Fréttablaðið - 04.04.2012, Síða 61
MIÐVIKUDAGUR 4. apríl 2012 45
arionbanki.is – 444 7000
Fermingargjöf
Arion banka
Þegar stórum áfanga er náð er mikilvægt að huga að framtíðinni.
Arion banki leggur til 5.000 kr. mótframlag ef 30.000 kr. eða meira
eru lagðar inn á Framtíðarreikning. Framtíðarreikningur gefur hæstu
vexti almennra verðtryggðra sparnaðarreikninga bankans og er því
áhugaverð leið fyrir ungt fólk sem vill byrja að undirbúa framtíðina.
Láttu gjöfina taka vaxtarkipp hjá okkur.
Tónlist ★★★★ ★
MDNA
Madonna
MDNA er tólfta plata Madonnu og
sú fyrsta síðan Hard Candy kom
út fyrir fjórum árum. Þetta er líka
fyrsta platan hennar síðan hún
skildi við Guy Ritchie. Það kemur
ekkert á óvart að MDNA sé dúndr-
andi danstónlistarplata. Allar plötur
Madonnu síðan Ray of Light kom út
árið 1998 hafa verið nánast hrein-
ræktaðar danstónlistarplötur, ef
Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins
frá er talin fyrrnefnd Hard Candy
sem var unnin með heitustu hip-hop
upptökustjórum þess tíma, Timba-
land og Neptunes. Hard Candy var
frekar misheppnuð, þó að hún ætti
sína spretti. MDNA er hins vegar
fín Madonnuplata.
Madonna hefur alltaf verið lunkin
í því að velja sér samstarfsfólk og
hún klikkar ekkert á því á MDNA.
Á meðal þeirra sem sjá um takt-
ana á plötunni eru Bretinn William
Orbit, sem gerði Ray of Light með
henni, ítölsku frændurnir Marco
„Benni“ Benassi og Allessandro
„Alle“ Benassi og Frakkinn Mart-
in Solveig. Madonna fær líka hjálp
frá tveimur af heitustu kvenpopp-
stjörnum dagsins í dag, Nicki Minaj
og M.I.A.
Eins og áður segir er þetta fín
Madonnuplata. Lögin eru mörg
ágæt og Madonna á líka fína spretti
í textunum. I Don‘t Give A er upp-
gjör við eiginmanninn fyrrver-
andi og skilnaðartextarnir eru
fleiri. Ýktastur er textinn við lagið
Gang Bang sem er hefndarfan-
tasía með tilheyrandi skothljóðum
(„I‘m Gonna Shoot Him in the Head
Again/Die Bitch!“)… Þó að Madonna
sé orðin 53 ára þá er hún greinilega
enn alveg til í að vera slæma stelp-
an. Í I‘m a Sinner syngur hún „I‘m
a Sinner/and I Like It That Way“ og
nafnið á plötunni, MDNA virkjar
nokkrar tengingar. Það er einhvers
konar stytting á Madonna (M DNA
kannski?), en líka mjög líkt MDMA,
sem er skammstöfun fyrir alsælu …
MDNA er ekkert byltingarkennd,
enda gerir maður ekki þær kröfur
til Madonnu. Hún er heldur ekki
fullkomin, en þetta er vel unnin og
skemmtileg plata sem virkar best
spiluð á fullu blasti í góðum græj-
um. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Poppdrottningin er ekki
tilbúin að gefa titilinn frá sér alveg strax.
Söngkonan Adele og kærasti
hennar, Simon Konecki, hafa
tekið mataræði sitt í gegn og
gerðust nýverið grænmetisætur.
Hin hæfileikaríka söngkona og
kærasti hennar ákváðu í samein-
ingu að taka upp heilsusamlegra
líferni og fara þau daglega út að
hlaupa með hundinn Louie.
„Adele og Simon eru óaðskilj-
anleg. Þau hafa tekið líferni sitt
í gegn og hafist handa við að
skipuleggja framtíð sína saman,“
hafði The Mail eftir innanbúðar-
manni.
Tekur líf-
ernið í gegn
ORÐIN GRÆNMETISÆTA Söngkonan
Adele hefur tekið upp heilbrigðara líf-
erni. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Salma Hayek býr í
París og kveðst fylgja franskri
tísku. Hún segist einnig hafa
gaman af því að hafa sig til fyrir
eiginmann sinn, milljarðamær-
inginn François-Henri Pinault.
„Þrátt fyrir að við hjónin
förum sjaldan út finnst mér
gaman að hafa mig til fyrir hann.
Sumir karlmenn taka ekki eftir
því í hverju þú ert, og það er í
lagi, en François gerir það,“ sagði
Hayek um eiginmanninn.
Fer eftir Par-
ísartískunni
KLÆÐIR SIG UPP Salma Hayek hefur
gaman af því að hafa sig til fyrir eigin-
mann sinn. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Kate Winslet hefur
verið dugleg að kynna Titanic 3D
í fjölmiðlum og hefur látið ýmis-
legt misjafnt flakka í tilefni þess.
Leikkonan hefur meðal annars
kallað mótleikara sinn feitan.
Winslet segir margt hafa
breyst frá því Titanic var fyrst
frumsýnd, þar á meðal ásýnd
Leonardos DiCaprio. „Við lítum
allt öðruvísi út í dag. Við erum
bæði eldri, Leo er 37 ára og ég
36. Við vorum ekki nema 22 og
21 árs gömul þegar við lékum í
myndinni. Hann er feitari núna
og ég er grennri,“ sagði Winslet
um vin sinn og mótleikara.
Segir Leo
vera feitan
BREYTT Kate Winslet segir margt hafa
breyst síðan hún lék í Titanic.
NORDICPHOTOS/GETTY