Fréttablaðið - 29.03.2012, Qupperneq 66
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR46
KRÓNUR er verðið á stönginni í þrjá daga á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal 18.
til 20. júlí en þeir dagar eru nú lausir í vefsölu Stangveiðifélags Reykjavíkur. Einn
dagur í ánni kostar 84.800 kr.
254.400
golfogveidi@frettabladid.is
ZTE Blade Samsung Galaxy Y HTC Explorer
1.790 kr. 2.090 kr. 2.690 kr.
Ódýr en flottur Android sími Nettur snjallsími á frábæru verði Flottur Android sími
Inneignin gildir fyrir eitt símanúmer
siminn.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
1
2
8
5
500 kr. inneign á mánuði
í 6 mánuði fylgir
500 kr. inneign á mánuði
í 6 mánuði fylgir
500 kr. inneign á mánuði
í 6 mánuði fylgir
á mánuði í 12 mánuði* á mánuði í 12 mánuði* á mánuði í 12 mánuði*
Staðgreitt: 19.990 kr. Staðgreitt: 22.990 kr. Staðgreitt: 29.900 kr.
... og auðvitað sími svo að fermingarbarnið geti hringt í þig til að segja „takk“!
Fermingargjöfin er stereógræja, GPS-tæki,
4GB
minniskort
fylgir
* Greiðslugjald 325 kr. bætist við mán. gjald
Langri bið stangarveiði-
manna eftir nýrri vertíð fer
senn að ljúka því á sunnu-
daginn hefst veiði í ám og
vötnum víða um land. Á
meðal þeirra vatna sem
opna 1. apríl er Meðalfells-
vatn í Kjós. Bubbi Morthens
spjallar við Trausta Haf-
liðason um veiðina í
vatningu og ljóstrar upp
nokkrum leyndarmálum.
Bubbi Morthens þekkir Meðal-
fellsvatn betur en flestir enda
alinn upp á bökkum þess og
sem drengur veiddi hann með
föður sínum og bræðrum silung
í matinn. Fyrir nokkrum árum
flutti hann aftur upp í Kjós og
veiðir hann nú reglulega í vatninu
enda urriðinn svamlandi nokkrum
metrum frá húsgarðinum.
„Ég er búinn að veiða þarna
frá því ég gat farið að
ganga. Frá bát þekki ég
vatnið eins og lófann á
mér. Sem fluguveiði-
maður þá þekki ég
það líka vel en ég veiði
nánast bara þarna
á vorin, þegar fyrsta flugan er
að koma. Það er fyrst og fremst
urriði í vatninu, en það er líka
sjóbirtingur þó það sé ekki mikið
af honum. Þá er alltaf smá
laxavon enda gengur
hann í vatnið úr Bugðu.
Algeng stærð er frá
pundi og upp í tvö til
þrjú, þó er auðvitað
hægt að setja í stærri
fiska þarna en það er
ekki algengt.”
Stóru fiskarnir
“Stóru fiskarnir gefa færi
á sér fram í lok apríl en
eftir það fara þeir út í
dýpið. Þá verða menn að fara út
á bát ef þeir ætla að ná þeim, nota
sökku og þekkja staðhætti sér-
staklega vel. Ég vil samt benda
mönnum á að fara varlega. Menn
hafa drukknað í vatninu. Í fyrra
urðu ítrekað slys við vatnið. Bátar
sukku og menn stóðu á grynning-
unum með kornabörn í fanginu.
Fólk var þá að fara út í slæmu
veðri og einhverjir voru með of
stóran mótor. Það er því alveg
nauðsynlegt að vera í björgunar-
vesti ætli maður út á vatn. “
Þá ljóma allir í himnasælu
Oft er einn mesti höfuðverkur
veiðimanna að hitta á rétta flugu.
„Svona almennt séð þá myndi ég
hvetja menn til að nota litla kúlu-
hausa og litlar púpur. Svo má ekki
gleyma litlu straumflugunum.
Fram í júní geta menn verið að
veiða gríðarlega vel á flugur eins
og Grey ghost, Rektorinn og Black
ghost. Þá er ég að tala um flugur
undir tommu að stærð – öngul-
stærð tíu til fjórtán.“
Maðkurinn er öflugasta beitan,
segir Bubbi.
„Ég hvet fólk eindregið til að
nota maðk. Ég hef stundum farið
með krökkunum mínum út á bát í
klukkutíma og tekið tuttugu fiska.
Þá sé ég um að beita og róa og við
trollum – drögum beituna á eftir
Nú gefa stóru fiskarnir færi á sér
VEITT VIÐ MEÐALFELLSVATN Bubbi veit fátt skemmtilegra en að fara með börnunum að veiða. Þá er maðkur dreginn á eftir bátn-
um og fiskurinn er á í nánast hverju kasti. Mest hefur hann komið með 60 silunga á land eftir sjö tíma veiði. mynd/veiðikortið
Sveitarstjórn Skaftárhrepps
vill að ríkið veiti fjárstyrk svo
að rannsóknir sem Veiðimála-
stofnun stóð fyrir í fyrra á
áhrifum öskufalls frá Gríms-
vötnum á ferskvatnsfiska geti
haldið áfram.
„Öskufall frá Grímsvatna-
gosi á síðasta ári hafði mikil
áhrif á vatnsföll í Skaftárhreppi.
Árnar lituðust, framburður óx
og breytingar hafa orðið á far-
vegum. Óttast er að þessar
breytingar kunni að hafa nei-
kvæð áhrif á nytjastofna í ánum,
en tekjur af veiðileyfasölu skipta
landeigendur í sveitarfélaginu
miklu máli,“ segir í ályktun
sveitarstjórnarinnar. - gar
Öskurannsókn haldi áfram:
Óttast áhrif á
fiskstofnana
TUNGUFLJÓT Veiði í Tungufljóti hefur
dalað síðustu ár.