leikur
milljarðamær-
inginn Walden
Schmidt.
Kaupaukinn þinn* þegar þú kaupir
Biothem vörur fyrir 6.900 krónur eða meira:
~ Skin Vivo næturkrem 15 ml
~ Skin Vivo dropar 7 ml
~ Skin vivo augnkrem 2 ml
~ Skin Vivo andlitsvatn 10 ml
~ Biocils augnfarðahreinsir 30 ml
~ Biosource hreinsir 50 ml
~ Eau de Paradis húðmjólk 75 ml
Verðmæti kaupaukans 11.200 krónur
*Gildir á kynningunni meðan birgðir endast. Einn kaupauki á viðskiptavin.
BIOTHERM BOMBA
Í DEBENHAMS 29. MARS – 4. APRÍL
EYÐIR 5 MERKJUM ÓJAFNRAR HÚÐAR OG HÚÐIN VERÐUR
SJÁANLEGA SLÉTTARI OG UNGLEGRI.
DAGKREM