Fréttablaðið - 29.03.2012, Page 67

Fréttablaðið - 29.03.2012, Page 67
FIMMTUDAGUR 29. mars 2012 Fyrir börnin er þetta alveg geggjað. Það fá allir fisk og þá ljóma allir í himnasælu. BUBBI MORTHENS bátnum. Þá er hann á í nánast hverju einasta kasti. Ég hef farið út klukkan átta að morgni og komið inn klukkan þrjú með sex- tíu silunga. Þetta er rosalega gaman. Fyrir börnin er þetta alveg geggjað. Það fá allir fisk og þá ljóma allir í himnasælu. Það er svo mikil stemmning og fiskarnir allir svo stórir í augum barnanna að það er yndislegt. Ég veit fátt skemmtilegra en að vera með börnin úti á vatni.“ Að lesa vatnið og veðrið Bubbi segir að allir góðir veiði- menn taki mið af aðstæðum. Oft er talað um að lesa vatnið, lífríkið og veðrið. „Ef það hefur til dæmis verið heitt í marga daga þá fer flugan að vakna og þá verður maður að taka mið af því. Oft er það líka þannig að þegar það fer að birta til með deginum verður veiðin strembnari. Í flennibirtu leitar fiskurinn í skjól. Þá er hann var um sig - það eru engin ný vísindi. Mín reynsla er sú að besta takan sé í stillunni snemma á morgnana. En það er ekki alltaf logn og þá verða menn að lesa í vindinn. Í austanátt er gott að vera við Flekkudalsána – úti á tanganum. Í vestanáttinni er líklega best að vera í víkinni við bátaskýlin og undir hlíðinni þar sunnan megin. Í norðanáttinni er best að veiða undir Meðalfelli. Mestu máli skiptir samt að veiðimenn séu ekki að berja sama blettinn tím- unum saman heldur séu duglegir að færa sig á milli staða. Þetta er í það minnsta mín reynsla.“ Línan dregin löturhægt „Ég hef aldrei veitt á sökklínu í þessu vatni og aldrei notað sökk- enda. Ég nota flotlínu og yfirleitt tvist, (stöng fyrir línu númer tvö) ætli hann sé ekki svona sjö fet og ég er með stangarlangan taum. Fyrst á vorin myndi ég draga línuna inn alveg löturhægt og það er ágætt að hafa það á bak við eyrað að óþarfi er að vaða mikið, ætli ég vaði ekki í mesta lagi upp að lærum.“ Sú saga gengur á meðal veiði- manna að besti staðurinn til veiða sé í vesturhluta vatnsins, við báta- skýlin en er Bubbi sammála því? „Nei, það er bara af því að menn hafa séð mig mikið þar,“ segir Bubbi og skellir upp úr. „Ég fer oft við bátaskýlin í maí, það er fínt, en það eru aðrir staðir betri núna. Til dæmis undir hlíðinni Grjóteyrarmegin. Þangað er hægt að ganga frá bílastæðunum við bátaskýlin. Annar góður staður er undir Meðal fellinu. Það er kannski ekki auðvelt að finna staðinn en ef menn sjá tvo steina úti í vatni á þessu slóðum þá eru þeir á réttum stað en þarna er oft mjög góð veiði og laxavon.“ Íslendingarnir rífa kjaft Meðalfellsvatn rennur út í Bugðu og þaðan í Laxá í Kjós, eina rómuðustu laxveiðiá landsins. Við ósinn er 50 metra helgunarsvæði og mega menn ekki undir neinum kringumstæðum veiða þar. „Ég hef því miður oft séð veiði- menn þarna í ósnum og jafn- vel í Bugðu sjálfri. Þetta eru bæði Íslendingar og útlending- ar. Útlendingarnir bera fyrir sig þekkingaskort en Íslendingarnir rífa kjaft. Þetta er svolítið merki- legt því þetta er alls ekki besti staðurinn í vatninu. Ég myndi miklu frekar veiða við Sandá. Þar er dýpst og þar getur stóri fiskurinn legið.“ Menn verða að trúa Bubbi segir að veiðin snúist um að hafa trú á því sem maður er að gera. „Einu sinni bankaði maður upp á hjá mér og spurði hvar hann ætti að veiða. Hann hafði aldrei veitt í vatninu. Ég sagði honum að það væri laxavon við Sandá. Hann ætti bara að drífa sig þangað. Tveimur tímum seinna kom hann með tvo laxa. Báðir fimm pund. Svona getur þetta verið. Þessi maður hafði greinilega mikla trú á því að hann fengi lax í Meðalfellsvatni.“ trausti@frettabladid.is Samsung Galaxy ACE Samsung Galaxy SII iPhone 4 3.590 kr. 5.990 kr. 5.990 kr. Flottur sími úr Galaxy línunni Flaggskipið úr Galaxy línu Samsung Frábær sími frá Apple 500 kr. inneign á mánuði í 6 mánuði fylgir 1000 kr. inneign á mánuði í 6 mánuði fylgir 1000 kr. inneign á mánuði í 6 mánuði fylgir á mánuði í 12 mánuði* á mánuði í 18 mánuði* á mánuði í 18 mánuði* Staðgreitt: 39.900 kr. Staðgreitt: 99.900 kr. Staðgreitt: 99.900 kr. myndbands tökuvél og leikjatölva ... BESTA VEIÐIN Oft er besta veiðin í þoku eða dumbungi, þegar ekki sést til sólar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.