Fréttablaðið - 04.04.2012, Qupperneq 30
FÓLK|
NÝ SENDING AF
VORVÖRUM
Allt fyrir fermingarnar og
sumarfríið.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Margir leggja land undir fót
þessa miklu ferðahelgi sem
fram undan er. Hugsanlega
eru einhverjir kattaeigendur
í vandræðum með pössun. Í
Kattholti er rekið hótel fyrir
ketti þar sem hugsað er um þá
meðan eigendur bregða sér
af bæ. Á hótelinu fá kisurnar
mat og góða umönnun, eftir
því sem segir á vef Kattholts.
Algengt er að kisur týnist fari
þær með eigendum sínum í
sveitaferð, til dæmis sumar-
bústað. Betra er að hafa þær
á öruggum stað ef enginn er
heima til að annast þær.
Fyrir þá sem langar að eign-
ast kisu er hægt að heimsækja
Kattholt. Þar eru alltaf nokkrar
kisur sem bíða eftir góðu
heimili. Á heimasíðu Katt-
holts birtast einnig myndir af
kisum sem hafa fundist og bíða
eigenda sinna.
þriggja hlaupaferða á döfinni hjá fyrir-
tækinu í sumar. Hinar eru Original
Mountain Marathon á Reykjanesi um
miðjan maí og Parkrun undir maílok.
„Í því fyrra sem er nýjung hérlendis
fara tveggja manna lið 80 kílómetra á
tveimur dögum og þurfa þátttakendur
sjálfir að finna leiðina með áttavita.
Parkrun er fimm kílómetra tímamælt
hlaup sem fer hér fram í annað sinn, í
Árbænum og er haldið víða um heim
sama dag.“
Spurð hvort mikill áhugi sé á hlaupa-
ferðum til Íslands, segir Jórunn að
gosið í Eyjafjallajökli hafi orðið til þess
að vekja meiri athygli á Íslandi meðal
Breta. Þær Brynhildur hafi stofnað All
Iceland Ltd. um svipað leyti og því nýtt
tækifærið til kynna landið á þennan
nýja hátt og um leið skapa fyrirtækinu
sérstöðu á markaði. „Þeir urðu strax
mjög spenntir fyrir því að hlaupa úti í
hreinu lofti og fallegri náttúru. Svo er
gengið líka hagstætt fyrir þá.“
All Iceland Ltd. hefur frá stofnun
2010 staðið fyrir alls kyns sérferðum til
landsins, svo sem Norðurljósaferðum
og ferðum fyrir vinnustaða-, vina- og
gæsahópa sem Jórunn segir hafa gefist
vel. „Ljóst er að mörg sóknarfæri leyn-
ast í þessari tegund af ferðamennsku.
Nú er á döfinni hjá okkur að opna
systurfyrirtæki í Bandaríkjunum og
hver veit nema fleiri lönd fylgi.“
■ rve
ATHAFNAKONUR
Brynhildur Sverrisdóttir
og Jórunn Jónsdóttir
reka ferðaskrifstofuna
All Iceland Ltd. í London.
Fyrirtækið er það eina á
Englandi sem skipuleggur
ferðir til Íslands eingöngu.
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
SVIPAÐ SAHARA-
HLAUPI
Jórunn líkir Fire and
Ice Ultra Ísland við
Saharaeyðimerkur-
hlaupið sem er 112
kílómetrar og tekur
„aðeins“ fjóra daga
að ljúka.
NORDICPHOTOS/AFP
Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, og
Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Há-
skóla Íslands á Suðurnesjum, munu leiða ferð á slóðir kræklingsins
í Hvalfirði 21. apríl. Í ferðinni verður bæði fræðst um kræklinginn
og smakkað.
„Við förum í fjörurnar við Fossá og Brynjudal og segjum frá líf-
ríkinu á leirunum en þarna er meiri kræklingur en víðast hvar á
landinu,“ segir Gísli. „Við sýnum hvernig tína á krækling og hreinsa
hann og munum matreiða hann í lok ferðar svo fólk geti smakkað.
Það þarf ekkert tilstand, ekki einu sinni hnífapör. Kræklingur er
bestur soðinn í eigin vatni og svo notar maður skelina til að borða
innihaldið.“
Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands,
klukkan 10.30. þar sem sameinast verður í bíla. Gert er ráð fyrir að
ferðin taki um það bil þrjár klukkustundir að akstrinum í Hvalfjörð
meðtöldum. Þátttaka er ókeypis. Nánar á www.fi.is
KRÆKLINGAFERÐ Í
HVALFJÖRÐINN
KRÆKLINGUR
Í ferðinni verður
fræðst um kræk-
linginn og hann
smakkaður.
HÓTEL FYRIR
KISURSJÓNVARPFRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐÚTVARP
- oft á dag
ÞÚSUNDIR
MYNDBANDA
Skemmtilegir þættir á BBC Lifestyle
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður
auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir