Fréttablaðið - 29.03.2012, Síða 70
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR50
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég hef mikið hlustað á útvarpsþátt-
inn Virka morgna á Rás 2 og svo
X-ið 977. Andri Freyr er ótrúlega
fyndinn útvarpsmaður og svo er
tónlistin góð á báðum stöðvum.“
Kristín Ásta Matthíasdóttir, sem opnar
verslunina Dótturfélagið ásamt vinkonu
sinni innan skamms.
„Við vorum einfaldlega orðin langþreytt á því
að þurfa alltaf að setjast upp í bíl til ná í einn
mjólkurpott eða nýtt brauð,“ segir Sigurður
Jens Sæmundsson sem ásamt eiginkonu
sinni, Hildi Örnu Hjartardóttur, hefur opnað
verslunina Braggann í Skerjafirði.
Verslunin er sérstök að því leytinu til að
hún er gamall pylsuvagn sem hjónin keyptu
á netinu. „Konan mín var andvaka á nýárs-
nótt og sá þá þennan gamla pylsuvagn til sölu á
netinu. Við ákváðum því að kýla á þetta og opna
lítið kaupfélag í vagninum,“ segir Sigurður en
verslunin er staðsett á lóð Reykjavíkurborgar
á gatnamótum Bauganess og Einarsness. „Við
fáum að vera hér í þrjá mánuði til að byrja með
en okkur skilst að þetta sé eini matsöluvagninn
sem er inni í íbúðahverfi en hingað til hafa þeir
haldið sig í miðbænum.“ Sigurður og Hildur
eru bæði í fullri vinnu en stefna á að ráða til sín
starfsmann og halda búðinni opinni á hverjum
degi frá 11-20.
Íbúar hverfisins hafa tekið versluninni vel
en Bragginn opnaði síðasta laugardag. Sker-
firðingar hafa verið án matvöruverslunar síðan
Skerjaver lokaði árið 2008 en næsta búð fyrir
íbúa hverfisins er hjá Stúdentagörðunum. „Við
dreifðum auglýsingu í hvert hús og höfum
fengið 100% jákvæð viðbrögð. Það sakar ekki
að láta reyna á þetta og ég vona að við séum
komin til að vera,“ segir Sigurður en vöruúrval
Braggans er mjög fjölbreytt. „Við erum með
grill og djúpsteikingarpott og í vagninum eru
fjórir kælar. Við erum því með allt frá ham-
borgaratilboðum í smjör, ost og eyrnapinna.“ - áp
Gamall pylsuvagn verður hverfasjoppa
BRAGGABÚÐ Hjónin Hildur Arna Hjartardóttir og
Sigurður Jens Sæmundsson breyttu pylsuvagni í
kaupfélag í Skerjafirðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/
„Þetta er búið að vera æðislegt.
Það eru allir búnir að vera ofsalega
yndislegir,“ segir Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir.
Tveir og hálfur mánuður er
liðinn síðan söngkonan flutti til
Noregs með kærasta sínum, tón-
listarmanninum Davíð Guðbrands-
syni, og hundinum Bjarti. Fyrst um
sinn bjuggu þau í höfuð borginni
Ósló en ákváðu að flytja til Kongsv-
inger eftir að bæjaryfirvöld höfðu
samband við þau út af nýju hálfs
árs verkefni sem þau voru að
skipuleggja. Það snýst um að laða
til bæjarins hæfileikafólk, fá það
til að vekja á honum athygli og um
leið bæta menningarlífið í bænum,
gegn því að það fái ókeypis gist-
ingu. Aðspurð segist Jóhanna Guð-
rún vonast til að þau geti hjálpað til
við að koma Kongsvinger á kortið.
„Við ætlum að reyna það og líka að
reyna að gera eitthvað skemmtilegt
hérna varðandi tónlistarlífið.“
Hún segir að flutningur þeirra til
bæjarins, þar sem innan við tutt-
ugu þúsund manns búa, hafi komið
óvænt upp, enda ætluðu þau alltaf
að búa í Ósló. „Ég var ekki alveg
að kveikja fyrst því ég vissi ekki
hvaða bær þetta var en um leið og
við komum hingað fannst mér ég
vera komin heim,“ segir Jóhanna
Guðrún en Kongsvinger er í um
einnar og hálfrar klukkustundar
akstursfjarlægð frá Ósló.
Þau Jóhanna og Davíð búa í ein-
býlishúsi rétt fyrir utan bæinn og
líkar þeim lífið vel. Þau eru þau
fyrstu sem taka þátt í þessu nýja
verkefni en skipuleggjendurnir
vonast til að þau og þeir sem taka
þátt í því í framtíðinni muni búa
þar áfram að hálfs árs reynslutím-
anum loknum. Jóhanna segir mikl-
ar líkur á því að þau geri það, enda
henti staðsetningin vel og fólkið sé
mjög vingjarnlegt. „Það eru allir
voðalega opnir og vinalegir og við
erum strax búin að eignast vini.“
Skötuhjúin eru þegar byrjuð að
semja lög saman og stefna á tón-
leikaferð um Noreg í haust sem
myndi hefjast í Kongsvinger. Þau
hafa þegar haldið vel heppnaða
tónleika í bænum og komið fram
í norskum sjónvarpsþætti. „Ég
er hissa á því hvað allt er búið að
ganga smurt síðan við komum
hingað. Þetta er búið að vera rosa-
lega skemmtilegt.“ freyr@frettabladid.is
JÓHANNA GUÐRÚN: ÞETTA ER BÚIÐ AÐ VERA ÆÐISLEGT
AÐSTOÐA VIÐ AÐ KOMA
KONGSVINGER Á KORTIÐ
GÓÐAR MÓTTÖKUR Jóhanna Guðrún, Davíð Guðbrandsson og hundurinn Bjartur þegar Dag Arnesen tók á móti þeim í Kongsvinger.
MYND/HELENE NESS
„Við erum á leiðinni í fimm vikna túr um Dan-
mörku þar sem við spilum meðal annars á SPOT-
tónleikahátíðinni í Árósum,“ segir Brynjar
Bjarnfoss, einn meðlimur dönsk-íslensku hljóm-
sveitarinnar Kúra.
Kúra spilar raftónlist með rokkuðu ívafi í bland
við döbb og gefur hljómsveitin út fyrstu plötu
sína, Halfway to the moon, 30. apríl. Fanney Ósk
Þórisdóttir og Daninn Rasmus Liebst eru hinir
tveir meðlimir tríósins. „Ég er búinn að búa í
Danmörku síðan ég var níu ára. Árið 2009 var
ég í sumarfríi á Íslandi og fór þá í heimsókn til
Fanneyjar, en hún er frænka mín. Hún byrjaði að
syngja fyrir mig og ég skipaði henni að taka næsta
flug til Danmerkur til að við gætum farið að búa
til tónlist saman. Hún kom út stuttu seinna og við
tókum þá upp lagið Gógó, sem er það fyrsta sem
við gáfum út. Rasmus gekk svo til liðs við okkur í
fyrra,“ segir Brynjar.
Hljómsveitameðlimir halda nú allir til í Kaup-
mannahöfn þar sem þeir einbeita sér alfarið að
tónlistinni. Sveitin er á leiðinni til Póllands í næstu
viku þar sem hún ætlar að spila í þremur bæjum
og tónleikaferðin um Danmörku hefst svo 27. apríl.
„Þetta verður rosalega skemmtilegt. Við erum
þegar komin með einhver 17 eða 18 gigg,“ segir
Brynjar. - trs
Kúra túrar um Danmörku
KÚRA Dansk-íslenska hljómsveitin Kúra er á leið í tónleika-
ferð um Danmörku í lok apríl. Henni er spáð góðu gengi á
komandi ári.
GÓÐ BYRJUN AÐ FÁ JÓHÖNNU GUÐRÚNU
Dag Arnesen, sem sannfærði þau
um að flytja til Kongsvinger, er mjög
ánægður með þátttöku Jóhönnu og
Davíðs í verkefninu. „Við viljum laða
fleira fólk að bænum. Hérna er falleg
náttúra, gott loftslag og góð aðstaða
fyrir íþróttamenn og ungt fólk. En
við erum í samkeppni við marga
aðra bæi og þurfum því að prófa
nýja hluti til að koma Kongsvinger á
kortið. Í þetta fyrsta sinn fengum við
fræga manneskju, hana Jóhönnu, til
að koma hingað og það er mjög góð
byrjun fyrir okkur.“
Í þetta skipti ætlar hinn þjóðkunni og vinsæli söngvari Helgi Björns
að leiða farþega um áður óþekktar slóðir hinnar frábæru Berlínar
sem margir kalla „New York Evrópu“ – enda sefur hún aldrei. Helgi
gjörþekkir Berlín og veit hvar áhugaverða klúbba, dansstaði, leikhús,
óperur og fjöllistasýningar er að finna.
Allar nánari upplýsingar á www.expressferdir.is
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting í þrjár nætur með
morgunverði á 4* hóteli og fararstjórn Helga Björnssonar.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Borgarferðir
Með Helga Björns
í menningarborginni Berlín
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði
94.900 kr.
expressferdir.is
5 900 100
27.–30. apríl