Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 4
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR4
GENGIÐ 03.04.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
230,4132
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,07 126,67
201,85 202,83
168,14 169,08
22,596 22,728
22,218 22,348
19,136 19,248
1,5369 1,5459
195,26 196,42
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Í frétt blaðsins í gær um árás Husky-
hunda á kött í Grafarvogi birtist mynd
af hundi þeirrar tegundar. Hundurinn
á myndinni tengdist hins vegar ekki
árásinni og eru eigendur hans beðnir
velvirðingar á myndbirtingunni.
HALDIÐ TIL HAGA
EVRÓPUMÁL „Ég er bjartsýnn á að
viðræður um fiskveiðimál geti
skilað hagstæðri niðurstöðu fyrir
bæði Ísland og Evrópusamband-
ið,“ segir Evrópuþingmaðurinn
Christian Dan Preda í samtali
við Fréttablaðið.
Dan Preda, sem er í forsvari
hjá Evrópuþinginu í málefn-
um sem varða aðildarumsókn
Íslands, er staddur hér á landi
vegna fundar sameiginlegrar
þingmannanefndar Íslands og
ESB.
Hann segist byggja bjartsýni
sína á því að allt sé til staðar til
þess að uppbyggilegar viðræður
geti átt sér stað.
„ESB hefur á að skipa góðu
samningaliði og íslensku samn-
ingamennirnir eru sömuleiðis
mjög færir á sínu sviði. Svo eru
báðir aðilar með mikla reynslu
og þekkingu á sviði fiskveiða og
þannig erum við með kjöraðstæð-
ur til að ná samkomulagi milli aðil-
anna.“
Dan Preda, segir að gagnkvæm-
ir hagsmunir Íslands og ESB ættu
að tryggja opnar viðræður þó að
í almennri umræðu beggja vegna
borðsins sé jafnan gert ráð fyrir
að komandi viðræður um fiskveið-
ar verði hvað erfiðasti hjallurinn í
aðildarviðræðunum.
„Þetta er auðvitað veigamikið
mál fyrir bæði Ísland og ESB og
ég skil hvers vegna umræðan er
eins og hún er. Hins vegar sé ég
ekki hvers vegna við ættum ekki
að geta náð góðu samkomulagi.“
Enn hafa samningaviðræður um
fiskveiðar ekki hafist, en Stefan
Füle, stækkunarstjóri ESB, sagði
í svari við spurningu Fréttablaðs-
ins fyrir helgi að hann vonaðist til
þess að allir kaflar yrðu opnaðir
fyrir árslok. - þj
Evrópuþingmaður um áframhald aðildarviðræðna Íslands og ESB:
Fiskveiðarnar þurfi ekki að verða hindrun
BJARTSÝNN Evrópuþingmaðurinn
Christian Dan Preda segist vongóður um
að Ísland og ESB nái samkomulagi um
fiskveiðmál. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
REYKJAVÍK Gífurlegt magn af sandi
og drullu tefur hreinsistarf á
götum og gangstéttum Reykja-
víkur. Þessa dagana er unnið að
hreinsun með kröftugum hreinsi-
tækjum og má gera ráð fyrir slík-
um framkvæmdum út mánuðinn
hið minnsta.
„Eiginlega er það tíðarfarið sem
búið er að vera í vetur sem veldur
þessu,“ segir Lárus Kristinn Jóns-
son, framkvæmdastjóri Hreinsi-
tækni sem annast hreinsun fyrir
borgina. „Ég myndi halda að í
vetur hafi verið sandað um það bil
þrisvar sinnum meira en á miðl-
ungsvetri. Ef ég man rétt er búið
að dreifa á stéttar höfuðborgarinn-
ar um 3.000 rúmmetrum af sandi.“
Verkið er svo að stórum hluta
unnið með litlum gangstéttarsóp-
um. „Sem dæmi má nefna að við
hreinsun stétta á Snorrabraut
vorum við búnir að fylla fimm
sópa, en hver tekur um rúmmetra
af efni, og áttum þá eftir einn
þriðja af leiðinni. Vanalega hafa
dugað einn eða tveir vagnar.“
Þar sem snjó hefur verið hrauk-
að upp, svo sem við Laugardals-
laug, segir Lárus ástandið svo
jafnvel enn verra. „Við erum allt
að því þrisvar sinnum lengur að
þessu bara út af efnismagni.“
Lárus segir þó ánægjulegt að fólk
komi gjarnan út og færi bíla sína
frá til að auðvelda þrifin. Það flýti
fyrir.
Ljóst er að mikill kostnaðarauki
er af meira uppsópi og akstri og
ekki fjarri lagi að þrefalt sand-
magn þrefaldi líka olíukostnað við
hreinsun. Kostnaðaraukann segir
Lárus hins vegar líklega lenda á
fyrirtækinu. „Þetta er náttúrlega
bara allt í útboði hjá okkur og í
föstum tölum.“
Samkvæmt áætlun átti vor-
hreinsunin að hefjast 15. mars og
kveður Lárus fljótlega hafa komið
hringingar frá borginni til að huga
að verkinu og tímaáætlunum. „En
fram til 19. mars var nú bara enn
þá verið að moka snjó,“ segir hann
og telur að miðað við aðstæður
hefði verið nær að gefa fyrirtæk-
inu rýmri tíma til að klára.
Samkvæmt upplýsingum frá
borginni er þessa dagana unnið að
hreinsun gatna í Háaleiti, Gerðum
og Fossvogi og að því stefnt að ljúka
fyrri yfirferð í þeim hverfum fyrir
páska. Eins séu páskafrí nýtt til að
hreinsa skólalóðir.
Þá kemur fram að til páska
verði einnig lögð áhersla á hreins-
un göngu- og hjólastíga enda megi
búast við að fólk stundi hjólreiðar
og útivist í páskafríinu. Áhersla
verður lögð á helstu hjólaleiðir,
svo sem um Fossvogsdal, Elliðaár-
dal upp í Víðidal og áfram upp að
Rauðavatni. „Einnig verða leiðirnar
meðfram Miklubraut og yfir Gerð-
Uppsóp er þrefalt á
götum borgarinnar
Vandséð er að tímaáætlanir haldi í vorhreinsun gatna í Reykjavík. Tíðarfar
í vetur varð til þess að mun meira hefur safnast af sandi og drullu á götum
borgarinnar. Jákvætt viðmót borgara sem færa bíla sína flýtir fyrir vinnunni.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
19°
8°
6°
15°
13°
7°
7°
22°
9°
18°
17°
31°
7°
14°
14°
5°Á MORGUN
Fremur hægur vindur um
allt land.
FÖSTUDAGUR
Fremur hægur vindur
um allt land.
57
7
8 117 8
5 6
3
6
6
6
6
5 7
3
6
6
8
2
8
5
7
7
7 6
15
6
4
4
5 15
5
MILDIR DAGAR
eru fram undan og
litlar breytingar á
veðri. Lítils háttar
úrkoma verður
vestanlands og
jafnvel á Norður-
landi en annars
víða þurrt og
nokkuð bjart.
Besta veðrið verður
líklega á Suðaust-
urlandi þar sem
saman fer mildasta
og bjartasta veðrið.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
BANDARÍKIN, AP Allt að 1,5 milljón-
um kreditkortanúmera var stolið
rafrænt af bandaríska kortafyrir-
tækinu Global Payments. Með
númerunum fylgdu öryggisnúmer
og útgáfudagsetningar sem þarf
til að nota kortin á netinu.
Kortanúmerunum var stolið
snemma í mars, en ekki var upp-
lýst um hann fyrr en Mastercard
og Visa tilkynntu kortanotendum
um atvikið á föstudag. Bæði Visa
og Mastercard lögðu áherslu á
að kostnaður vegna misnotkunar
falli ekki á eiganda kortanna. - bj
Stálu kreditkortaupplýsingum:
Um 1,5 milljón
korta stolið
UNNIÐ AÐ HREINSUN Í aprílmánuði og líkast til eitthvað fram í maí verða götusóp-
arar algeng sjón á götum Reykjavíkur. Svo mikið var sandað í vetur vegna hálku og
snjóa að það tefur hreinsistarfið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN, AP Árásarmaðurinn,
sem myrti sex nemendur og einn
skólaritara í skotárás á skóla
í Kaliforníu á mánudag, heitir
One L. Goh. Ástæða morðanna er
talin vera reiði Gohs vegna þess
að hann var rekinn úr skólanum,
auk þess sem kennari hafði gert
grín að enskukunnáttu hans. Goh
hugðist drepa þennan tiltekna
kennara, en tók að myrða fólk af
handahófi.
Skólinn var stofnaður til þess
að aðstoða innflytjendur frá Suð-
ur-Kóreu að fóta sig í bandarísku
samfélagi. - gb
Myrti sjö í skotárás í skóla:
Reiður vegna
brottrekstrar
HEILBRIGÐISMÁL Þrjátíu prósenta
meiri líkur eru á að yngstu
börnin í bekknum, einkum
drengir, séu greind með ADHD,
athyglisbrest og ofvirkni, heldur
en bekkjarfélagar þeirra sem
eru 11 mánuðum eldri.
Þetta eru niðurstöður nýrrar
kanadískrar rannsóknar sem
tók til 940.000 skólabarna á aldr-
inum sex til 12 ára, sem greint
er frá á vef danska blaðsins Poli-
tiken. Vísindamennirnir telja
að í vissum tilfellum séu yngstu
börnin greind með ADHD ein-
faldlega vegna þess að þau eru
ekki jafnþroskuð og þau eldri.
Þau fái þess vegna meðferð sem
þau þurfi ekki. - ibs
Kanadísk rannsókn:
Heilbrigð börn
ranglega sögð
með ADHD
Sorgarstund Sjö manns féllu í skotárás í
háskóla í Kaliforníu í fyrradag.
Þetta er náttúrlega
allt í útboði hjá okkur
og í föstum tölum.
LÁRUS KRISTINN JÓNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI HREINSITÆKNI