Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 10
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR10
Félags Rafeindavirkja
ARÞING 2012
STJÓRNUN NÝSKÖPUNAR
Nýsköpunarþing Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Íslandsstofu og
Nýsköpunarsjóðs verður haldið miðvikudaginn 18. apríl nk. kl. 8:30–10:30
á Grand hótel Reykjavík. Á þinginu verða flutt erindi undir yfirskriftinni
STJÓRNUN NÝSKÖPUNAR. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012 verða afhent.
Húsið opnar kl. 8:15 með léttum morgunverði.
DAGSKRÁ 8:30–10:30
Ávarp
Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra
Langhlaup nýsköpunar
Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Stika og
formaður Samtaka iðnaðarins
Alþjóðlegt fyrirtæki úr litlu landi
Davíð Helgason, forstjóri Unity Technologies
Stjórnun í skapandi umhverfi
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins
Stöðugar umbætur í áliðnaði
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi
Tónlistaratriði
Skólakór Kársness
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012 afhent
Fundarstjóri er Aðalheiður Jónsdóttir, kynningarstjóri Rannís
Skráning fer fram á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
www.nmi.is eða í síma 522 9000.
NÝSKÖPUN
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært ríflega þrítugan mann
frá Höfn í Hornafirði fyrir
brennu og nauðgun. Brotin sem
hann er ákærður fyrir voru
framin með um árs millibili.
Hann neitar allri sök.
Manninum er gefið að sök að
hafa lagt eld að geymsluhús-
næði í bænum í september 2010.
Geymslan brann til grunna.
Töluverðan tíma tók að vinna
svokallaða almannahættu-
skýrslu fyrir eldsvoðann, sem
skýrir af hverju ekki er ákært
fyrir brotið fyrr en nú. Niður-
staða rannsóknarinnar var að
eldurinn hefði skapað almanna-
hættu og því er ákært fyrir
brennu. Við slíku broti liggur
minnst tveggja ára fangelsis-
vist.
Maðurinn er svo sakaður
um að hafa nauðgað konu á
staðnum í fyrrahaust. Hann
neitar því alfarið, og neitar
því jafnframt að hafa kveikt í
geymslunni.
Aðalmeðferð verður í málinu
fyrir Héraðsdómi Austurlands
á Höfn í Hornafirði 14. maí.
- sh
Rúmlega þrítugum manni gefin að sök tvö alvarleg brot með árs millibili:
Ákærður fyrir nauðgun og brennu
HÖFN Í HORNAFIRÐI Maðurinn neitar alfarið
sök.
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur
DANMÖRK Manu Sareen, kirkju-
málaráðherra Danmerkur,
lofaði árið 2007 að senda þrjár
danskar krónur af hverju seldu
eintaki af barnabók sinni, Iqbal
Farooq og kronjuvelerne, til
barnaheimilis í Indlandi.
Samkvæmt frétt á vef
Berlingske Tidende hefur ráð-
herrann aðeins sent um 2.000
danskar krónur alls eða tæpar
50 þúsund íslenskar krónur.
Miðað við seld eintök hefðu
fátæku börnin, sem flest eru
munaðarlaus, átt að vera búin að
fá rúmlega 23 þúsund danskar
krónur eða um hálfa milljón
íslenskra króna.
Ráðherrann lofar að standa
við loforð sitt og senda
börnunum peningana. - ibs
Svik kirkjumálaráðherra:
Svindlaði á
munaðarlaus-
um börnum
FRÉTTASKÝRING
Er morðmál hluti af valdabaráttu innan
kínverska Kommúnistaflokksins?
Morð á breskum kaupsýslu-
manni hefur undanfarnar vikur
komið mikilli valdabaráttu í
Kommúnista flokknum í Kína
í sviðsljósið. Háttsettur maður
innan flokksins, Bo Xilai, var
sviptur öllum embættum sínum á
þriðjudag og tilkynnt var að eigin-
kona hans væri grunuð um aðild
að morði. Talað er um málið sem
stærsta stjórnmálahneyksli Kína í
rúmlega tuttugu ár. Ástandið sem
nú varir er óvenjulegt og hafa
sumir sérfræðingar leitt líkum að
því að málið eigi rætur að rekja til
komandi valdaskipta.
Málið hófst með dauða kaup-
sýslumannsins Neils Heywood,
sem hafði búið í Kína í um tíu ár.
Heywood fannst látinn á hótel-
herbergi í borginni Chongqing í
nóvember í fyrra. Lögregla sagði
hann hafa látist vegna ofneyslu
áfengis og var sú útskýring tekin
trúanleg af fjölskyldu hans og
breskum yfirvöldum.
Heywood er sagður hafa verið
vinur eiginkonu Bo, Gu Kailai, og
sonar þeirra, Bo Guagua.
Í febrúar komst Bo Xilai í
fréttir, þegar Wang Lijun, að-
stoðar borgarstjóri og lögreglu-
stjóri í Chongqing flúði á skrif-
stofur bandaríska sendiráðsins
í borginni Chengdu og sótti þar
um hæli. Hann óttaðist um öryggi
sitt. Hann hafði verið náinn sam-
starfsmaður Bo en var lækkaður í
tign í janúar eftir að hann greindi
Bo frá því að verið væri að rann-
saka mál fjölskyldunnar, en ýmsar
sögusagnir um ríkidæmi þeirra og
líferni höfðu verið lífseigar. Wang
hélt því fram þegar hann sótti um
hæli að Neil Heywood hefði verið
myrtur. Í kjölfar þess báðu bresk
stjórnvöld um að rannsókn yrði
hafin aftur og það var gert.
Á þriðjudag var svo greint frá
því að Gu hefði verið handtekin
og færð í varðhald ásamt starfs-
manni á heimili þeirra hjóna. Þau
eru grunuð um morðið á Heywood.
Bo hafði þegar verið sviptur leið-
togastöðunni, en á þriðjudag var
honum einnig vikið úr stjórn-
málaráðinu vegna „alvarlegra aga-
brota“.
Skipt verður um forystu í
Kommúnistaflokknum í haust, en
það er gert á tíu ára fresti. Venju-
lega fara slík valdaskipti fram í
friði, enda Kommúnistaflokknum
mikið í mun að sýnast sameinaður
og sterkur.
Forystu Kommúnista flokksins
er oft skipt í tvo hópa, sem nú
eru sagðir í mikilli valdabaráttu.
Í öðrum hópnum er forsetinn Hu
Jintao, forsætisráðherrann Wen
Jiabao og stuðningsmenn þeirra.
Í hinum hópnum eru aðallega
stjórnmálamenn frá Shanghai, og
verndari þeirra er Jiang Zemin
fyrrverandi forseti. Í þessum hópi
var Bo Xilai.
Fram að þessu máli hafði verið
talið líklegt að Bo yrði hækkaður í
tign á fundinum í haust og kæmist
í níu manna fastanefnd stjórn-
málaráðsins, sem er æðsta stofnun
flokksins, en Bo átti sæti í því.
Hann var vinsæll leiðtogi flokksins
í borginni Chongqing og vakti
athygli fyrir aðgerðir sínar gegn
skipulagðri glæpastarfsemi og
fyrir að endurvekja gamla komm-
úníska söngva og sögur. Hann var
umdeildur vegna þessara mála og
þrátt fyrir vinsældir átti hann líka
marga óvini. Ekki er vitað hvort
hann verði ákærður fyrir spillingu
vegna afskipta sinna af rannsókn á
fjölskyldunni. thorunn@frettabladid.is
Morð vekur
athygli á
valdabaráttu
Stjórnmálamaður í Kína var sviptur öllum embætt-
um innan Kommúnistaflokksins í kjölfar morðásak-
ana. Talið tengjast valdabaráttu innan flokksins.
HJÓNIN Bo og Gu bjuggu í Chongqing þar sem Bo var leiðtogi flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP