Fréttablaðið - 14.04.2012, Síða 6
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR6
Leiðin til Ríó
MÁLSTOFA: Mánudaginn 16. apríl, Oddi 101, frá kl. 9-12.15
Frummælendur: Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Auður
Ingólfsdóttir félagsvísindasviði Háskólans á Bifröst, Dr. Jón Ágúst
Þorsteinsson Marorku, Árni Finnsson Náttúruverndarsamtökum Íslands,
Skúli Helgason Alþingi, Lúðvík E. Gústafsson Sambandi íslenskra
sveitarfélaga og Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir utanríkisráðuneyti.
Pallborð: Umhverfisráðherra og alþingismennirnir Illugi Gunnarsson,
Skúli Helgason, Birgitta Jónsdóttir og Vigdís Hauksdóttir.
Fundarstjóri: Dr. Guðrún Pétursdóttir.
Nánari upplýsingar: www.utanrikisraduneyti.is
Ríó+20 ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun verður haldin í júní 2012. Hvar
stöndum við á leið til sjálfbærrar þróunar og
hverju mun ráðstefnan skila? Hvað getur
Ísland lagt af mörkum?
Sjálfbær þróun og tækifæri græns hagkerfis
Aðalfundur Félags tæknifólks i rafiðnaði
verður haldinn miðvikudaginn 18. apríl 2012
kl. 17 að Stórhöfða 31, Grafarvogsmegin.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á ársfund Stafa.
Önnur mál.
VIÐSKIPTI Rekstur Lands virkjunar
batnaði nokkuð á árinu 2011.
Rekstrarhagnaður jókst talsvert en
skuldsetning fyrirtækisins er enn
mikil eftir fjárfestingar síðasta
áratugar. Landsvirkjun kynnti árs-
reikning sinn fyrir síðasta ár á árs-
fundi félagsins á fimmtudag.
Þrátt fyrir bætta rekstrarniður-
stöðu minnkaði hagnaður Lands-
virkjunar talsvert á milli ára. Var
hagnaður ársins 26,5 milljónir
Bandaríkjadala, jafngildi 3,4 millj-
arða króna, samanborið við 72,9
milljóna dala hagnað árið 2010.
Munurinn skýrist af óhagstæðri
gengisþróun sem breytti tals-
vert bókfærðu virði raforkusölu-
samninga fyrirtækisins.
Vegna afkomu ársins mælir
stjórn Landsvirkjunar með því að
14 milljónir dala, eða 1,8 milljarðar
króna, verði greiddar í arð til
ríkis sjóðs. Fjögur ár eru liðin frá
síðustu arðgreiðslu fyrirtækisins
sem var 7,8 milljónir dala.
Eins og áður sagði batnaði
rekstrarniðurstaða Lands virkjunar
mikið í fyrra. Rekstrarhagnaður
fyrir fjármagnsliði, afskriftir og
skatta (EBITDA) nam 354 millj-
ónum Bandaríkjadala, jafngildi 45
milljarða króna á núverandi gengi.
Hækkaði EBITDA því um 16 pró-
sent á milli ára.
Skýrist hækkunin af því að
rekstrartekjur hækkuðu verulega
umfram rekstrargjöld og hafa
tekjurnar aldrei verið hærri í sögu
Landsvirkjunar. Rekstrartekjur
voru alls 436 milljónir dala sem
jafngildir 55,4 milljörðum króna.
Til samanburðar voru rekstrar-
tekjur 378 milljónir dala árið 2010
og hafa hæst farið áður í 397 millj-
ónir dala árið 2008.
Helstu áhættuþættir í rekstri
Landsvirkjunar eru sem fyrr þróun
álverðs, vaxta og gengis gjald-
miðla. Þannig kom fram í máli
Rafnars Lárussonar, framkvæmda-
stjóra fjármálasviðs Lands-
virkjunar, á ársfundi að þróun
álverðs frá áramótum benti til þess
að tekjur fyrir tækisins yrðu lægri
á þessu ári en því síðasta.
Þá gerði Rafnar skuldastöðu
fyrirtækisins að umtalsefni.
Vaxtaberandi lán voru alls 2,7
milljarðar dala í lok síðasta árs og
var meðallíftími lánasafnsins 7,6
ár. Er Landsvirkjun umtalsvert
skuldsettari en sambærileg fyrir-
tæki í nágrannalöndum Íslands.
Síðustu þrjú ár hefur handbært
fé frá rekstri Landsvirkjunar
dugað til að standa undir endur-
greiðslum lána. Þá sagði Rafnar
það sama gilda um fyrirsjáan legar
endurgreiðslur verði ekki ráðist í
stórar fjárfestingar. Hann rak þó
þann varnagla að Landsvirkjun
væri háð aðgengi að langtíma-
fjármagni á mörkuðum. Yrðu að-
stæður á lánamörkuðum þannig að
fyrirtækið gæti ekki sótt sér lang-
tímafjármagn á viðunandi kjörum
þyrfti að skoða þörfina á því að
styrkja eigið fé félagsins. Slík
innspýting kæmi þá frá íslenska
ríkinu. magnusl@frettabladid.is
Ríkið fær 1,8 milljarða
í arð frá Landsvirkjun
Rekstrarhagnaður Landsvirkjunar jókst talsvert árið 2011. Fjármálastjóri fyrir-
tækisins segir skuldastöðu þess viðráðanlega með þeim fyrirvara þó að lokist
erlendir fjármagnsmarkaðir gæti hið opinbera þurft að styrkja eigið fé félagsins.
Í HÖRPU Á FIMMTUDAG Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Hörður
Arnarson forstjóri á ársfundi fyrirtækisins á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÉLAGSSTARF Hátt í níutíu manns
mættu á stofnfund Hollvinasam-
taka Elliðaárdals í félagsheimili
Orkuveitu Reykjavíkur í dalnum í
fyrrakvöld.
Aðdragandinn var sá að hverfis-
ráð Breiðholts og Árbæjar efndu til
fundar um málefni dalsins í haust
og niðurstaða hans varð sú að þörf
væri á félagi um þessa „mestu
náttúru perlu Reykvíkinga,“ eins
og Elliðaárdalurinn er kallaður í
tilkynningu frá samtökunum.
Á fundinum rakti sagnfræð-
ingurinn Stefán Pálsson sögu
Elliðaárdalsins og Björn Axelsson,
frá skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkurborgar, fór yfir drög
að framtíðarskipulagi svæðisins.
Hverfisráð Breiðholts og Ár-
bæjar færðu samtökunum jafn-
framt fimmtíu þúsund króna styrk
hvort um sig og þær fréttir að lénið
ellidaardalur.is hefði verið tekið frá
fyrir samtökin.
Í lok fundar var kosið í stjórn
samtakanna, og í hana völdust
Alda M. Magnúsdóttir, Anna Sif
Jónsdóttir, Guðbrandur Benedikts-
son, Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún
Theódórsdóttir, Halldór Páll Gísla-
son og Stefán Pálsson. - sh
Hollvinasamtök „mestu náttúruperlu Reykvíkinga“ fá styrk frá hverfisráðum:
Vinir Elliðaárdals stofna samtök
MARGT UM MANNINN Á níunda tug
manna sótti stofnfundinn í félagsheimili
Orkuveitunnar.
BÚRMA, AP David Cameron, for-
sætis ráðherra Bretlands, vill að
Evrópusambandið hætti efna-
hagslegum þvingunum á Búrma,
einnig þekkt sem Mjanmar. Þetta
sagði Cameron í gær, en hann er
staddur í landinu.
Cameron fundaði bæði með
forseta landsins, Thein Sein, og
stjórnarandstöðuleiðtoganum
Aung San Suu Kyi. Hann sagði
eftir fund sinn með forsetanum að
það væru merki um breytingar í
landinu og rétt væri að bregðast
við þessum breytingum. Því væri
rétt að draga úr efnahagslegum
þvingunum, en það ætti þó ekki við
um vopnasölubann sem er í gildi.
Cameron talaði aðeins um að létta
þvingunum en ekki afnema þær
alveg. Suu Kyi segist styðja þessa
nálgun á málin. Þannig sé hægt að
koma þvingunum á aftur auðveld-
lega ef þörf krefur.
„Við vitum að enn þarf að gera
mjörg margt og forsetinn sjálfur
hefur viðurkennt það að meiri
breytinga sé þörf. Hið rétta í
stöðunni er að umheimurinn
hvetji til breytinganna og hafi trú
á því að friðsamlegar framfarir í
átt að lýðræði geti átt sér stað,“
sagði Cameron.
Evrópusambandið mun ræða
um efnahagsþvinganirnar þann
23. apríl næstkomandi. Ef sam-
þykkt verður að hætta þeim
mun sambandið líklega þrýsta
á Bandaríkin að gera slíkt hið
sama. - þeb
Forsætisráðherra Bretlands fundaði með forseta og stjórnarandstöðu í Búrma:
Cameron vill aflétta þvingunum
CAMERON OG SUU KYI David Cameron
fundaði einslega með Aung San Suu
Kyi, stjórnarandstöðuleiðtoganum sem
nýlega var kosinn á þing, á heimili
hennar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Átt þú snjallsíma?
JÁ 25,8%
NEI 74,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú mikil tækifæri felast
í raforkusölu til Evrópu um
sæstreng?
Segðu þína skoðun á visir.is
DÝRAVERND Tveir dýraverndun-
arsinnar, Árni Stefán Árnason
og Óskar H. Valtýsson, hafa
kært sveitarfélag Horna fjarðar
fyrir meint brot á lögum um
dýravernd og girðingarlögum.
Fjöldi hreindýra hefur drepist
í sveitarfélaginu eftir að hafa
flækst í girðingarvír.
Kæran var lögð fram hjá lög-
reglunni á Eskifirði í fyrradag
en auk þess að kæra sveitar-
félag Hornafjarðar, kæra þeir
bónda á svæðinu og fyrirtækið
Lífsval sem þarna á land. - eh
Dýraverndunarsinnar ósáttir:
Kæra fyrir brot
um dýravernd
KJÖRKASSINN
milljarða króna
hagnaður varð
af rekstri Lands-
virkjunar á síðasta ári.
3,4