Fréttablaðið - 29.03.2012, Side 64
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR44
sport@frettabladid.is
ALFREÐ GÍSLASON og lærisveinar hans í Kiel eru komnir með tíu stiga forskot á toppnum og aðra hönd á þýska
meistaratitilinn eftir átta marka sigur á Füchse Berlin, 36-28, í uppgjöri tveggja efstu liðanna í þýsku úrvalsdeildinni í hand-
bolta í gærkvöldi. Þarna mættu íslensku þjálfararnir Alfreð og Dagur Sigurðsson. Alexander Petersson lék aðeins vörnina með
Füchse Berlin og komst ekki á blað en Aron Pálmarsson spilaði síðustu fimmtán mínútur leiksins og skoraði 1 mark.
HENSON
LAGERSALA
Aðeins í fjóra d
aga.
- föstudag 30.
mars kl. 11-18
- laugardag 31
. mars kl. 11-1
6
- mánudag 2. a
príl kl. 11-18 -
þriðjudag 3. ap
ríl kl. 11-18
Staðsetning: B
rautarholti 24
KÖRFUBOLTI Úrslitakeppni Ice-
land Express-deildar karla hefst
í kvöld með tveimur leikjum þar
sem tvö efstu lið deildarkeppn-
innar, Grindavík og KR, fá Njarð-
vík og Tindastól í heimsókn. Það
búast allir við því að Grindavík og
KR komist áfram án mikilla vand-
ræða og fari langt í úrslitakeppn-
inni í ár. Pressan er ekki auðveld
viðureignar og undanfarin tvö ár
hafa hvorki deildarmeistararnir
né Íslandsmeistararnir komist
alla leið í úrslitaeinvígið.
Grindvíkingar hafa verið í
nokkrum sérflokki í deildinni í
vetur, tryggðu sér deildarmeist-
aratitilinn þegar fjórir leikir voru
eftir og enduðu með átta stigum
meira en næsta lið. Grindavík
mætir nágrönnum sínum í Njarð-
vík í átta liða úrslitunum.
Grindvíkingar unnu báða leik-
ina við Njarðvík, þar af þann
seinni með 22 stiga mun í Ljóna-
gryfjunni fyrir aðeins tíu dögum.
Sá sigur kom eftir smá hikst en
liðið tapaði tveimur leikjum í röð
eftir að deildarmeistaratitillinn
var í höfn.
Það hefur verið beðið lengi
eftir Íslandsmeistaratitlinum í
Grindavík en liðið hefur lent fjór-
um sinnum í öðru sæti síðan félag
vann sinn fyrsta og eina Íslands-
meistaratitil árið 1996.
Þetta er í fjórða sinn sem
Grindvíkingar mæta í úrslita-
keppnina sem deildarmeistarar
og heimavallarrétt út alla keppn-
ina. Það hefur ekki skilað Íslands-
meistaratitli í hin þrjú skiptin og
liðið féll meira segja út í átta liða
úrslitum sem deildarmeistari árið
1998.
Deildarmeistaratitillinn er
líka langt frá því að vera ávísun
á stóra titilinn því aðeins þrír af
síðustu tíu deildarmeisturum hafa
orðið Íslandsmeistarar.
KR-ingar fá Tindastól í átta liða
úrslitunum. KR-ingar eru núver-
andi Íslandsmeistarar en þurfa að
brjóta blað í sögu félagsins ætli
þeir að verja titilinn. KR hefur
aldrei unnið titilinn tvö ár í röð
eftir að úrslitakeppnin var sett á
laggirnar og vann síðast tvö ár í
röð árið 1979.
Reyndar hefur ekki bara
KR-ingum gengið illa að verja
Íslandsmeistaratitilinn í karla-
körfunni því það hefur ekki gerst
síðan Keflvíkingar unnu þrjú ár í
röð frá 2003 til 2005.
KR-ingar lentu í miklum vand-
ræðum í átta liða úrslitunum á
árunum 2006 til 2008 og féllu
þeir óvænt úr leik á móti ÍR vorið
2008. Síðan þá hafa KR-ingar
unnið alla sex leiki sína í átta liða
úrslitunum.
Það verður ekki auðvelt að
sækja sigur á Króknum enda
hafa Stólarnir unnið fimm síðustu
heimaleiki sína í úrslitakeppni og
töpuðu síðast í Síkinu í úrslita-
keppni fyrir tíu árum.
Eitt af sárustu töpum KR-liðs-
ins í vetur kom einmitt á móti
Tindastól á Króknum í undanúr-
slitaleik bikarsins í febrúarbyrj-
un. KR-ingar hafa þegar unnið
Stólanna einu sinni örugglega
eftir það en sá leikur fór fram í
DHL-höllinni.
Nú bíða margir spenntir eftir
því hvernig titilpressan fer í
Grindvíkinga og KR-inga að þessu
sinni. Liðin hafa allt til alls til að
komast langt í ár og sumir sjá í
hillingum úrslitaeinvígi eins og
það hjá liðunum fyrir þremur
árum þegar KR-ingar unnu á síð-
ustu sekúndu í oddaleik.
Átta liða úrslitin reyna oft
mikið á einbeitingu „betri“ lið-
anna enda þarf bara að vinna
tvo leiki og með því að stela sigri
í fyrsta leiknum er pressan á
hærra skrifaða liðið orðin gífur-
leg. Hvort það verða óvænt úrslit
í kvöld verður hins vegar að koma
í ljós.
ooj@frettabladid.is
Pressa á Grindavík og KR
Grindavík og KR hefja leik í úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í kvöld.
Bæði lið keppa við söguna, KR hefur ekki varið Íslandsmeistaratitil í 33 ár og
Grindavík hefur aldrei orðið deildarmeistari og Íslandsmeistari á sama ári.
ÍSLANDSMEISTARAR 2011 KR-ingar fagna hér titlinum sem þeir unnu síðast vor.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
N1 deild kvenna í handb.
Valur - Fram 19-17 (8-8)
Mörk Vals (Skot): Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
6/2 (8/2), Karólína Bærhenz Lárudóttir 3 (5),
Kristín Guðmundsdóttir 3 (10/1), Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir 2 (3), Dagný Skúladóttir 2 (3),
Guðný Jenný Ásmundsdóttir 1 (1), Ragnhildur
Rósa Guðmundsdóttir 1 (1), Þorgerður Anna
Atladóttir 1 (7),
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 16
(32/1, 50%), Sunneva Einarsdóttir (1/1, 0%),
Mörk Fram (skot): Elísabet Gunnarsdóttir
5/2 (5/2), Stella Sigurðardóttir 5 (16), Sunna
Jónsdóttir 3 (11), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2 (7),
Ásta Birna Gunnarsdóttir 1 (1), Guðrún Þóra
Hálfdánsdóttir 1 (5), Anett Köbli (2),
Varin: Guðrún Ósk Maríasdóttir 12 (31/2, 39%),
Grótta - KA/Þór 23-23 (12-9)
Markahæstar: Sunna María Einarsd. 9, Tinna
Laxdal 4, Unnur Ómarsd.4, Elín Helga Jónsd. 4 -
Katrín Vilhjálmsdóttir 7, Martha Hermannsd.6.
ÍBV - Stjarnan 30-24 (14-9)
Markahæstar: Ester Óskarsdóttir 12, Ivana
Mladenovic 6 - Rut Steinsen 5, Jóna Margrét
Ragnarsdóttir 5, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 5.
HK - Haukar 34-31 (18-17)
Markahæstar: Elín Anna Baldursdóttir 11,
Heiðrún Björk Helgadóttir 7, Jóna Sigríður
Halldórsdóttir 5 - Marija Gedroit 12, Ásta Björk
Agnarsdóttir 7, Karen Helga Sigurjónsdóttir 5.
Stig og röð liða: Fram 28, Valur 28, ÍBV 20,
Stjarnan 16, Hk 16, Grótta 10, KA/Þór 9, Haukar
6, FH 3.
Iceland Exp. kvenna í körfu
Keflavík-Haukar 52-75 (23-45)
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 8, Pálína
Gunnlaugsdóttir 8, Helga Hallgrímsdóttir 7, Eboni
Mangum 6, Jaleesa Butler 6 (15 frák.), Sara Rún
Hinriksdóttir 4, Hrund Jóhannsdóttir 4, Sandra
Þrastardóttir 3, Aníta Eva Viðarsdóttir 2, Telma
Lind Ásgeirsdóttir 2, Soffía Rún Skúladóttir 2.
Stig Hauka: Jence Ann Rhoads 31 (11 frák./5
stoðs./5 stolnir), Tierny Jenkins 16 (15 frák.),
Gunnhildur Gunnarsdóttir 12, Margrét Rósa
Hálfdanardóttir 9, María Lind Sigurðardóttir 4,
Auður Íris Ólafsdóttir 2, Sara Pálmadóttir 1.
Haukakonur unnu 3-0 og eru komnar í úrslit.
1.deild kvenna í körfu
Grindavík-KFÍ 50-47 (28-25)
Stigahæstar: Ingibjörg Sigurðardóttir 13 (12
frák.), Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 11, Berglind
Anna Magnúsdóttir 10 (11 frák.) - Sólveig
Gunnlaugsdóttir 17, Svandís Anna Sigurðardóttir
13 (16 frák.). Grindavík vann 2-1 og tekur sæti
Hamars í Iceland Express dweild kvenna.
Meistaradeildin í fótbolta
8 liða úrslit fyrri leikir
AC Milan - Barcelona 0-0
Marseille - Bayern München 0-2
0-1 Mario Gomez (44.), 0-2 Arjen Robben (69.)
ÚRSLIT Í GÆR
HANDBOLTI Valur vann uppgjör
toppliðanna í N1-deild kvenna
í gær er liðið hafði betur gegn
Fram, 19-17, á heimavelli. Fram
var í góðri stöðu fyrir leikinn og
hefði dugað jafntefli til að tryggja
sér deildarmeistaratitilinn en
Fram vann fyrri leik liðanna á
tímabilinu.
Valur og Fram eru nú jöfn
að stigum fyrir lokaumferðina
á tímabilinu en Fram situr
hjá í henni. Valskonum dugir
því jafntefli gegn KA/Þór í
lokaumferðinni til að tryggja sér
titilinn.
Leikurinn í gær var afar
kaflaskiptur en Valur komst í 6-2
forystu eftir stundarfjórðung.
Fram jafnaði metin áður en
flautað var til hálfleiks og jafnt
var á nánast öllum tölum fyrstu
20 mínútur seinni hálfleiksins.
Þá steig Hrafnhildur Skúladóttir
upp, skoraði fjögur af síðustu
sex mörkum Vals og átti eina
stoðsendingu þar að auki.
„Við ætluðum okkur alltaf að
taka þennan titil og það var afar
ljúft að vinna þennan leik í kvöld,“
sagði Hrafnhildur eftir leikinn.
„Við töpuðum bara einum leik í
vetur og við erum ekki hættar nú.“
Valskonur héldu þar með
sigurgöngu sinni áfram í
Vodafonehöllinni en liðið hefur
unnið 24 leiki í röð í húsinu í öllum
keppnum þar af sjö þeirra á móti
Fram. Valskonur töpuðu síðast á
Hlíðarenda í apríl 2010. - esá
Valur vann Fram 19-17 í toppslag N1-deildar kvenna:
Níu fingur á bikarnum
24 HEIMASIGRAR Í RÖÐ Valskonur eru óstöðvandi í Vodafonehöllinni. Hér fer
Þorgerður Anna Atladóttir framhjá Ástu Birnu Gunnarsdóttur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Valsmanna
og aðstoðarþjálfari Guðmundar
Guðmundssonar hjá íslenska
landsliðinu, verður næsti þjálfari
danska liðsins Viborg. Þetta kom
fram á heimasíðu félagsins í gær.
Óskar Bjarni hefur mikla
reynslu sem þjálfari í efstu
deild bæði með Val á Íslandi og
Haslum í Noregi og undir hans
stjórn urðu Valsmenn tvisvar
Íslandsmeistarar og þrisvar
bikarmeistarar.
„Það var mjög mikilvægt að
finna þjálfara sem hefur rétta
sýn á handboltann og hæfileika
til að ná sem mestu út úr okkar
leikmönnum. Við erum að ráða
hann í langtímaverkefni,“ sagði
Susanne Munk Wilbek, eiginkona
danska landsliðsþjálfarans Ulrik
Wilbek, sem er yfirmaður hjá
Viborg. Hún lýsti einnig yfir
ánægju sinni að fá Íslending til
starfa.
„Viborg HK er mjög spennandi
klúbbur og ég reikna með að
danska deildin sem ein af fjórum
bestu deildunum í Evrópu.
Þetta er stórt og mikilvægt
skref á mínum þjálfaraferli,“
sagði Óskar Bjarni Óskarsson
í viðtali á heimasíðu Viborg.
Viborg hafnaði í 7. sæt í dönsku
deildarkeppninni og vann 25-24
sigur á Kif Kolding í gær í fyrsta
leik sínum í úrslitakeppninni.
Óskar Bjarni tókst ekki að
koma Val í úrslitakeppnina í ár
og liðið spilar því síðasta leikinn
undir hans stjórn á morgun. -óój
Óskar Bjarni Óskarsson:
Tekur við liði
Viborg í sumar
ÓSKAR BJARNI Þjálfari í Danmörku
næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN