Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 14. apríl 2012 11
17. apríl Nýsköpun og að virkja hugmyndina
2. maí Nýsköpun og verkefnið
16. maí Nýsköpun og framkvæmdin
Nýsköpun námskeið
Virkjum nýsköpunarkraftinn
Arion banki vill vinna að því að byggja upp fjöl breytt og öflugt atvinnu líf.
Arion banki Nýsköpun er vett vangur sem er ætlað að leysa úr læð ingi þann
mikla ný sköpunar kraft sem býr í Íslendingum.
arionbanki.is – 444 7000
Í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands þá býður Arion banki upp á þrjú
námskeið til að auðvelda fyrstu skrefin í að þróa og vinna áhugaverðar hug-
myndir. Á námskeiðunum fara þeir Einar Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur
Arion banka í nýsköpun, og Dr. Hannes Ottósson, frá Nýsköpunarmiðstöðinni,
yfir hvernig hugmyndir geta orðið að veruleika.
Arion banki vill með margvíslegum hætti efla nýsköpun í landinu. Að virkja fólk
með góðar hugmyndir er aðeins einn liðurinn í viðleitni bankans til að byggja upp
sterkara atvinnulíf. Á næstu mánuðum mun bankinn kynna frekari skref í þessa átt.
Við hugsum um framtíðina.
Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is/nyskopun
SVÍÞJÓÐ Þegar foreldrar 10 ára
stúlku í Borås í Svíþjóð báðu yfir-
völd árið 2008 um fjárhagsaðstoð
til þess að fara með hana til Kongó,
þaðan sem þeir voru, í því skyni að
láta reka úr henni illa anda, komu
yfirvöld stúlkunni fyrir á fóstur-
heimili.
Það var ekki fyrr en í fyrra
sem stúlkan greindi frá því að
foreldrarnir hefðu áður sjálfir
beitt hana andlegu og líkamlegu
ofbeldi til þess að reka úr henni
illa anda.
Eitt skiptið þurfti að flytja
barnið á sjúkrahús vegna ofbeldis
föðurins. Hann skipaði litlu
stúlkunni að segja að skólakrakkar
hefðu verið að verki. Foreldrarnir
hafa nú verið handteknir. - ibs
Foreldrar handteknir:
Ráku illa anda
úr dóttur sinni
DANMÖRK Timo Kivimäki, finnskur
prófessor við Kaupmanna hafnar-
háskóla, hefur verið ákærður fyrir
njósnir fyrir Rússa. Prófessorinn
vísar sakargiftum á bug sam-
kvæmt frásögn danskra fjölmiðla.
Hann segist hafa fengið
greiðslur fyrir faglega greiningu
og röksemdafærslu varðandi
öryggismál fyrir menn sem hann
taldi vera venjulega starfsmenn
rússneska sendiráðsins, alveg eins
og hann hafi gert fyrir fjölmarga
aðra erindreka og ríkisstjórnir.
Kivimäki kveðst þó einu sinni
hafa verið efins í samskiptum við
Rússana. - ibs
Fékk greiðslur frá Rússum:
Saka prófessor
um njósnir
GAGNAFLUTNINGAR Með 4G marg-
faldast flutningsgeta og hraði í fjarskipta-
netum frá því sem er í 3G þjónustunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMSKIPTI Mögulegt er að 4G far-
netsþjónusta standi Íslendingum
til boða undir lok þessa árs eða í
byrjun þess næsta.
Á vef Póst- og fjarskipta-
stofnunar (PFS) segir að síðar á
árinu verði úthlutað tíðnum fyrir
4G þjónustu á Íslandi. Það verður
gert með uppboði og verður 800
MHz og 1800 MHz tíðnisviðunum
úthlutað fyrst.
Á vef PFS er vakin athygli á
því að hafa þurfi í huga við kaup
á tækjum með 4G möguleikum
að tíðnisvið eru ekki samræmd
um allan heim. Þannig munu 4G-
tæki sem framleidd eru fyrir
Evrópu markað ekki virka í Banda-
ríkjunum og Kanada. - þj
Útboð PFS á tíðnisviðum:
4G gæti komið
fyrir árslok
VÍSINDI Bavíanar geta lært að
þekkja orð með allt að fjórum
stöfum frá fjögurra stafa stafa-
rugli, þó þeir viti ekki hvað orðin
þýða. Hæfileikaríkasti bavíaninn í
nýrri rannsókn þekkir um 300 orð.
Rannsóknin var gerð á tilrauna-
stofu, og tók hópur bavíana þátt.
Aparnir voru ekki neyddir til
þátttöku, heldur gátu þeir sjálfir
ákveðið hvort og hvenær þeir vildu
leysa þrautir.
Tíu snertiskjám var komið fyrir
á svæði apanna, sem þeir gátu
skoðað þegar þeim hentaði. Á
skjánum birtist fjögurra stafa orð.
Bavíanarnir áttu svo að segja til
um hvort stafirnir fjórir mynduðu
raunverulegt orð, eða hvort þeir
væru stafabrengl. Þegar þeir
svöruðu rétt fengu þeir verðlaun.
Bavíanarnir lærðu smátt og
smátt að þekkja orðin. Þeir urðu
sífellt betri í að ákvarða hvað var
orð og hvað var stafabrengl.
Reyndasti bavíaninn þekkir nú
um 300 orð, en aðrir færri. Vís-
indamennirnir sem standa að
rannsókninni segja ekki koma á
óvart að gáfnafar apanna sé mis-
jafnt, alveg eins og meðal mann-
fólksins. - bj
Rannsókn sýnir að bavíanar geta lært að þekkja fjögurra stafa orð á tölvuskjá:
Reyndur bavíani þekkir 300 orð
TÓKU ÞÁTT Bavíanarnir í rannsókninni
réðu því sjálfir hvort og hvenær þeir
tóku þátt, og lögðu sig því alla fram.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Tæp 44 prósent
segja innbrot mesta vandamálið
í sínu hverfi samkvæmt niður-
stöðum könnunar lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu
um viðhorf almennings til lög-
reglu.
Tæplega 20 prósent nefndu
umferðarlagabrot. Tæp 14 pró-
sent nefndu eignaspjöll og fleiri
nefndu fíkniefnaneyslu sem
mesta vandamálið í sínu hverfi.
Þá sögðust yfir 88 prósent íbúa
mjög eða frekar öruggir einir á
gangi að næturlagi í sínu hverfi.
Viðhorfskönnun íbúa:
Telja innbrot
mesta vandann
HOLLANDE Í HEIMSÓKN François Hol-
lande, forsetaframbjóðandi sósíalista í
Frakklandi, heimsótti hárgreiðsluskóla
í Clermont-Ferrand á fimmtudaginn og
ræddi við nemendur og kennara.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP