Fréttablaðið - 14.04.2012, Síða 4
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR4
Námskeiðið verður haldið í Kaldalóni og hefst það kl.20.00
Á námskeiðinu verður farið í gegnum helstu hættur sem að hjónabandi og
sambúð steðja í dag og bent á leiðir til að varast þær.
Markmið kvöldsins er:
• AÐ KVEIKJA FERSKAR HUGMYNDIR Í SAMBANDINU
• AÐ FINNA NÝJAR LEIÐIR TIL AÐ LEYSA ÚR VANDA
• AÐ GERA GOTT SAMBAND BETRA OG TRAUSTARA
• AÐ SKOÐA SAMSKIPTI OKKAR TIL AÐ STYRKJA ÞAU
• AÐ NJÓTA GÓÐRAR KVÖLDSTUNDAR MEÐ ÁSTINNI SINNI
Í lok námskeiðsins fá þátttakenndur sjö vikna heimaverkefni til að styrkja
sambandið enn frekar.
Leiðbeinandi er sr. Þórhallur Heimisson, en yfir 6000 pör hafa tekið þátt í
hjónanámskeiðum hans.
Upplýsingar og skráning fer fram í síma 8917562 og á
thorhallur33@gmail.com
JÁKVÆTT NÁMSKEIÐ UM HJÓNABAND
OG SAMBÚÐ Í HÖRPU 30. APRÍL.
GENGIÐ 13.04.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
229,1083
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,65 127,25
201,79 202,77
166,67 167,61
22,404 22,536
21,901 22,029
18,735 18,845
1,5625 1,5717
195,32 196,48
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
HERJÓLFUR Eimskip átti lægsta tilboðið
í rekstur ferjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMGÖNGUR Eimskip átti lægsta
tilboðið í rekstur Herjólfs en til-
boðin voru opnuð í gær. Þrjú
fyrirtæki skiluðu inn tilboðum
en boð Eimskipa var tæpar 681
milljón króna. Tilboð Samskipa
hljóðaði upp á 772 milljónir króna
en tilboð Sæferða upp á 903 millj-
ónir. Áætlaður verkkostnaður var
832 milljónir króna.
Þetta er í annað sinn sem
opnað er fyrir tilboðin en í mars
voru fyrri tilboð fyrirtækjanna
þriggja dæmd ógild.
Tilboð Eimskipa nú var 178
milljónum króna lægra en í
síðasta útboði. - kh
Útboð í Herjólf opnað:
Eimskip með
lægsta tilboðið
TRÚMÁL 352 gengu úr Þjóð-
kirkjunni fyrstu þrjá mánuði
þessa árs. Þar af skráðu 166 sig
í annað trúfélag en 186 skráðu
sig utan trúfélaga. Í samantekt
Þjóðskrár kemur fram að af þess-
um 352 einstaklingum eru 269
fæddir árið 1976 eða síðar.
Á sama tíma hafa aðeins 37
manns úr öðrum trúfélögum eða
utan trúfélaga skráð sig í Þjóð-
kirkjuna.
112 skráðu sig í einhverja af
þremur fríkirkjum landsins
á þessu tímabili, Frí kirkjuna
í Reykjavík, Óháða söfnuðinn
í Reykjavík eða Fríkirkjuna í
Hafnarfirði, en 23 skráðu sig úr
þeim.
Alls skráðu 207 sig utan trú-
félaga á fyrsta ársfjórðungi, en
39 sem áður höfðu staðið utan
trúfélaga skráðu sig í eitthvað
trúfélag.
Alls sögðu 8268 sig úr Þjóð-
kirkjunni frá 1. desember árið
2009 til loka síðasta árs.
Flestar úrsagnir úr Þjóð-
kirkjunni á einum mánuði voru í
ágúst 2010 þegar um tvö þúsund
manns skráðu sig úr henni.
- þj
Tölur Þjóðskrár sýna að hundruð hafa skráð sig úr Þjóðkirkju það sem af er ári:
Unga fólkið líklegra til úrskráningar
HALLGRÍMSKIRKJA 352 skráðu sig úr
Þjóðkirkjunni á fyrstu þremur mánuðum
ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Spyr um Samhjálparsamning
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG,
hefur ítrekað í borgarráði ósk sína um
að borgarlögmaður gefi álit sitt á því
hvort innkaupareglum borgarinnar
hafi verið fylgt þegar samið var við
Samhjálp um rekstur gistiskýlisins við
Þingholtsstræti.
REYKJAVÍKURBORG
Lifa ekki af í Grindavík
Bæjarráð Grindavíkur segir að verði
frumvarp um veiðigjöld að lögum lifi
sjávarútvegsfyrirtæki í bænum ekki
af þá auknu skattheimtu sem því
fylgi. Miðað við upplýsingar frá fyrir-
tækjunum þar megi gera ráð fyrir að
veiðigjald og auðlindarenta fyrirtækja
í Grindavík verði um og yfir tveir
milljarðar króna.
SJÁVARÚTVEGUR
ICESAVE Íslensk stjórnvöld setja
sig ekki upp á móti því að Fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
fái leyfi til meðalgöngu í máli Eftir-
litsstofnunar EFTA (ESA) gegn
Íslandi fyrir EFTA-dóm stólnum
vegna Icesave-málsins.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í utan-
ríkismálanefnd segir hins vegar að
íslensk stjórnvöld hafi átt að mót-
mæla þessari
innkomu ESB.
Frestur
íslenskra stjórn-
valda ti l að
gera athuga-
semd við kröfu
framkvæmda-
stjórnarinnar
rann út í gær. Í
tilkynningu frá
utanríkisráðu-
neytinu segir að lagt sé í hendur
EFTA-dómstólsins hvort meðal-
ganga framkvæmdastjórnarinnar
verði leyfð.
Þar segir einnig að leið meðal-
göngu, sem felur í sér beinni
aðkomu framkvæmda stjórnarinnar
að málinu umfram hina hefð-
bundnari leið að leggja fram skrif-
lega greinargerð, gæfi Íslandi
aukna kosti í málsvörn sinni.
„Stjórnvöld munu eiga þess
kost að svara sérstaklega afstöðu
sem fram kemur við meðalgöngu
en þess er ekki kostur þegar hún
kemur eingöngu fram í skriflegri
greinargerð.“
Það væri því einróma niðurstaða
aðalmálflytjanda og málflytjenda-
teymis Íslands „að það þjónaði best
hagsmunum Íslands að leggjast
ekki gegn meðalgöngu hennar í
málinu“.
Ísland mótmælir ekki meðal-
göngu Evrópusambandsins
Íslensk stjórnvöld telja best að leggjast ekki gegn meðalgöngu framkvæmdastjórnar ESB í Icesave-málinu.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins mótmælir og segir ástæðulaust að halda áfram aðildarviðræðum að óbreyttu.
RAGNHEIÐUR ELÍN
ÁRNADÓTTIR
ENN DEILT UM ICESAVE Íslensk stjórnvöld leggjast ekki gegn því að ESB fái meðal-
göngu í Icesave málinu fyrir EFTA-dómstólnum. Stjórnarandstöðuþingmenn telja að
Ísland hafi þurft að mótmæla.
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði í kvöldfréttum
Stöðvar 2 í gær að með kröfu framkvæmdastjórnarinnar um meðalgöngu í
Icesave-málinu sé ESB að taka afstöðu gegn Íslandi í málinu.
Hann sagði þessa framkomu „fruntalega“ og sambandið hefði betur látið
nægja að stök aðildarríki, Holland og Bretland, hefðu krafist meðalgöngu í stað
þess að sambandið kæmi fram „sem ein blokk“ gegn Íslandi í málinu.
„Fruntaleg“ framkoma ESB
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra hefur sætt gagnrýni fyrir
að ekki hafi verið upplýst um kröfu
framkvæmdastjórnarinnar um
meðalgöngu þegar hún kom fram
í lok síðasta mánaðar.
Meðal annars hafi utanríkis-
málanefnd ekki frétt af málinu fyrr
en sagt var frá því í fjöl miðlum.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði í viðtali á RÚV í gær
að sama hafi gilt um sig.
Össur sagði í viðtali við fjölmiðla
í gær að hann hafi gert ráð fyrir að
þingmenn hefðu fylgst með málinu
og hefði því getað verið kunnugt
um kröfu framkvæmdastjórnar-
innar.
„Hugsanlega hefði ég átt að gera
[utanríkismálanefnd] viðvart svo
að tryggt væri að þeir fengju af
þessu vitneskju.“
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokks og fulltrúi í utanríkismála-
nefnd, segir í samtali við Frétta-
blaðið að ráðherra hafi brugðist í
málinu.
„Ég held að það sé öllum ljóst
að ráðherra brást upplýsingar-
og samráðsskyldu sinni gagnvart
nefndinni. Mér fannst hann viður-
kenna það í fjölmiðlum. Við vonum
bara að gerð verði bragarbót á því.“
„Ég held að við þurfum að mót-
mæla þessu kröftuglega og ég sé
enga ástæðu til að halda áfram
aðildarviðræðum við ESB á meðan
þessi staða er uppi.“
thorgils@frettabladid.is
Í svari Chantal Hughes, talskonu
hjá framkvæmdastjórn ESB, við
fyrirspurn Fréttablaðsins segir að
með kröfunni um meðalgöngu
sé framkvæmdastjórnin að styðja
það að skýra þurfi skuldbindingar
Íslands samkvæmt EES-samn-
ingnum. Það sé nauðsynlegt til
að „viðhalda trausti á reglum ESB
um innistæðutryggingar, á trausti
á innri markaði sambandsins og
á stöðugleika evrópska fjármála-
kerfisins í heild“.
Málið fyrir EFTA-dómstólnum er
ekki beintengt aðildarviðræðum
Íslands við ESB. Í víðara sam-
hengi verði þó geta Íslands til að
innleiða samningskafla ESB um
fjármálaþjónustu, þar á meðal
tilskipunina um innnistæðu-
tryggingar, metin þegar að því
kemur að semja um þann kafla í
aðildarviðræðunum.
Ekki beintengt:
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
17°
13°
10°
16°
9°
10°
10°
21°
12°
8°
20°
25°
11°
16°
16°
7°Á MORGUN
Allhvasst SV-til,
annars hægari.
MÁNUDAGUR
10-15 m/s SV-til,
annars hægari
5
5
4
3
1 2
-1
-2
2
-2
3
4
4
3
3
2 2
2
2
2
2
2
4
4
3
6
5
4
6
4
8 5
HELGI aftur og
nýbúin. Hægviðri
um mest allt land
í dag. Skúrir V-til
í dag en ætti að
birta til inná milli.
Kalt en bjart A-til.
Vaxandi SA-átt SV-
til á morgun og
úrkoma. Hægari
vindur og bjart NA-
til. Skýjað um allt
land á mánudag og
dálítil rigning S- og
V-lands.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
SAKAMÁL Ný gögn eru komin fram
í Guðmundar- og Geirfinns málinu
sem gætu varpað nýju ljósi á
rannsókn málsins. Um er að ræða
dagbók Guðjóns Skarphéðins-
sonar, sakbornings í málinu, frá
því hann sat í gæsluvarðhaldi árin
1976 til 1977. Frá því var greint í
fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að
bókin sé nú komin í hendur starfs-
hóps sem rannsakar málið.
Arndís Soffía Sigurðardóttir,
formaður starfshópsins, sagði
bókina viðamikið gagn í málinu.
- sv
Mikilvæg fyrir rannsóknina:
Önnur dagbók
komin fram
Ég held að það sé
öllum ljóst að ráð-
herra brást upplýsingar- og
samráðsskyldu sinni gagnvart
nefndinni.
RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR
ÞINGMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS